Thursday, February 21, 2008

That's how the Federline's keep rolling...

Ég rakst á frétt á Vísi eða mbl í dag þar sem einhver þingmaður (sögðu þeir, einsog það skipti einhverju máli) var viðriðinn það að hafa spilað póker-kónger uppá peninga. Hneyksli. Einnig játaði hann það að hafa spilað Bridge uppá peninga - SAMA KVÖLD!

Hvað er að manninum, á hann eintóm spila-áhugamál? Er hann einhverfur? Er hann með geðbrest(?) ? Er hann.... HOMMI!

Nei segi svona, mér er nokk sama þó hann hafi spilað Lúdó uppá háskólasjóð barnanna sinna, en neðar í greininni var viðtal við einhvern gamlan spilafíkil sem átti ekki orð yfir háttsemi háttsetts þingmanns. Þar sem póker veðmál séu ólögleg á framúrstefnulega landinu okkar þá skyldi það vera ansi hart að þingmaður skyldi brjóta þau lögin (einsog ég kom inná áðan, þá finnst mér það ekki skipta neinu máli þar sem það hefur sýnt sig áður að þingmenn alveg jafn ólöghlýðnir og aðrir, ef ekki verri, en það er nú önnur saga).

En það skoplega við þetta er það að spila-fíkils-gaurinn sagði e-ð semsvo: "Að þessi maður skuli ætla að ganga fram fyrir skjöldu og upphefja fjárhættuspil sem hefur eyðilagt fjárhag fjölmargra fjölskyldna er fyrir neðan allar hellur. Hann ætti að taka sig saman í andlitinu og fara í naflaskoðun [Innskot höfundar: Sá er sem segir]."

Þá er þessi maður búinn að vera að berjast fyrir því að hafa póker ólöglegan í gegnum árin. Þá spyr Guðmundur: "Er einhver að snúa uppá höndina á honum? Hvað með spilakassana, 1X2 tippin, öll veðmálsatriðin í Rat Race (pepto bismol), bingóin og lottóin? Er ekki best að banna áfengi til að hjálpa alkóhólistum í baráttu sinni við áfengið? Banna Kenny svo að átsjúklingar geti lifað án stöðugs ótta?"

Með fullri virðingu fyrir spilafíklum (nema þessum manni auðvitað), þá er það gjörsamlega óviðunandi að agaleysi, heimska og stjórnleysi þessa manns á eigin fjárhag og gjörðum eigi að koma í veg fyrir það að aðrir geti tekið sjáfstæða ákvörðun um hvort þeir leggi pening undir eða ekki þegar þeir spili póker, án þess að hafa áhyggjur af því hvort þeir séu að brjóta lög eða ekki.

Ummæli hans og framkoma eru í raun ekkert annað en fordómar, þar sem hann er að áætla það að allir aðrir munu gjörsamlega missa stjórn á sér ef lögleiðing myndi líta dagsins ljós.

Það er ekki mikið meira, varð að koma þessu á framfæri þar sem ég varð reiður að lesa þessa frétt í dag.

Gummi og Póker - Fullt hús hjá Ella Joð um helgina!

No comments: