Tuesday, November 27, 2007

... and you'll never walk alone"

Á morgun vakna ég klukkan 7 og tek strætó númer 16 niðrá Marble Arch. 25 mínútum seinna er ég kominn í gymið að beygja stangir, brenna úr hlaupabrettunum og láta alla hina líta illa út (einsog mér einum er lagið myndu sennilega allir segja). Klukkan 9 er búið að benda mér vinsamlegast á það að vera úti og þá rölti ég í 5 mínútur í austurátt niður Oxford Stræti og í vinnuna. Þar reyni ég að gera e-ð af viti í 3 tíma áður en ég fer uppá Euston og tek lestina til LIVERPOOL.

Á morgun mun ég fara til Bítlaborgarinnar í annað skiptið á mínum ferli til að sjá Steven Gerrard og fjölskyldu spila fótbolta. Óli Johnson kemur aftur með og hefur Sigrún kærasta hans tekið sæti Heyðingjans (Helga) í þetta skiptið. Því miður komst Elín ekki með því það er verið að sýna lokaþátt American's Next Top Model sama kvöld og leikurinn er og það er vonlaust að finna VHS videospólur ennþá til að taka þáttinn upp.

Einnig gæti verið að hún sé að læra og komist ekki.

Að fara á meistaradeildarleik er bara svo mikið mikið meira heldur en að fara á deildarleik nokkru tímann. Ég hef farið á einn þannig leik áður, og fékk gæsahúð þegar Champione lagið byrjaði, samt var ég staddur á Emirates Stadium það skiptið. Hvernig verður þetta þá á Anfield?!?

hhcNYway þá ætla ég að taka fullt af myndum, reyna að drekka 20 bjóra og ekki týna veskinu mínu í þetta skiptið.

YNWA!


Reynið að giska á hvað er verið að auglýsa, ekki séns að þið náið því!

6 comments:

Elli Joð. said...

HAHAHAHAH frábær auglýsing. Ég hefði giskað á head and shoulders, way off greinilega.

En skemmtu þér vel á Anfield, gamanið verður samt örugglega stutt því Liverpool mun tapa og Gerrard mun gráta.

Anonymous said...

shit ég var með Red BUll, fannst eins og górillan væri alltaf að sofna en fæ kannski plús fyrir að vera með food and beverages gisk smurning

vá hvað það verður mikill grátur ef þið vinnið ekki en vona samt að þið vinnið bara af því þú ert svo mikill gaur, gaman að sjá þig brosa

vá hvað þetta var væmið og hommalegt.....jæja farinn að finna aftur eistun..
píZ

Anonymous said...

Shit hahahaa auglýsing já, hélt þetta væri auglýsing fyrir bandið hans bubba eða þá bara eh heimatilbúið..

Takk fyrir mig enn og aftur, love it and love you :*

Eins gott að þú týnir ekki sjálfum þér í rútunni heim frá Anfield, GO REDS og enga lallastæla ef þeir tapa ;)

Kiss kiss

Gummi said...

Góði leikur.

Sæll.

Eigum við að ræða það eitthvað.

Anonymous said...

Snilld,



En hvað er málið með Djúsinn?

Anonymous said...

mjá mjá