Sunday, April 15, 2007

Falin myndavél

Ég man ennþá hvað ég varð hoppandi brjálaður þegar Michael Scofield og Lincoln Burrows komust ekki í flóttaflugvélina í seríu 1 af Prison Break, og maður horfði á þá hlaupa útí víðáttuna bara til að geta haldið flóttanum áfram í seríu 2. Hvernig gátu Fox vogað sér að draga mann svona áfram á asnaeyrum gegnum 22 þætti bara til að komast að engri niðurstöðu, og þurfa að bíða í fleiri mánuði eftir því að sjá meira. Mér fannst það helvíti djarft að gera aðra seríu, en þeim er svosem slétt sama svo lengi sem þeir halda sínu áhorfi uppi.

Það er búið að sýna lokaþáttinn af seríu 2 á Íslandi, þannig að ég fæ ekkert samviskubit þó að ég setji inn fréttir af því hvernig hún endar hingað inn. Ef þú vilt ekki vita hvernig hún endar þá skaltu ekki lesa meira af þessari færslu heldur fara á þennan link.

Ég var að enda við að horfa á þátt númer 22 í 2 seríu, og fjandinn hafi það, þetta helvíti á greinilega engan endi að taka. Þeir fengu svo mörg tækifæri til að enda þetta, en alltaf var einhver fauti mættur í snjáðum jakkafötum miðandi byssu einsog það væri að detta úr tísku. NY-WAY, þetta endaði ekki. Það er búið að ákveða að framleiða 3 seríu, og ég er móðgaður. Ég er reiður.

Ég mæli frekar með Dexter. 12 þættir, byrjun, endir og allir sáttir. Mér sýnist Prison Break vera að stefna sömu leið og Lost, sem týndi söguþræðinum einhversstaðar í 1 eða 2 seríu, og er að reyna að kreista einhverja atburðarás útúr 3 seríu.

En ég er búinn að vera á Íslandi núna í 2 vikur, og á eina eftir. Þetta er búið að vera mjög kósý, sérstaklega meðan Elín var hérna. Eftir að hún fór er þetta búið að vera meira svona hardcore, s.s. KFC, fótbolti, Pakkhúsið, "slagsmál" í Pulsuvagninum (þar sem fullorðnir karlmenn bresta í grát), rokk-guitar-hero-afmæli hjá Atla Fannari og lærdómur.

En það er farið að sjá fyrir endann á skólanum, aðeins einn og hálfur mánuður þangað til að maður segir bæ við skólabækurnar og fer að vinna einsog maðurinn. Þá ætlar Elín líka að flytja til London og að eigin sögn ætlar hún aldrei að fara þaðan (YES). Sláum því upp aðeins.

Ég skrifa kannski sögu bráðum, þetta var meira bara svona update þar sem það var kominn köngulóarvefur á síðuna mína. Update og pirringur útí Prison Break.



Bangsapabbi biður að heilsa kjötbollunni sinni. Mússí mússí....

6 comments:

Anonymous said...

Good times sem sagt út í gegn..

Hvar erum myndirnar sem þú lofaðir pabbi fyrir eftir og sólskálinn..

Bring it bro!!

Anonymous said...

Það var svo sannarlega "stuð" í pullaranum á laugardaginn, frétti einmitt að einn hefði hreinlega brostið í grát þegar lögreglan mætti.. ;)

En gaman að hitta þig á Pakkaranum :)

Kv. Anna Kristín

Anonymous said...

úúú hvað gerðist í pullaranum? Fékk eh litla sósu en bað um mikla?

Lenti oft í því að fá skinku þegar ég borða ekki skinku..fyndið ;)

Anonymous said...

Hey gummi þetta verðuru að lesa.. This is you:

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Hahahhaaaaaa

Gummi said...

Sólrún: Ég er ekki í krabbanum, heldur í stjörnumerkinu "Pabbi Króki".
Og já einn gaur bað um breiðloku en fékk brauðloku með rækjum.

Annsa: Það var massagaman að rekast á þig og Ingu. Þið voruð "eitur" hressar á gólfinu.

Rokk-Gummi.

Anonymous said...

snulli

thu ert einhmitt thessi sosutypa sem solla var ad setja inn.

kiss