London-Jól
Þá er Desember rúllandi sem aldrei fyrr, allt komið á fullt með jólagjafainnkaup, lítil börn grenjandi í Hamleys, unglingsstelpur að "kredda" í Primark og hlaða á sig ljósbrúnum pappírspokum fullum af toppum og háum hælum framleiddum af börnum á Filippseyjum, ungar mæður jæjandi og dæsandi í strætóum niður Regent Street horfandi gegnum móðuna á gluggunum á verslunarútstillingarnar og 20% afsláttarmiðana sem sístressaðir verslunareigendur hafa hengt út til að reyna að halda jólaversluninni í ár amk jafnhárri og í fyrra. Skítt með framlegð, ef þú getur sýnt framá að söluverðmætið sé meira en í fyrra þá þarftu ekki að sjá framá hlutabréfaverðs-rennibraut einsog hefur verið svolítið í tísku fyrir þessi jólin.
Í fréttum er það helst að ég fór til Liverpool og á magnaðan leik. Best að setja inn nokkar myndir, aka myndablogg!
Byrjuðum á því að chilla á Melwood æfingasvæði Liverpool þar sem Torres m.a. "rassaði" Reina uppá grínið. Við hlógum einsog fífl og gáfum honum svo hæfæv og fengum okkur StjerneMix og 7up saman.
Ég nýlentur á lestarstöðinni á Liverpool Lime Street og að sturta í mig bjóL. Mjög klassískt.
Óli og ég komnir heim á Anfield Road, erum þarna fyrir framan þennan frægasta fótboltavöll heimsins.
The Park, sem er Liverpoolpöbbinn þar sem við syngjum alltaf fyrir leiki. Pínulítill og skítugur staður en þvílík sál, og þvílík eitrun!
BjóL inná The Park, bjórinn bragðast betur þar!
Verið að syngja Champione lagið, sem reyndarheyrðist ekkert þar sem Liverpool stuðningsmennirnir sungu "Youll never walk alone" á sama tíma. Sem var geðveikt!
Ég og Óli sturluðumst þegar Torres frændi skoraði seinna markið sitt í leiknum og kom Liverpool yfir. Fyrir aftan okkur sátu sirka 10 stykki af portúgölum sem voru ekki sáttir við gang mála.
Heimferðin var þannig að við fórum beint uppá rútustöð í Liverpool eftir leikinn og biðum þar í 90 mín eftir rútunni sem átti að keyra með okkur til London. Ferðin tók 7 klst með stoppi í Birmingham þar sem við skiptum um rútu. Við vorum komin heim klukkan 7 um morguninn og ég svaf ekki eina helvítis mínútu alla ferðina þar sem ég get bara einfaldlega ekki sofið sitjandi í bíl. Einnig sat einhver hobbitakona við hliðiná mér mestalla leiðina sem lyktaði einsog gamall fimm punda seðill.
Þessa stundina erum við Elín að undirbúa jólin. Ég keypti jólatré í gær og skreytti á meðan hún lærði, en hún hefur verið að vinna að verkefni alla vikuna sem hún skilar á þriðjudaginn. Þá um kvöldið er svo planað að fara á skauta í Hyde Park með nokkrum félögum úr vinnunni, og síðan á föstudaginn er jólahátíð hjá vinnunni minni, en hún fer fram þannig að við drekkum mikið mikið mikið af Mojito og skiptumst á jólagjöfum. Á sunnudaginn eftir viku á svo kjötbollan afmæli og þá gerum við eflaust e-ð kósý, enda fer hún síðan heim daginn eftir eða þann 17 des. Ég mun svo fylgja þrem dögum seinna og verð líklega til 6. janúar ef allt fer að óskum.
Ég vona svo að komast á snjóbretti í jólafríinu enda hef ég heyrt að Bláfjöll séu opin núna. Ef ekki þá erum við Elín ásamt Ella og Helgu að fara í skíðaferð einhvert til Evrópu í mars/apríl á næsta ári, og mega endilega fleiri slást í hópinn. Heiðar er mjög heitur og eitthvað segir mér að Örvar láti þetta ekki sleppa framhjá sér heldur ;), enda er hann samkynhneigður og frábær skíðamaður.
Einnig erum við að fara á Radiohead tónleika í júlí á næsta ári, til Berlínar góðan daginn! Þetta sagði Elín mér allavega um daginn þegar ég var í vinnunni, hún er mjög mikill planari stelpan.
Í fréttum er einnig það að Þórir frændi meiddi sig um daginn, og verður frá handboltaiðkun í einhverja mánuði skyldist mér. Hann viðbeinsbrotnaði á æfingu! Við Elín skilum góðum kveðjum til hans og vonum að hann hafi það gott.
Ég og Þórir mjög þroskaðir með apabindi í London Zoo, fyrir nokkrum vikum síðan.
Ég ætla að láta nokkar myndir fylgja með í viðbót af því sem við höfum verið að gera undanfarið í London...
Við Elín fórum aftur í Rommý og þar sem ég vann fékk ég að vera með þetta forláta höfuðband sem Elín valdi.
Elín tapaði aftur á móti og ég hafði valið höfuðklóruna okkar sem höfuðfat taparans, sem hún bar með mikilli skömm mestallt spilið.
Við fórum í jólalandið í Harrods þar sem ég var látinn sitja fyrir, enda búinn að horfa á tvær seríur af Americas Next Top Excel Model
Alexander og Thea eru orðnir fastagestir hjá okkur, enda býr hún í London og Lexi flýgur oftar á milli heldur en Dennis Bergkamp
Höddi sást einnig í rúllustiganum í Camden klæddur í grænan Lacoste bol með 700 milljón punda svipinn
Við Elín fundum skítugasta hvítahyskis hjólhýsahverfið í Bretlandi, í Kent nánara sagt. Ef þú átt ekki hús á hjólum hérna þá mátti vinsamlegast vera úti.
Mamma og pabbi komu í heimsókn, og gáfu okkur m.a. 7 kíló af ólöglega innfluttu nammi.
Helga Lillian og Elli komu í heimsókn og syndguðu heldur betur gestadýnuna okkar. Sjáiði bara svipinn á Helgu!
Við fórum á Arcade Fire tónleika þar sem Elli labbaði á hurð og festi munninn í stút
Svo fæ ég aldrei leið á þessari mynd. Elín vs. Súkkulaðipizzan, má varla á milli sjá hvor hefur betur.
En jæja, nú verð ég að hætta að blogga þar sem kjötbollan sagði leyniorðið:
"Eru Magni og konan hans ennþá saman?"
Hverjum er ekki sama?
Bæbæ Gummi frá London.
5 comments:
ég tapaði ekki..
komdu heim, er orðin svöng
Geðveikt gaman að ferðast svona lengi í rútu.. eða ekki..
En vel þess virði, Ég kem með næst
Hahahhahaaaa, thu og thorir ættud ad taka thatt i americas next we look great together models for couples eda eh i tha attina..bætid svo vel hvorn annan upp!!
Gaman ad komast a netid loksins og ja geta andad..klukkan ad verda tvo eftir midnætti og eg ad gera lokateikninguna af modelinu sem eg er buin ad lima saman sidustu daga..ekkert 9 til fimm her..hlakka til ad fa sma fri til ad gera hluti eins og baka og trifa og skreyta og talandi um fa mer white...med barry a foninum..
knus a bumbu og linunA..
PEACE OUT :*
viltu vera pennavinur minn? mér finst þú svo sætur
Good words.
Post a Comment