Thursday, September 27, 2007

The neverending story

Er sagan um mig og British Telecom, en ég held að Jamie Kennedy sé að vinna þar og ætli að X-a mig. Bíða þangað til ég sleppi mér yfir því að internettengingin heima hjá mér verði aldrei tengd og myrði einhvern sandapa hérna. Nóg um það.

Staines er lítill bær sirka klukkutíma fyrir utan central London sem er hvað þekktastur fyrir það að Ali-G nokkur bjó þar. Hann var einmitt í West Staines Massive klíkunni, sem allir muna eftir. „East side is the best“ - „West side is the best“ og svo framvegis. Ég og Elín fórum til Staines um liðna helgi, í hinn marg-umdeilda og alræmda skemmtigarð „Thorpe Park“. Við lögðum snemma af stað, um 9 um morguninn og aldrei þessu vant vorum við Elín mætt fyrst á staðinn (erum búin að koma því í vana að vera a.m.k. klukkutíma og korteri of sein þegar við hittum annað fólk(sem er ekki vinsælt(en mjög töff))). Þetta var einn besti dagur í London í sumar, steikjandi sól og vel hlýtt, þannig að við fengum okkur donut á leiðinni (sem maður gerir, er það ekki?). Við vorum komin í Thorpe park um 11 leytið og þá hófst dagurinn sem Gummi stóð í biðröð. Tækin þarna eru allsvakaleg, ég neita því ekki, en við komust samt aðeins í 6 þeirra yfir allan daginn þar sem biðtíminn í hvert tæki var frá 60-90 mínútum. Ég var ekkert alltof hress með gang mála framanaf, orðinn frekar þreyttur á öskrunum í aðalkúnnahóp garðsins. 75% af fólkinu sem sækir garðinn er kvenkyns, á aldrinum 13-17 ára og ferðast í hópum sem innihalda 3-8 kvikindi. Þau eru oftast í eins peysum með merkingum á bakinu (oftast gælunöfn), með spangir og finnst allt ægilega fyndið og spennandi.

Allavega, í lok dagsins þá komumst við loksins í tækið sem ég hafði horft á allan daginn og alltaf fengið kvíða lengst niðrí maga þegar ég sá það. Stealth er hraðskreiðasti rússíbani í Evrópu, fer uppí 130 km á klst á 1.8 sekúndum (2.3 var það fyrst en á wikipedia segja þeir að hann sé víst hraðari í dag en hann var þegar hann opnaði). Einsog það sé ekki nóg, þá fer hann líka 70 metra uppí loftið, þverhnípt, bara til að fara beinustu leið niður aftur, 90 gráður takk fyrir okkur. Þessi ferð tekur 15 sekúndur (90 mínútur og 15 sekúndur með biðröð) en er vel þess virði. Í heildina fær þessi skemmtigarður 4 kebaba og 2 skammta af fröllum, af 7 mögulegum.

Elín er byrjuð í skólanum. Ég er viss um að hún eigi eftir að valda usla.

Og svo fórum við í bíó um daginn og sáum 3:10 to Yuma sem fær 6 kebaba og stóra kók með tveim rörum.

Í gær fórum við á Iceland Airwaves tónleika í Kilburn, sem er rétt hjá okkur. Hafdís Huld, Jan Mayen og Motion Boys tróðu upp og fylltist allt af íslendingum. Ég missti reyndar af mestallri dagskránni þar sem ég var í símanum, en það sem stóð uppúr var að Reyka Vodka var með auglýsingar þarna útum allt.

„The only flavoured vodka made in Iceland is vodka flavoured vodka.“ Og hvað eru mörg vodka í því? Ívar? Einhver?

Á næstunni eigum við von á góðum gestum, Þórir og Margrét með Jason einkason sinn og frumburð ætla að mæta, Ella og Helgi með sinn frumburð ætla að fylgja þeim á eftir og svo eru örugglega þúsund manns sem ég er að gleyma og/eða nenni ekki að telja upp.

Brynjar sendi mér mail um daginn þar sem var mynd af Torres berum að ofan að auglýsa Pepe gallabuxur. Fyrir neðan textann stóð: „Torres – er hægt að vera meira nammi?“ Ég held að hann ætti að fara að hugsa sinn gang, eflaust búinn að búa of nálægt Örvari síðustu mánuði.

Spurning. Er ég sá eini sem er orðinn dauðþreyttur á að lesa fréttir um það hvað Amy Winehouse er mikill dópisti, hvað Pete Doherty er mikill dópisti, og hvað Madeleine McCann er mikið týnd?

Og ég og Elín spiluðum rommý um daginn. Hún kenndi mér spilið nokkrum kvöldum áður, og var þetta því annað skiptið sem við spiluðum. Við höfðum það þannig að sá sem var með forustu fékk að vera með forláta pípuhatt til merkis um yfirburði og þokka, sá sem var að tapa átti að vera með grænan pallíettutrefil (ég veit!).

Látum myndirnar tala...


Kevin Federline

6 comments:

Anonymous said...

þið voruð nú ekkert ein í garðinum!!! takk fyrir!!

ég er samt að fíla reglurnar hjá ykkur í rommí! very original!

Anonymous said...

Loksins eh news ef maður má kalla slúðrið í þér news. Klukkan er hálf bold og ég á leiðinni í ljós til að preppa húðina fyrir megabruna næstu tvær vikurnar á PALERMO, yesss.

Gott að þið eruð lifandi og élín loksins farin að gera eh af viti, ég mun fylgjast með og vil fá sannanir og astraltertugubb.

Hringdu klukkan 8.

MÚSSÍ MÚSS

Gummi said...

Mikið rétt Blynja, þú komst líka með í garðinn. Þú fékkst þér Kenny í garðinum, ógeðslega sveittan, ég á mynd af því.

Og easy á ljósunum Tinni, mottóið í Bretlandi er að vera með hvíta húð og tanaðar tennur, akkurat öfugt við aðra hluta heimsins (fyrir utan Nepal).

Anonymous said...

Er sammála Brynjari með Torres ég er búinn að þukkla mig yfir myndum af honum á netinu á síðkvöldum.

Sem er gott mál.

Ragnar Gylfason said...

gerður bara eins og Eric Cartman, kauptu þér bara þinn eigin skemmtigarð

Anonymous said...

Hey K fag, hringdu í kvöld, já í kvöld..olræt?