Sunday, April 30, 2006

Blog 101

Ef þetta er ekki blogg þá vil ég koma því á framfæri að ég ætla að blogga bráðum hérna þar sem ritgerðin mín er að taka á sig lokamynd.

Ívar er búinn að lofa að drekka sig undir borðið í einum teyg, þannig að ég hvet alla til að láta hann efna þetta þegar hann kemur á Ísland um miðjan Maí.

Takk.

Wednesday, April 19, 2006

Jó!

Var að setja inn myndir, hérna til hliðar undir "Páskapartei 2006".

Kíkið og gleðjist, gott teiti, góðar myndir, good things.

Sjáumst.

Monday, April 10, 2006

Daglegt líf

7:30 - Vekjaraklukkan á símanum byrjar, snooze...
7:35 - Vekjaraklukkan á símanum, snooze...
7:40 - Vekjaraklukkan á símanum, snooze...
...
...
...
8:00 - Vekjaraklukkan á símanum, stop... fer á fætur, tannbursti, semi-sturta, föt, gríp símann, Blackberryinn og veskið, passa að lyklarnir séu í innri vasanum á frakkanum mínum, vinstra megin...
8:30 - Bomba mér út...
8:50 - Stíg útúr lestinni á Bond street, kem við á Pret og fæ mér samloku og köku ef mér finnst ég eiga það skilið (sem þýðir margar kökur í hverri viku)...
9:00 - Bond street 135-137, mæti í vinnuna, ræsi besta vin minn, tölvuna, og hef vinnudaginn meðan ég borða morgunmatinn minn...
12:00 til 17:00 - Á þessu tímabili borða ég hádegismat, fer allt eftir því hvernig verkefni dagsins raðast niður, hversu langt er í deadline, hversu hátt stresslevelið er á skrifstofunni og hversu svangur ég er...
15:00 til 19:00 - Á þessu tímabili finnst mér og Hödda ferlega nice að fá okkur Starbucks. Labba framhjá dyraverðinum honum Trevor, hann lítur á mig gegnum gleraugun, brosir svo það glittir í sótsvartar, kaffi og reykbrunnu tennurnar og segir: "Hi, you aiiiiight?" Ég svara honum alltaf bara með "Hi", neita að taka þátt í þessu "Good, good, how are you", þar sem ég veit að þetta þýðir svo sem ekkert hjá honum, honum er nákvæmlega sama um hvort ég sé "í lagi" eða ekki.
20:00 til 21:00 - Á þessu tímabili hef ég reynt að hætta að vinna síðustu vikuna, og þá byrjað að skrifa lokaritgerðina mína.
01:00 til 03:00 - Á þessu tímabili skríð ég vanalega heim til mín, raka mig, hendi mér í sturtu og uppí rúm. Þar sem ég fyllist mikilli orku við það að tannbursta mig tekur það mig að lágmarki klukkutíma að sofna, svo að hin tölvan mín bíður eftir mér heimavið. Eyði vanalega 30 til 60 mínútum í að eyða tíma á netinu, hlusta á tónlist og spjalla við hina næturhrafnana á MSN, sem þó gerist alls ekki oft.

Sjáumst jafnvel næstu helgi, páskar á Íslandi og ég læt sjá mig. Allir að taka frá föstudagskvöldið, hringið í Brynjar til að fá frekari upplýsingar.

Guðmundur - á eftir að sakna London-fársins!