Monday, December 31, 2007

Gleðilegt ár!

Það er ekki seinna vænna að óska öllum gleðilegs nýs árs og fengsældar á komandi ári. Það er aldrei að vita nema maður geri upp árið sem er að líða í pistli ekki ósvipuðum og ég gerði snemma á árinu 2007.

Ég fer á dansleik á Hvolsvelli þetta árið sem er nýjung, en það er ansi fátt á boðstólunum í heimabænum þetta árið sem vakti áhuga minn. Eftir troðningsballið í Hvíta Húsinu á annan í jólum sé ég mér ekki fært um að fara aftur á næstunni þangað þó að þar verði eflaust úrvalsölvun og daður í hæsta gæðaflokki.

Vonandi eru allir komnir með nýársheitin á hreint, ég veit að ég er með nokkur uppí erminni.

Nýárskveðjur - 2008!!

Gummi.

3 comments:

Anonymous said...

Gleðilegt ár pitti pitt. Fáum okkur meiri frómas ;)

Anonymous said...

HÆ GUMMI ÞÚ ERT MJÖG SKEMMTILEGUR OG SÆTUR

Anonymous said...

DJÓKLOLBILL ÞETTA VAR EKKI ÓLI