Sunday, March 04, 2007

Su nudags blog

Ef þið sjáið ekki seinna "N-ið" í fyrirsögninni þá er það útafþví að það er að leika Michael Carrick í leiknum í gær, s.s. ósýnilegt. Hann var svo týndur að þegar það átti að skipta honum útaf þá fannst hann ekki, svo man. utd. þurftu að finna nýjan skiptimann. Í eitt skipti þegar Gary Neville fór að taka innkast sást Michael Carrick hinsvegar hlaupa uppað honum og segja: "Hey Gary can I take this one? This is getting embarrassing, I ain't getting no camera time".

Sver að þetta gerðist. Þetta verða einu kommentin sem ég mun gefa út um þennan leik.


Það helsta sem er að frétta frá London er það að ég er kominn með vinnu eftir skólann, og í London þannig að ég er ekki á leiðinni neitt í burt, ég fór á Café Pacifico í gær og fékk mér góða stemningu og skemmtun, ég fór í "fótbolta" í Regent's Park í morgun, sem seinna þróaðist útí e-ð mitt á milli leðjuslags og rugby (og KY-glímu(djók(samt ekki(samt)))).
Ef mamma hefði séð útganginn á mér eftir þetta hefði hún orðið brjáluð, svo mikið er víst, þessi mynd ætti að gefa ágætis dæmi (athugið að þetta er á höfðinu, svæðið sem ætti að haldast nokkuð hreint í knattspyrnuiðkun). Ég held að ég þurfi að henda fötunum sem ég var í.

ODB

Svo ætla ég til Danmerkur næstu helgi, það er nánast gefins að fljúga þangað svo að það er ekkert að aftra mér frá því að kíkja í heimsókn aftur. Tékk.

Og já, ekki horfa á "Saw 3" ef þið eruð að leita að góðum söguþræði! (ha, hvaða söguþráður? (akkurat))

Ég er að fara að horfa á "Amelie" núna, og eingöngu útaf því að Yann Tiersen sér um tónlistina í henni. Mér finnst hann góður.

4 dagar - Danmörk

11 dagar - Elli Joð a.k.a. Joðmaðurinn mætir til London og við förum á Arcade Fire og kúrum

26 dagar - Páskafrí á Íslandi, Alan úr X-factor ætlar að kenna böndí og páskapart-ei

Sjáumst á Mæspeis.

6 comments:

Anonymous said...

Menn verða náttúrulega að átta sig á því samt sem áður hverjir stóðu uppi sem sigurvegarar í þessum leik. Og þar fyrir utan unnum við hann tveimur færri - scholes með rauða og carrick ósýnilegur. :)

Anonymous said...

já þetta er svona, þeir fiska sem róa! eða eitthvað álíka heimskulegt... en vá hvað það er gaman að horfa á leiki með jafn æstum mönnum eins og.......
anywho þá þarf styrk til að sigra svona leiki...eins og einn maðurinn sagði þegar Rooney labbaði haltur útaf....nei nei nei kemur ekki John O'Shea supersub maður! - það segir allt sem segja þarf

Anonymous said...

Vúvíváááváá..bara verið að fórna lookinu fyrir strákana!

Saw 3 totally agree, og vá GhostRider..bygones..ekki einu sinni spyrja afhverju!!

Girls jus wanna have fun..:) újee

ætlarðu svo að kíkja í heimsókn..

Anonymous said...

Hi I'd love to congratulate you for such a terrific made site!
thought this is a perfect way to make my first post!

Sincerely,
Hilary Driscoll
if you're ever bored check out my site!
[url=http://www.partyopedia.com/articles/over-the-hill-party-supplies.html]over the hill Party Supplies[/url].

Anonymous said...

Hello. My wife and I bought our house about 6 months ago. It was a foreclosure and we were able to get a great deal on it. We also took advantage of the 8K tax credit so that definitely helped. We did an extensive remodeling job and now I want to refinance to cut the term to a 20 or 15 year loan. Does anyone know any good sites for mortgage information? Thanks!

Mike

Anonymous said...

top [url=http://www.c-online-casino.co.uk/]uk casino bonus[/url] brake the latest [url=http://www.realcazinoz.com/]casino online[/url] free no consign reward at the chief [url=http://www.baywatchcasino.com/]casino bonus
[/url].