Monday, April 23, 2007

Limbó-Rokk-Tvist!!

Þið vitið að þessi færsla verður sjúklega góð, enda gefur nafnið það eindregið til kynna. Þessi færsla verður að öllum líkindum í lengri kantinum. Hokay!

Ég er kominn til London aftur eftir 3 vikur á Íslandi þar sem fríinu var skipt niður í tvö tímabil: 1) Kærótímabilið þar sem ég var á föstu, og 2) Félagatímabilið þar sem ég átti fullt af vinum og frítíma. Það helsta sem dreif á daga mína var:

1. Ég eyddi meira tíma á Hvolsvelli heldur en Örvar hefur gert síðustu 2 ár samfleytt (pun intended). Löggan stoppaði mig þar sem ég var á rólegum páskarúnti, og lætin voru þvílík að hún keyrði næstum því niður vinkonu Elínar þegar hún ákvað að setja ljósin á mig og athuga hvort ég væri með áfengi í blóðinu, sem ég hef að sjálfsögðu aldrei gert.

2. Ég fór á tvenna tónleika. Annars vegar Stebba og Eyva (Eyfa?(Ey}a?)) í Selfosskirkju þar sem ég fór með Elínu og mömmu og pabba. Þeir tónleikar voru mjög góðir, þá sérlega útaf því að í næstu 3 röðum fyrir framan okkur sat "sérstakt" fólk, Down-heilkennið segir held ég alla söguna. Elín átti erfitt með að hemja sig þegar þessar dúllur voru að standa upp í tíma og ótíma og syngja með slögurum einsog Nínu og Álfheiði Björk, án þess þó að kunna textann. Snilld og snilld LMAO! OMG!
Hinir tónleikarnir voru með Peter Bjorn & John á Nasa þar sem ég fór ásamt Ella STÓRA. Það var ógó gaman, nema fyrir þær sakir að við misstum af upphitunarbandinu Sprengjuhöllinni og uppáhaldslaginu okkar "Tímarnir Okkar" þó svo að við hefðum mætt klukkan 8! Hvernig hljómsveit byrjar að spila ÁÐUR en tónleikarnir eiga að byrja? Voru þeir að missa af "Judging Amy" á skjánum? Gátu þeir ekki bara tekið þáttinn upp? Eða bara séð endursýninguna af honum? Limbó-Rokk-Tvist.

3. Ég lenti í leiðinlegasta greyi aprílmánaðar á ralli. Í Pylsuvagninum eftir djamm var einhver leiðindapési að rífa sig við mig, Hjalta og Hilla, þ.á.m. hótaði hann að stinga okkur alla saman. Ég tuskaði hann aðeins út, sem er ekkert til að segja frá nema Hjalti sagði mér frá því seinna að áður en ég gerði það hafi ég tekið gleraugun af honum og rétt Hjalta þau, til að skemma þau ekki. Drengskapurinn uppmálaður. Síðan henti ég honum út. Löggan kom á svæðið, einhver pulsuvagns-drós hringdi á hana, og haldiði að gaurinn með stóra munninn hafi ekki farið að gráta! Priceless augnablik!

4. Ég og Hjalti unnum Trivial á miðvikudaginn síðasta, og síðan pub-quiz á fimmtudeginum eftir. Mjög góður stígandi í þessu hjá okkur. Ekki nóg með það heldur unnum við í FcFlóa líka Árborg á fimmtudeginum sem var æðislega sætt.

5. Það var heljarinnar partei á okkur félögunum á föstudaginn síðasta. Hittumst allir (nema Dalli?!?!?!?!) uppí bústað og elduðum humar, pöntuðum pizzur og drukkum mikið af fullorðinskróki. Það var smá leikur í gangi, allir af félögunum fengu "alter-ego", annan karakter sem þeir áttu að smella sér í af og til. Úr varð mikið bleis!

Billi - Hann var gaurinn sem er með minnimáttarkennd á háu stigi og allt er á leiðinni í vaskinn. Hefði auðveldlega getað drepið partýið í fæðingu ef hann hefði haft púls í að fara í karakterinn af meiri krafti.

Brynjar - Einar frændi var mættur. Ef þú sagðir sögu, var Brynjar mættur á svæðið til að toppa hana! Stóð sig mjög vel, sérstaklega þegar Heiðar Ingi fór að pósa ber að ofan, þá mætti Brynjar allsber á svæðið og tók þyrluspaðann!

Elli - Heiti gaurinn. Búinn að vera heitur í styrk síðustu misseri og lét heldur betur vita af því á milli þess sem hann spennti byssurnar. Var mjög þreytandi!

Gummi - Ég var gaurinn sem var á föstu. Átti það til að brjóta upp umræðurnar og tala um hvað það væri kósý að kúra, og að strákarnir sem væru á lausu gætu alveg horft á stelpur fyrir mér, ég þyrfti samt ekkert að gera það, enda á föstu!

Heiðar - Hann var gaurinn sem labbaði um og sagði öllum hvað þeir væru hrikalega feitir og ógeðslegir, og í ömurlegu formi. Ekki leiðinlegt að heyra það frá Íslandsmeistaranum í Fitness. Hann og Elli voru destined til að að lenda í rifrildi um kvöldið.

Hilmir - Hann var gaurinn sem er búinn að spila of mikið WOW og notar hvert tækifæri til að henda inn setningum einsog "Nujj kattlinn bara með cloak of shadow og resistance". Átti nokkra mjög góða spretti, en ég held að fáir hafi áttað sig á því að þetta væri hlutverkið hans.

Hjalti - Var gaurinn sem er alltaf ósammála öllu. Tilvalið til að hleypa smá lífi í partýið. Hjalti átti góðar innkomur, lenti nokkrum sinnum uppá kant við Brynjar sérstaklega.

Raggi - Var gaurinn sem var alltaf að koma með Family Guy frasa, alveg þangað til það varð þreytt, síðan varð það pínlegt, síðan varð það vandræðalegt. "Giggidi-giggidí-goo"!

Ari - Beilaði á síðustu stundu á partýinu, en honum hafði verið úthlutað hlutverki Besserwissers. Hefði það orðið e-ð fyndið??

6. Við félagarnir stálum stól á Pakkhúsinu, fórum svo með hann heim þar sem við ristum nöfnin okkar í hann. Svo er ætlunin að skila honum. Núna getur Billi loksins sagt: "Það er til stóll merktur mér hérna, og veist þú ekki hver ég er?"
Seinna um nóttina fórum við í partý (nema Billi sem dó í rúminu mínu) þar sem við hittum fyrir eitrað teymi. Blindur maður, albínói og gaur sem var vaxinn einsog rúmmeter (ég veit reyndar ekki alveg hvað var talentið hann, miðað við Wonderinn og Whitey þá hlaut það að vera e-ð magnað). Albínóinn fékk að heyra það að það væri löngu dottið úr tísku að vera með aflitað hár. Brúmmtiss.

Þá er búið að gera flest upp held ég. Bara mánuður eftir af skólanum, nóg af verkefnum framundan og síðan próf. Eftir það byrjar vinnan, vei-hei! Ég ætla líka að monta mig, 29. maí er ég að fara að spila á charity fótboltamóti hérna í London fyrir hönd Baugs. Frank Lampard er að halda þetta mót fyrir ungar konur með krabbamein, og verður spilað í 11 manna liðum á STAMFORD BRIDGE, commentators, merktir búningar og utanyfirgallar, leikirnir verða teknir upp á DVD og svo verður Gala-kvöldverður eftir þetta. Lampard verður á svæðinu og örugglega fleiri Chelskí leikmenn, pottþétt að scouta mig, Hödda og Óla sem verðum burðarliðir í þessu Baugsliði. Baugur-Burðarás, djók.

Ég ætla að fara að taka fleiri myndir, minnið mig á að taka vélina mína með næst þegar ég kem í heimsókn, þangað til ætla ég að leggja mig.

Sjáumst í London, þar sem sumarið er klárlega komið!

Pabbi Króki - "Daddy likes to rub against young boys on the bus, and that's why mommy left us"

7 comments:

Anonymous said...

Lampard á eftir að koma hlaupandi og gefa mér tveggjahandarfimmu þegar ég skora frá miðju og þulurinn öskrar: "Johnson with the DEFLECTION!!!!!!"

það væri amk nett

Anonymous said...

Dalli..er það málarameistarinn fra Mjósyndi?Harpa gefur lífinu lit...eða?



joðsi

Anonymous said...

Hahahaaaa...
..löng færsla, var nokkrum sinnum farin að gera eitthvað allt annað en að lesa hana..borða kanelgifler , laga glossinn og svara símanum, en já trúi því að Ella hafi viljað taka þátt í parteyinu á fremri bekkjunum..greyið!!

Mundu svo að taka myndavélina með í nr.6. Langar að sjá heita celeb fótboltagaura útúrtanaða í straujuðum shorts en samt ekki þig og vini þína..

Svo bara +/-12 dagar í roadtrip?

***Shotgun***

Anonymous said...

jóhó, sirka ein og hálf vika baby!

vá hvað þessi hlutverk pössuðu vel við ykkur strákana! hefði vilja sjá ykkur

:*

Anonymous said...

hahahah ég átti líka dáldið bágt með mig þegar fólkið var að klappa og syngja!! sjitt var það fyndið :
sko á tónleikunum er é gað meina


Halla Karen

Anonymous said...

Snilld.. Ég var ekkert að fatta hlutverkið hjá neinum og var þvílíkt mikið að hugsa allt kvöldið hvort að ég ætti að vera að koma meira inn.. greinilega of mikið.

Ég hélt að enginn væri að gera sitt hlutverk, mér fannst þetta allt svo eðlilegt. Nema kannski þegar Elli og Billi fóru í kickbox.. Þá var ég að spá hvort að þeir hefðu fengið einhver slágsmála hlutverk..

Anonymous said...

Alma/Selma úr pakkhúsinu voru að hringja í mig og spyrjast fyrir um barstólinn. Það flaug eins og fiskisaga að albinói,böddi k og jói bé hefðu verið þeir síðustu sem hituðu rasskinnarnar á stólnum...spurning um að senda bréf með klipptum dagblaða stöfum á pakkarann og biðja um fría pizzu í staðinn eða leigufríann mánuð fyrir Billa í staðinn fyrir stólinn...tékk