Tuesday, December 13, 2005

Danmörk bæ

Frekar skrýtin tilfinning. Búinn að henda öllu oní tösku, henda sumu, gefa sumt, selja sumt. Síðasta handboltaæfingin búin. Síðasti skóladagurinn búinn. Á morgun er síðasta prófið sem tekur aðeins 25 mínútur, fyrirlestur og svo smá vörn á ritgerð. Eftir það verður hoppað í lest til Köben með Hreiðari og Ívari og við munum eyða síðustu nóttinni á hóteli í Köben, þar sem við fljúgum allir snemma á fimmtudaginn. Ég og Hreiðar til Íslands, Ívar til Grænlands.
Annars er búið að vera mikið um reddingar í dag! Ég var að pakka niður, sá framá að ég væri með svona 30 kg í yfirvigt! Það reddaðist þannig að ég fékk að henda dóti í tösku og senda með búslóðinni hans Hreiðars, sem við keyrðum til Árhus í dag. Mega redding.
Einnig komst ég á tal við húsvörðinn í íbúðinni okkar, og hann tjáði mér það að ég gæti skilið mestallt stóra og þunga dótið mitt eftir í íbúðinni, svosem rúmið, fataskapinn og sófann í stofunni. Það heldur betur léttir undir vesenið. Mega redding þar líka.
Síðasta reddingin, og sennilega sú besta, er sú að ég er kominn með samastað í hinni nýju Borg Óttans, London! Og á engum smá stað líka, eina mínútu frá Paddington stöðinni, alveg við Hyde Park, dead central einsog maðurinn sagði. Ég er 20 mínútur að labba í vinnuna niðrá Bond street, eða helmingi fljótari með undergroundinu. Þetta er auðvitað snilld, ég var farinn að sjá fyrir mér 40 mínútna lestarferðir í byrjun og lok hvers dags! Ég mun leigja mjög fínt herbergi hjá ítalskri konu, eina herbergið sem hún leigir út hjá sér, og er stórt rúm og öll húsgögn í herberginu nú þegar, þannig að ég þarf bara að mæta á svæðið. Frekar mikill spenningur kominn í mig, að byrja að vinna einsog maður loksins! Þannig að þetta er án efa besta redding dagsins, þó hinar hafi ekki verið slæmar!
Einnig fékk ég gefins smá kveðjugjöf frá Thomasi vini mínum, Kolding handboltabúning, og engan venjulegan. Jesper Noddesbo klæddist þessum búning þegar þeir unnu meistaratitilinn nú í Maí.


Bið að heilsa...

Monday, December 12, 2005

Test

1,2,3!

Ógeðslega sniðugt test, hver elskar ekki test?

Prófið þetta test. Mjög nákvæmt test. Má kannski bjóða einhverjum test?

Test.

Saturday, December 10, 2005

IBA Friday's

Tókum gott rall í gær. Ég, Hreiðar og Ívar negldum okkur á skólabarinn, hittum fullt af fólki og fórum svo niðrí bæ.
Síðasta djammið í Kolding yfirstaðið og ég verð kominn heim eftir 5 daga.
Kíkið á myndirnar sem ég var að setja inn.
Ótrúlegasta fólki bregður fyrir á þessum myndum, en þó er sérstakur gestur Jókerinn úr Batmanmyndunum.

Hann lét lítið fyrir sér fara en var þó með signature brosið.

Thursday, December 08, 2005

"A coward's tackle"


Voru orð sem Jamie Redknapp fyrrum leikmaður Liverpool notaði um tæklingu Michael Essien á Dietmar Hamann í leik Chelsea og Liverpool á þriðjudeginum síðastliðnum. Ég er meira en sammála honum. Eftir að hafa séð þetta í slow motion aftur og aftur og frá nokkrum sjónarhornum finnst mér gjörsamlega óskiljanlegt hvað maðurinn er að hugsa. Hann stígur svo langt yfir boltann að hann er ekki einusinni á leið til hans lengur, heldur bara setur sólann beint í hnéð á Hamann sem auðvitað steinlá. Hann hélt að ferillinn væri á enda, einsog reyndar fleiri sem sáu þetta. Löppin á honum var öll blá og rauð en sem betur fer óbrotin, enda er Hamann gerður úr þýsku stáli og hefur meiri reynslu í tæklingum heldur en Tóti Ingólfs.
Hann hefur núna verið kærður fyrir þessa tæklingu og fær væntanlega bann í kjölfarið, 3 leikja segi ég. Ég er þó með mun betri refsingu fyrir manninn. Láta rassskella hann á Trafalgar Square fyrir framan almenning, þá myndi hann læra sína lexíu, og allir hefðu gaman af í þokkabót.

Monday, December 05, 2005

...

Við sambýlingarnir ætluðum að fagna próflokinu okkar á laugardaginn. Fengum okkur áfengi að drekka með munninum og fórum svo niðrí bæ í íslendingapartý. Þegar maður drekkur áfengi þá verður maður vitlaus í höfðinu, og ég sérstaklega var hálf kjánalegur. Sat rólegur með drykk í hönd þegar ónefndur aðili kom aðvífandi með staup handa mér og manaði mig í að taka þetta. Ég er auðvitað gífurleg hetja af heljarmannaætt og eitt svona staupglas ætti að vera "lítið mál" - fattiði. En hversu lítið mál er að drekka 50/50 blöndu af Tequila and Tabasco, ég leyfi mér að kalla það TnT allavega. Fjandinn ég beit á jaxlinn, sveið í kjaftinn en hélt engu að síður coolinu, enda miklu að halda brúmmtiss. Hálftíma síðar var ég þó orðinn töluvert kjánalegur af þessum drykk og ákvað í samráði við landlækni að halda heim á leið og hálftíma síðar lá ég rotaður uppí rúminu mínu. Eftir hrekkinn með innbúið hans Ívars um daginn (Cuntjuice.tk) hefur verið ansi mikið prakkara-andrúmsloft á Knúti, og þegar Hreddi og Ívar skriðu heim síðar um nóttina átti að hrekkja mig. Þar sem ég lá varnarlaus, klæðalaus og rænulaus uppí rúmi komu þeir aðvífandi félagarnir, á Evuklæðunum einum saman og lögðust uppí til mín. Þar sem þeir lágu báðir hjá mér, héldu utanum mig og hlógu sig máttlausa í áfengisgleðinni tókst þeim ómögulega að vekja mig. Ég var hristur og sleginn, kreistur og kysstur en aldrei vaknaði kallinn. Ég prísa mig sælan, ég held ég hefði aldrei boðið þess bætur ef ég hefði áttað mig á þessum aðstæðum sem ég var kominn í. Ég fékk að heyra söguna daginn eftir og þá henti ég mér í sturtu og kveikti í rúmfötunum, síðan tannburstaði ég mig.

En ég er að fara að læra undir próf núna. Heimilisfræðipróf á morgun, svo beint í Tónmennt. Á miðvikudaginn fer ég í Matreiðslupróf. Á föstudaginn er mitt síðasta próf sem er í Kristinfræði. Ég held ég sé 90% viss um að ég sleppi við prófið í Smíði því ég er kominn með svo góða stjórn á brennipennanum.

Wish me luck...

Friday, December 02, 2005

Bambus

Lífið gæti alveg verið betra. Ég var að keppa áðan og við töpuðum með einu marki. Hrikalega svekkjandi alveg. Ef við hefðum unnið þá væri ég ekki eins svekktur og lífið væri betra, eruð þið að ná þessu ferli? Var það ekki Mr. Proper ultra sem elskaði verkin sem maður hatar? Er að pæla í að láta hann þvo af mér fötin mín og versla inn í matinn. Annars fannst hann mér alltaf frekar hommaleg týpa í auglýsingunum, svona kall á fertugsaldrinum, krúnurakaður og með eyrnalokk. Svona útbrenndur sjóari sem hætti á sjónum til að geta eytt meiri tíma með kærastanum sínum og fékk svo vinnu við skúringar á Landspítalanum. Annars örugglega fínn gaur, samt algjört fífl.

Er að horfa á 4. seríu af The Apprentice, sem er eini þátturinn sem ég hef þolinmæði í að horfa á því mér finnst ég læra af því að horfa á hann, hversu sjúkt er það? Einhver að hringja í Patrick Bateman og segja honum að það sé kominn gestur...... AAAAllavega, í þáttunum eru kallar á móti kellingum, en kellingarnar voru búnar að tapa svo oft og illa að þær máttu velja sér einn úr kallaliðinu til að vera í sínu liði. Og þær völdu eina svertingjann úr karlaliðinu svo hann "switched sides" einsog Elton John í den. En það fyndna við þetta allt er að kallarnir unnu enn og aftur, og fengu í verðlaun að gera rapplag með Wycleaf Jean, sem var einmitt í Fugees. Lagið hjá þeim minnti mig á eitthvað á milli Sveittra gangavarða og Jóhönnu Guðrúnar. Skelfilegt einsog Tryggvi hefði orðað það. Og ég veit alveg afhverju þetta var svona skelfilegt. Þeir höfðu nýlega misst svarta manninn sem hefði án efa rokkað mækinn einsog AJ (ei-djei) í brekkusöngnum.

Djöfull er ég duglegur bloggari samt. Ef ég myndi taka til í herberginu mínu í hvert skipti sem ég myndi blogga........ þá myndi ég sennilega bara hætta að blogga.

Thursday, December 01, 2005

Guðm. Eggerts.

Ég skrifaði nafnið mitt 12 sinnum áðan. Var að klára þessa prófatörn. Er frekar skrýtið að taka svona próf. Ég fékk 40 bls af texta með upplýsingum um fyrirtæki og ákveðinn markað og svo 48 klst síðar fæ ég að spreyta mig í 6 klst inní skólastofu vopnaður word og excel. Ég var svo creative í höfðinu mínu sem ég notaði til að hugsa upp svör við spurningunum á prófinu að ég þurfti að hamla mig síðustu 2 tímana, leið semi einsog feitri stelpu í hjólabuxum, plássið var bara búið! Það mátti mest skrifa 15 bls eða 36,000 characters, og mér finnst það frekar fyndið að ég skrifaði 35,949 characters. En því miður þá er gefinn einkunn fyrir gæði ekki magn, þannig að ég verð að vona að ég fokkaði ekki upp öllu prófinu einsog ég fokkaði upp Business Law spurningunni. Vil reyndar kenna því 50% á kennarann fyrir fáránlegar glósur sem hann lét okkur hafa og síðan 50% á mína dómgreind fyrir að hafa treyst á glósurnar hans.

En vegna þess hve mikið ég hef verið að læra undir þetta próf þá hef ég ekki verið að blogga mikið. Það kannski útskýrir komment einsog:
"Koma svo gamli, þetta er lengsta blogghlé síðan Ghandi var uppi!" - Brynjar

En núna, akkurat núna, ætla ég að liggja uppí rúmi og eyða eins miklum tíma og ég get í ekki neitt, bara afþví að ég get það. Þarf að byrja að hugsa um ritgerð strax á morgun. En ljósið í myrkrinu er án efa Ísland eftir 2 vikur, þá kem ég á klakann vopnaður ferðatösku og góða skapinu.

Sefur maður með höfðinu? Borðar maður með munninum eða með höndunum? Eða kannski tönnunum? Dansar maður með huganum eða með fótunum, eða kannski með upphandleggjunum einsog Elli vinur minn?

Háskólapælingar!

Saturday, November 26, 2005

Alive and kicking

Tíminn er að líða of hratt þessa dagana. Þurfti að stilla úrið mitt einn dag áfram því það hafði ekki undan, var bara í slökun einsog ég. Ég er búinn að vera "rólegur" síðustu daga, eða svona einsog hægt er. Fara í skólann, hreyfa mig örlítið reglulega og bryðja aspirin. Er reglulega slakur fyrir prófið mitt næsta fimmtudag, sem og síðustu dagana mína hérna í Kolding, borg óttans.

Heyrði eitt fyndnasta lag sem ég hef heyrt lengi í gær, "Ég gleymdi veskinu í Breiðholti" með íslensku rottunum Stjána og DiddaFel. Einnig var Atmosphere að koma með plötu sem ég hef aðeins verið að skoða, lofar ágætu, ekki mikið meira.

Hef tekið þá liðsákvörðun að skrifa hérna inn næst þegar ég hef eitthvað að segja, einhvernveginn er það rökrétt. Þegar maður fer varla útúr húsi þá gerist ekki mikið, ekki satt?

"Bykkjan brokkar greitt en ég heyri engan hófadyn/
Hef enga byssu samt verða gaurar smókaðir/"

Wednesday, November 23, 2005

Ævintýri dagsins

Þetta var nú meiri dagurinn.

Í dag lenti ég í heldur óskemmtilegri lífsreynslu. Eftir skóla löbbuðum ég, Ívar og Hreiðar áleiðis niður í bæ. Þegar við vorum ca. hálfnaðir á þessari rólegu göngu þá fæ ég alveg uppúr þurru þennan líka þunga og stingandi verk fyrir hjartað. Ég reyndi að draga andann rólega en þá kom hann aftur. Í hvert skipti sem ég dró niður andann kom þessi stingur, svo ég stoppaði og reyndi að róa mig aðeins niður, anda eðlilega og bíða þetta af mér. Fæ svona af og til, en reyndar ekki svona mikið og lengi. En ég ákvað að þetta myndi bara fara einsog öll hin skiptin, tek af mér skólatöskuna og held frekar á henni og held göngunni áfram, þó rólega. Ekkert er verkurinn þó að fara, er alltaf í brjóstinu alveg stingandi með hverjum andardrættinum. Þegar við erum komnir niður í bæ staðnæmumst við, en ég er heldur tregur við að labba af stað aftur, leið hálf undarlega, var dofinn og enn með verkinn sem hafði ekki minnkað neitt. Skyndilega fer mig að svima, svo ég legg frá mér töskuna og reyni að ná "balance" aftur. Þá hætti ég að sjá í fókus, allt verður að móðu og sama hvað ég reyni að ná mér í súrefni þá bara virðist þetta versna. Ég skiljanlega varð skíthræddur á þessu mómenti og ákvað í samráði við strákana að þetta væri ekkert sniðugt lengur, ég þyrfti að drífa mig uppá bráðamóttöku og láta skoða þetta strax. Við hendum okkur inní leigubíl og brunum uppeftir og þar er ég tekinn beint í ýmsar skoðanir og línurit tekið af starfsemi hjartans og blóðþrýstingur mældur. Um þetta leyti var verkurinn loks farinn, en ég var með háan púls og verulega stressaður eftir allt saman. Ekkert athugavert kom í ljós, nema þegar hlustað var á hjartað, en þá heyrðist eitthvað aukahljóð sem læknirinn sagði að væri óeðlilegt. Veit hinsvegar ekki hvort að verkurinn hafi stafað af því eða ekki? En það átti að senda mig í annað hjartatékk, en því miður þá eru biðlistar svo langir að ég verð líklega farinn frá Danmörku áður en það gerist. Er hinsvegar með frænda heima sem er hjartaskurðlæknir svo að hann sér um mig í fríinu, smá klíka ;)
Allavega held ég að ég hafi sjaldan eða aldrei verið jafn hræddur á minni ævi, hélt að eitthvað væri að gefa sig. Þakka Hreiðari og Ívari fyrir alla aðstoðina samt, hetjur dagsins. Málið er kannski líka að ég fór í hjartaþræðingu 5 ára gamall vegna þrengsla í lungnaslagæð, þetta gæti allt stafað af því? Eða kannski ekki? En lengri er sagan ekki, þar hafiði sjúkrasöguna mína.
Allavega er ég hress núna og læt þetta ekki stoppa mig í prófundirbúningi sem er núna, aðeins vika í 6 tíma prófið.
En það er ekki meira í bili, vildi bara updeita aðeins frá Kolding, sjáumst eftir 3 vikur.
Gummi.

Monday, November 21, 2005

Meiri vitleysan alltaf

á manni. Kom heim úr skólanum í dag, alveg uppgefinn eftir lítinn svefn í nótt sem orsakaðist af því að ég fór seint að sofa kvöldið áður. Jæja, ég henti mér uppí rúm og svaf frá mér lífið. Núna er klukkan að ganga 2 og ég er ekkert á leiðinni að sofna! En já, vaknaði klukkan 22 og ákvað að fá mér ekki að borða, þó svo að ég væri ekki búinn að borða allan daginn. Ástæðan fyrir því var auðvitað bara hversu latur ég er, nennti ekki að elda neitt. Var að pæla í disk af Coco Pops sem er fljótlegt og átakalaust, en eina mjólkin sem var til í ísskápnum rann út þann 16. nóv, þannig að ég setti hana bara aftur inní ísskáp. Prófaði um daginn að nota vatn og það var ekki eins gott og ég vonaði. Reyndar fór ég útí búð í dag, en ég er bara alltaf svo skipulagður hvað varðar heimilisstörfin. Í staðinn fyrir að kaupa mér mat til að borða með munninum þá keypti ég mér 4 stk af Newcastle Brown Ale til að eiga fyrir champ. league í vikunni, og svo 2 stk af Dr. Pepper því ég gat það og mátti það. Ræð mér sjálfur ef svo má að orði komast.
Fékk í dag útúr 2 hlutum af 3 í prófi sem ég tók fyrir 2 vikum síðan um Sterling flugfélagið. Gekk fínt 10+ í marketing og 10+ í economics. Fæ útúr Business law á morgun og þá er ég kominn með heildareinkunn, en ég fell ekki úr þessu fjandinn hafi það. Líður semi einsog ég sé að monta mig, og ef svo er, þá er ekkert sem neinn getur gert í því svo bara sleppum því.
Fékk "hljóðbók" hjá Hreiðari í gær sem kallast "Freakonomics". Eitt af downloadafrekum hans. Þetta er algjör snilld verð ég að segja. Útskýrir fyrir manni mikið af óþarfa hlutum frá hagfræðilegu sjónarmiði, einsog t.d. "Afhverju búa flestir krakkfíklar enn hjá mömmu sinni" og fleiri fáránlegar pælingar.
23 dagar í "homecoming". Einn og hálfur mánuður í London.
Er það spurning um að hætta þessu flakki og flytja heim, fá vinnu á Arnbergi við að selja ís og dæla blýlausu í kuldavettling? Það hefur allavega sjaldan hljómað jafn spennandi þar sem mig langar orðið djöfull mikið heim!
En djöfull eruðið samt frábær!

Sunday, November 20, 2005

Hreiðar

einnig þekkur sem Hreddi, er nýjasti meðlimurinn á geðsjúkrahúsinu við Knud Hansens vej. Hann er Íslandsmeistari í Downloadi og hefur náð sér í dýrmæta reynslu í Danmörku, þar sem ótakmarkað download er daglegt brauð og 2MB tenging skilar manni langt. Hann er atvinnumaður þegar kemur að mönsi, og gott dæmi er það að hann hefur búið hér í 2 vikur en ég og Ívar í eitt og hálft ár. Á síðustu 2 vikum höfum ég og Ívar þó í fyrsta skipti farið á kebab-búllurnar í nágrenninu eða farið í svonefnda "Möns-leiðangra", þar sem við þræðum "the mean streets of Boston" niðrá bensínstöðina Q8 og kaupum okkur nammi. Þessu hefur Hreiðar áorkað á ótrúlega skömmum tíma. Hann sjálfur státar sig af því að hafa verið orsakavaldurinn af offitu vina sinna, og þeir hafi allir grennst eftir að hann flúði Ísland. Ég verð að segja að ég er alls ekkert hissa.
Í gær fórum við á Jensen, sem er veitingastaður niðrí bæ. Þar er hægt að fá bestu rif í DK, og kaupa svona "All you can eat" skammt. Þá fær maður eins mikið af mat og maður getur í sig látið. Við höfum gert þetta nokkrum sinnum vinirnir, og alltaf náð á 3 skammt, sem er helvíti vel að verki staðið. Í gær var hinsvegar farið með því markmiði að sigra staðinn, einsog ég og Brynjar gerðum á KFC hér um árið. Í gær vorum við búnir með 3 skammtinn, og var ekki mikil löngun í meiri rif hjá neinum okkar. Ég stóð upp, brýndi raustina og þrusaði yfir borðið einsog Mel Gibson í Braveheart: "Ágætu Piltar! Við höfum komið hingað reglulega á Danmerkurdvöl okkar. Nú er innanvið mánuður eftir, og ég spyr ykkur. Ætlum við að fara frá landinu án þess að geta sagt barnabörnunum frá því að við höfum torgað fjórða skammtinum á Jensen? Við getum hér með hefnt fyrir meðferð danska réttarkerfisins á Jóni Hreggviðssyni snærisþjófi, hefnt fyrir 14-2 tapið í Parken, hefnt fyrir einokunarverslunina!! Það er núna eða aldrei piltar. Upp með matarlystina, upp með gafflana, niður með rifin!!! Étum Jensen útá gaddinn!"
Í þeim töluðu orðum kom þjónustukonan með fjórða skammtinn á borðið og hann hvarf einsog peningarnir hjá Gjaldkera Símans. Við höfðum sigrað fjórða skammtinn í fyrsta og síðasta skiptið. Við gengum stoltir frá borði, okkur svimaði og var illt í maganum, en vorum sigurvegarar kvöldsins. Reyndar var kvöldið ónýtt því við enduðum allir heima uppí rúmi sofandi um 1 leytið því öll orka líkamans fór í meltinguna. En við sigruðum engu að síður.

Friday, November 18, 2005

Myndir!

Var að setja inn nokkrar myndir frá Klakamótinu, Selfosspartýinu og Íslandsferðinni heim. Þetta er hérna til hægri og heitir Haust2005, kíkiði.

Ritgerðin loksins búin og nú getur maður farið að enda léttar, not, þar sem nú eru innan við 2 vikur í "2nd external examination" sem er eitt af 2 mikilvægustu prófunum sem við tökum í þessu námi. En mér gekk vel í prufuprófinu svo ég hef litlar áhyggjur.

Dagarnir fljúga áfram, kominn 18. Nóvember!!!! Hvað er að, ég á innan við mánuð eftir í Danmörku, fáránlegt. Finnst ekki langt síðan ég flutti hingað út í fyrsta skiptið og sá fyrir mér ekkert nema tíma framundan sem ég ætti eftir að vera hérna. En nú er það bara búið, gott í dag einsog maðurinn sagði. Óli og Mæja fljúga heim í dag því þau eru að fara að eignast dóttur á næstu vikum. Óska þeim góðs gengis og sé þau hressari en aldrei fyrr í jólafríinu.

Ætla að henda mér á einsog eina æfingu, taka bekk, hnébeygju, axlir og svo 2 tíma í handbolta.
Takk fyrir mig, þið eruð æðisleg.

Wednesday, November 16, 2005

Þá er enn einn sólarhringurinn að baki og dagurinn í dag var uppá margt nákvæmlega einsog gærdagurinn.
Því bið ég alla um að lesa bloggið frá því í gær aftur.

Maður dagsins er ég sjálfur fyrir að hafa "survived the mean streets of Boston".

Tuesday, November 15, 2005

Afhverju get ég ómögulega sofnað? Á ég kannski að slökkva á tölvunni? Ég hef einungis setið fyrir framan hana síðan klukkan 10 í morgun. Klukkan er 6 mínútur yfir 1. Ég og Hreiðar sátum í skólanum til korter í tíu í kvöld að gera PESTLE-analysis fyrir Area Study ritgerðina sem á að skilast á föstudaginn. Eftir það ætla ég að rölta á Reppann og fá mér einn sóðalega sveittann bjór og leggjast aftur í artí-sófann sem Tryggvi og Steingrímur arfleiddu Ívar að.
Er samt að fíla það nokkuð vel að læra svona mikið og lengi. Dagurinn er fljótari að líða, maður kemur meiru í verk og þarf að borða minna! Ég át 2svar í dag.
Díses kræst, verkjar orðið í augun, ef það kemur seinna meir í ljós að fartölvunotkun sé skaðleg á ég von á dágóðum bótum get ég sagt ykkur.

Maður dagsins er Thomas sem er með mér í hóp, en hann tók control-freak kast í dag á Yaroslav og gerði sig að algjöru fífli fyrir framan bekkinn. Held hann hafi áttað sig á því seinna meir og var hálf kjánalegur þar til hann lét sig hverfa.

Svo vil ég mótmæla UEFA eða FIFA eða báðum fyrir að hafa sett á landsleiki á morgun, ömurlega umspilsleiki með eintómum Tyrkjum og Pólverjum. Ef allt hefði verið eðlilegt væri meistaradeildin í kvöld og annað kvöld. En það verður að frestast, sem er bömmer dagsins.

Og lag dagsins er Stelpur með Danna Deluxe.

Monday, November 14, 2005

Dagbók. 14. nóvember 2005

Vaknaði við vekjaraklukkuna hans Ívars. Sofnaði aftur. Vaknaði við vekjaraklukkuna hans Hreiðars. Sofnaði ekki aftur. Þessir tveir peyjar eru draumar, allavega lifa í draumi mestanpartinn. Ég var kominn á fætur á undan þeim báðum báðum bara því að þeir eru snoozarar. Ég hef ávallt lifað við mottóið, you snooze - you loose! Mín vekjaraklukka hringir bara einusinni, ef ég slekk á henni og sofna aftur þýðir það að ég læri ekkert Business Law þann daginn!

Fór í skólann með bros á vör, sat þar ásamt Yaroslav( sjá síðasta blogg) til 4 í dag að gera Area study ritgerðina mína, komst vel á veg með að móta minn hluta og á fimmtudaginn verður hann álíka og Jay-Z hérna um árið, eða eitthvað í þessa áttina:
"I'm so gangsta prissy chicks don't wanna fuck with me/
I'm so gutter ghetto girls fall in love with me/"

Hvað svo sem ég meina með þessu þá er það all good einsog rifin á Jensen's. Alma (sjá síðasta blogg) mætti ekki í dag og komumst við að því að það er búið að reka hana úr skólanum. Held það svona 90% í alvörunni að skólayfirvöld hafi séð bloggið mitt og fattað hversu mikil byrði hún er á skattgreiðendum. Er að fá SU, ellilífeyri og 8 meðlög sem fylgja barnabætur. Hver segir að þetta kvendi þurfi viðskiptamenntun, hún er að gera góðan pening sýnist mér!

Rölti heim úr skólanum með bros á vör. Kom við í búðinni og keypti mér smá mat til að lifa af "the mean streets of Boston." Stoppaði stutt við í Penthouse-inu á Knud Hansensvej því að það var leikur í dag. Fór í hann auðvitað, átti fínan leik og við unnum annan leikinn í röð, nú á móti efsta liðinu í deildinni. Skoraði 3 sem er einmitt the magic number. Kom heim, mönnaði eitthvað gangsta skyndimöns í ofninum og fór síðan að gera það sem karlmenn gera í dag. Horfði á Bachelor. Sá þar bregða fyrir 2 fyrrum vinnufélögum, þeim Helga og Halla, bræður Jennýjar, og voru þeir temmilegir á því. Helgi átti kvöldið greinilega, var ekkert að taka of létt á Pipardólgnum og lét hann aðeins vinna upp svita í nautaleðrinu í Álftarimanum. Annars er það ekki launungarmál að Jenný á eftir að enda með Írisi að möddfighta um gaurinn. Þessi Guðfinna á ekki "break" frekar en Larry Flint með "Move your Feet" á iPodnum sínum í Don Kanó krumpugalla og hvítum adidasskópörum. Ég myndi allavega ekki leggja í hana frekar en fatlaðastæðið.

Já svo laumaði ég inn dónakommenti á BunnyGirls, en reyndar eru mjög góðar pælingar þar oft á tíðum, og var póstur þar sem nauðsynlega þurfti smá "extension".

Maður dagsins er Yaroslav fyrir að hafa talað við mig í góðan hálftíma án þess að ég hafi skilið aukatekið orð. Hann var að tala um franska pólitík á Rússa-ensku.

Og ég var að fjárfesta í flugmiða heim um jólin. Verður gaman að sjá hversu góð fjárfesting hann verður, en ávöxtunarkrafa mín er allavega gott frí. Sjáumst þá.

Sunday, November 13, 2005

Enn eitt bloggið í safnið sem heitir "já" en mér þykir það vera fullkomið heiti þar sem það er einfalt og jákvætt.

Bætti inn link hér til hægri þar sem góðir gestir geta sent mér sms alla leið til Danmerkur. Hvet ég sem flesta til að henda á mig línu, hvort sem ykkur líkar við mig eða ekki. Alltaf gaman að fá skilaboð frá ókunnugum, eða nafnlaus skilaboð frá vinum þar sem þeir tala illa um mann.

Fór á enska í gær með Óla, Hreiðari og Ívari og Doddi kom svo seinna og horfðum við á England vinna Argentínu og drukkum nokkra volga með. Svo var kíkt í partý hjá Ísaki í Noma en það var heilagur Ísaks dagur oftar sem áður. Þar var ýmisleg vitleysa gerð einsog þegar við sáum "pissestif" danskan gaur, semsagt mökkölvaðann leggjast í aftursætið á bilnum sínum og æla útum hurðina. Við gátum ekki látið grey manninn í friði svo við fórum á hristum bílinn hjá honum og ég ætlaði ekki að verða eldri þegar ég sá svipinn á honum. Svo fór hann að rífa kjaft seinna og vera með læti en það var ekkert annað hægt að gera nema hlæja að honum hann var svo fullur. Einnig var Ívar í essinu sínu þetta kvöldið og var hann á djamminu framundir morgun, var að skríða á fætur núna klukkan 7 um kvöldið. "Þú varst fullur á Pitstop.... Ferskur"

Er að fara að skrifa ritgerð um efnahagsástand Frakklands. Ætla að bombast í það. Sendið mér sms ef þið sjáið EllaJoð.

Thursday, November 10, 2005

Prufuprófið búið og gekk það vel. Mér tókst að hrista 11 bls framúr erminni í þessu 6 klst prófi um Sterling flugfélagið, þar af voru rúmar 3 sem ég hafði undirbúið áður með þessum frumgreiningum sem alltaf koma sér vel. Búið að vera frí í skólanum síðustu 2 daga og m.a. var hjálpað Óla og Mæju að flytja dótið þeirra inní bíl og síðan var það flutt til Aarhus. Alveg stappfullur flutningabíll hjá þeim af búslóð, eitthvað annað þegar ég flyt útúr minni en þá verður það kannski einn kassi af dóti sem ég tek með mér!

35 dagar og counting einsog crows sem gerðu Mr. jones frægt hér um árið og Stefán Ármann er að covera í söngkeppni F.Su. í þessum töluðu. Ég ætla að spá honum sigri enda gott lag og góður maður. Langar nett að fara enda bara góðar minningar af þessum söngkeppnum, þó sér í lagi síðasta skipti sem ég fór því þá tók ég þátt ásamt 7 öðrum dónum. Vorum villtir með Skímó og Y.M.C.A. í löggu-,slökkviliðs-, smíða- og dónagöllum uppá sviði og lýðurinn trylltist.

Er að fara að skrifa ritgerð um Franska markaðinn nú í næstu viku ásamt hópnum mínum sem er samansettur úr:

Yaroslav: 23 ára Úkraínubúi sem við héldum að væri morðingi fyrsta árið eða alveg þangað til að við heyrðum hann hlæja að eigin bröndurum. Þó að maður skilji ekki brandarann hlær maður samt, því að miðað við hvað hann skrækir og jóðlar hlýtur þetta að vera eðalstöff.

Tenna: ca. 25 ára "dansk pige" sem að hefur bakgrunn úr ferðaiðnaðinum. Stefnir á að vinna í ferðaiðnaðinum eftir námið. Talar ensku með dönskum hreim en annars fer lítið fyrir henni.

Thomas: 28 ára dani sem lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 17. Er ofviti og hagar sér sem slíkur. Spilar Civilization í tímum, raular Star-Wars þemað og fer á geimráðstefnur reglulega.

Alma: Enginn veit í raun hvað hún er gömul en hún er að taka þetta nám í 3 skiptið. Sögur eru um að danska ríkið hafi í samstarfi við skólann ákveðið að hleypa henni í gegn í ár vegna þess hvað "SU-ið" hennar er orðinn of stór kostnaðarliður fyrir danska ríkið (SU er styrkur sem danir í skóla fá). Hún er vanalega skilinn eftir þegar bekkurinn skiptir sér uppí hópa því ómögulegt er talið að vinna með henni. Áður fyrr var hún þó ekki jafn óvinsæl og var henni m.a. hleypt með á örkina hans Nóa.

En þetta er þotuliðið sem ég mun vinna með í næstu viku, gangi mér vel! Annars er maður aldrei sáttur með sinn hóp í svona þar sem maður er mannhatari í eðli sínu.

En ég nenni ekki meiru. Held að enginn nenni að lesa svona fíflalæti um skólann, en þetta er bara það eina sem ég hugsa um orðið. Skólinn og hvað ég er mikið fífl.

Sunday, November 06, 2005

Og lífið heldur áfram. Búið að vera nóg að gera síðustu daga og það róast ekki fyrr en á miðvikudaginn næsta, og það endist þá bara rólegt í 2-3 daga eða svo. En ég kvarta ekki því þá líður tíminn bara hraðar = styttra í jólafríið sem ég hef farið að hugsa aðeins um. Er að fara að taka próf núna á þriðjudaginn sem er svona "hermipróf" einsog skólinn kallar það. Þetta er með sama sniði og "alvöruprófið" sem ég tek í byrjun des. og er ætlað fyrir okkur að kynnast aðeins formi prófsins. Það er þannig að við fáum "case" uppá 30-50 bls 48 klst fyrir prófið sjálft og höfum við þann tíma til að lesa case-ið, undirbúa okkur og svo mætum við í prófið og sitjum í 6 klst og látum gamminn geysa. Núna fengum við 38 bls case um flugfélagið Sterling, sem íslenska eignarhaldsfélagið Fons keypti fyrir rúmu hálfu ári, og FL group svo fyrir 2 vikum síðan. Semsagt "íslenskt" flugfélag með rætur í Danmörku og Noregi. Þannig að núna er maður að undirbúa sig fyrir þetta helvíti.

Liverpool er að vinna á, tóku Aston Villa 2-0 í gær og þokast upp töfluna, enda lítið annað hægt? Peter Crouch er ennþá að stækka, kom inná fékk víti og átti svo smá þátt í seinna markinu líka. Samt er maðurinn framherji og hefur ekki skorað mark ennþá sem er fáránlegt. Freak of Nature. Bæði mörkin í gær komu frá miðjumönnum! Chelsea ætla svo að vinna Manchester United í dag, verður spennandi að sjá hversu stór sigurinn verður.

London calling, djöfull hlakka ég til!
---------------------------------------------------------------------------
Var að koma af enska og þar beið Chelsea lægri hlut fyrir Manchester. Ótrúlegt en satt. Þetta var mesta heppni sem ég hef séð í fótboltaleik, Chelsea voru á tímabili 81% með boltann og áttu meira en helmingi fleiri marktækifæri. Dómarinn var líka ömurlegur og hann kostaði Chelsea sigurinn sem þeir áttu skilið.
Ef ég lít á björtu hliðarnar þá minnkaði þarna bilið milli Chelsea og Liverpool, þannig að ég verð að þakka Rauðu shemale-unum fyrir það. Klapp fyrir þeim. Og Eiður var góður. Klapp fyrir honum.

Wednesday, November 02, 2005

Manchester United hafa nú tekið við Liverpool í því að tapa og tapa og tapa. Liverpool halda áfram sigurgöngunni í Champions League og hafa tekið við Chelsea við að vinna í deildinni, sem hafa tekið við Arsenal við að ganga brösulega.

Skólinn búinn að vera að bæta á sig aðeins. Ég búinn að vera að reyna að saxa aðeins á verkefnaforskotið sem hann hefur á mig og gengur það fínt.

Fékk í dag fullt af skjölum frá Baugi svo ég geti byrjað að kynna mér fyrirtækin í þeirra eigu í Bretlandi og kynnast uppsetningunni á gögnunum sem ég kem til með að vera að vinna með. Allt mjög fræðandi og skemmtilegt finnst mér, gaman þegar þetta tvennt fer saman.

43 dagar í að ég komi til Íslands.

Fáum nýjan leigjanda á morgun. Hann heitir Hreiðar og er okkur velkunnur enda með okkur í bekk. Hann lenti í smá veseni með leigufélagið sitt og ætlar að eyða síðustu dögunum í DK á Knud Hansens vej, þar sem blómin blómstra allan ársins hring. T (eða Tæ einsog Billi segir) er það lítið hérna með okkur þar sem hann býr líka í Aarhus og flytur sig bara vinsamlegast út og notar sófann ef honum vantar gistingu. Allir vinna, nema auðvitað United.

Peter Crouch er 202 á hæð og rúm 75 kíló, ég hélt að það stæði í einhverri bók að það væri bannað?

Sunday, October 30, 2005

Make me rise an hour early

Fyrir rétt rúmu ári síðan átti ég að fara að keppa í handbolta. Ég bomba mér útí íþróttahús og Andreas félagi minn er þar mættur einnig. Við erum tímanlega í því, einbeitingin góð og ekkert stress á okkur. Bíðum eftir hinum strákunum. Þegar klukkan slær í mínútuna sem mæting átti að vera á erum við enn bara tveir að bíða, Guðmundur og Andreas. Finnst okkur þetta heldur dularfullt svo ekki sé meira sagt. En fólk er auðvitað mis-stundvíst einsog það getur verið mishátt í loftinu (Elli Joð vs. the people) og við héldum coolinu. Þegar tíu mínútur liðu í viðbót fórum við að hringja og grennslast fyrir um þessa undarlegu mætingu. Hvað haldiði nema við höfðum verið X-aðir. Vorum fórnarlömb í sjónvarpsþættinum The Jamie Kennedy experiment. Hef aldrei verið jafn hissa á ævinni.......


.... ef við snúum okkur aftur að raunveruleikanum þá var þetta Daylight Savings Time að verki, eitthvað sem við Íslendingar þurfum ekki að hafa áhyggjur af því við erum einfalt fólk með einfalt tímasystem. Án þess að hendi væri veifað færðist tíminn aftur um klukkutíma, sem er soldið fyndið finnst mér. Í dag breyttist tíminn svo aftur hjá mér, færðist afturábak (einsog Óli grís þegar hann datt af baki) um einn klukkutíma. Þetta veldur því að ef maður stillir ekki klukkuna sína þá mætir maður klukkan 7 í skólann á morgun. Með líkindareikningsmódelinu sem Ívar smíðaði úr bréfaklemmum reiknaði ég út að það eru 93% líkur á að Ívar eigi ekki eftir að frétta af þessari breytingu, því ekki mun hann frétta það frá mér svo mikið er víst. Kannski kuldi að setja þetta inná síðuna mína, en hann les hana hvorteð er ekki reglulega. Ég mun segja ykkur frá hvernig fer með þetta alltsaman! Er Ívar músin sem læðist....

Átti leik í gær, töpuðum naumlega, með aðeins 3 mörkum. Þetta er ekki alveg að smella hjá okkur, erum auðvitað fáir og ekki með skiptimenn þannig að í seinnihálfleik erum við að missa aðeins kraftinn sem er óþolandi. Liðin sem við erum að spila á móti hafa vanalega nóg af ferskum löppum á bekknum og keyra á okkur í seinni hálfleik hraða miðju aftur og aftur til að þreyta okkur. Það hefur virkað í síðustu 2 leikjum. En ég hef verið að spila helvíti vel, hef verið leikstjórnandi og skytta og setti 7 í gær og var virkilega sáttur með spilamennskuna, opnaði vörnina oft og átti ekki færri stoðsendingar heldur en mörk. Núna eftir að hafa verið markahæstur í 2 leikjum og spilað vel er ég farinn að banka vel á dyrnar hjá aðalliðinu, vona að þjálfarinn gefi tækifærið núna því ekki á ég langan tíma eftir hérna.

Lærdómurinn er að öskra á mig núna... endilega kommentið, alltaf gaman að heyra í fólkinu á götunni. Talandi um fólkið á götunni. Konur eru að berjast fyrir því að fá hærri laun, vilja svo taka upp kvennafrídag. Þarf maður ekki að mæta í vinnuna til að fá borgað? Pæling. Og líka hvað yrði gert ef karlar myndu hætta vinnu og færu í skrúðgöngu með skilti og 17 júní þyrlur og flautur og myndu taka upp karlafrídag? Er það kannski karlremba?

Thursday, October 27, 2005

Búinn að gleyma því að ég sé með svona bloggsíðu. Það er búið að vera mikið í gangi og mikið að gera síðustu daga. Kom aftur til Kolding aðfaranótt mánudags um hálf fimm leytið og vaknaði ferskur daginn eftir bara til að komast að því að það er nóg að gera í skólanum næstu 50 dagana eða svo. Ekki nóg með það heldur þarf ég að bomba mér útúr þessari blessuðu íbúð minni og selja allt mitt, ekki tek ég það með mér heim eða til London allavega, og síðan er ég kominn á fullt að finna mér einhverja brjálaða íbúð eða gott herbergi í central London þar sem allir ætla að koma í heimsókn og skemmta sér á minn kostnað ;) Já ég er ekki búinn. Einnig hef ég verið í sambandi við Baug um að koma mér í gang og kynna mér ýmsa hluti svo ég fitti betur inní jobbið, og það er alveg ný veröld að opnast fyrir mér þar. Þetta er einsog að vera í tvöföldu námi nánast, en reyndar hef ég mikinn áhuga á þessu og því bölva ég þessu ekki einsog hinu. Og dömur og herrar, ekki búinn ennþá. Handboltinn er ennþá með sínar 3 klst á dag (5 klst í dag reyndar) og er nóg af leikjum framundan sem ég verð að reyna að fitta inní prógramm af prófum og verkefnavikum.
Var að koma frá Aarhus þar sem vængbrotið lið okkar tók á móti heimamönnum. Það eru mikil meiðsli hjá okkur og leikstjórnandinn okkar var víðs fjarri, með Finnska landsliðinu að toura. Jæja, við tókum það til bragðs að láta þjálfarann spila hægra hornið, en hann er gömul kempa, og þá er gömul lykilorðið því hann er allt nema lunkinn lengur. Við erum að tala um að þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í boltanum var Jesú frá Nasaret að berjast um sömu stöðu og hann, með alveg deadly vinstri hönd hefur maður heyrt. Sneri hann bakvið eyrað á markmönnunum. En aftur í leikinn. Við byrjuðum vel og héngum í þeim með aðeins einn skiptimann á bekknum, nota bene markmann! Seint í fyrri hálfleik fékk þjálfarinn okkar beint rautt spjald í stöðunni 16-14 fyrir þeim og því þurfti að henda varamarkmanninum í treyju og inná! Jæja við héngum í þeim þar til í byrjun fyrri hálfleiks þegar þeir fóru að taka mig og skyttuna okkar úr umferð og við það riðlaðist spilið og þeir unnu að lokum með 5 mörkum, 32-27 í Atletion Arena í Aarhus. (Hvað eru mörg A í því?) Ömurlegt að tapa, en ég átti góðan leik, var markahæstur með 8 og böns af línusendingum sem hefðu látið Óla Stefáns og éta hattinn sinn. Svo er ég líka hógvær.

Allavega margt í mörgu þessa dagana og ekkert að fara að róast neitt. Þemadagar, próf, Fifa 2006, handboltaleikir og Londonundirbúningur á dagskránni.

Bið að heilsa öllum og það var snilld heima á Íslandi, gaman að geta hitt svona marga. Sjáumst hressari en Ómar Ragnarsson á prózaki með grænan hlunk í trúðabúning um jólin. Toppiði það!

Tuesday, October 18, 2005

Homecoming

Djöfull hefur allt verið á botni undanfarið eftir að ég kom heim. Lífið bara helltist yfir mig. Á laugardagskvöldið var ég plataður heim til Sólrúnar systur og ætlaði Óskar að sýna mér nýju jeppadekkin sín inní bílskúr. Þegar hurðin inní bílskúrinn opnaðist og ég steig inn fékk ég FEITT "SURPRISE" í andlitið frá minnst 20 manns sem voru komin til að heilsa uppá mig. Vá hvað ég bjóst ekki við því. Það tók mig allavega einn og hálfan tíma að koma mér í gírinn að fara að hitta alla og skemmta mér með þeim í frábæru partýi. Takk kærlega allir sem létu sjá sig og þeir sem voru svo miklir snillingar að skipuleggja þetta. Bestu vinir í heiminum, og Sólrún og Óskar fá endalaust goodwill frá mér fyrir allt saman.

Svo eftir þetta hef ég verið í tómum leiðindum, margt mjög óvænt og óskemmtilegt komst uppá yfirborðið og sumt fólk hefur ekki komið vel fram svo minnst sé nú sagt. En það reif mig þó örlítið upp að ég fékk góðar fréttir frá London. Ég fékk vinnu hjá Baugi Group í London í janúar, og verð ég þar framí júní að öðlast reynslu og skrifa lokaritgerð. Í London er skrifstofa sem ber heitið "UK Investments" og sér um fjárfestingar Baugs á Bretlandsmarkaði sem hafa verið umtalsverðar á síðustu árum. Ég er semsagt heppinn í spilum en óheppinn í ástum. Hélt alltaf að ég væri bæði, en það var kannski bara vitleysa í mér. En þetta er snilld og betra tækifæri hefði ég ekki getað hugsað mér, nú er bara fyrir mig að fara út og gera sem mest úr því. Standa undir væntingum hjá þeim sem gefa mér þetta tækifæri. Svo fór ég í heimsókn til Binna og Rönnu í Þrastarimann í gærkvöldi, aðeins að sjá framaní þau og þau eru alltaf sömu snillingarnir. Ég held það sé erfitt að finna betra fólk allavega og þessvegna alveg sjálfsagt að halda sambandi við þau. Sátum og spjölluðum í fleiri klukkutíma um allt milli himins og jarðar.

En á dagskránni er Opna Thule mótið í Fifa 2006 á fimmtudaginn og svo Airwaves á föstudaginn. Veit ekkert með laugardaginn, gæti orðið slakur eða þá æstur, en ég hallast að fyrri kostinum þar sem löng "heim"ferð er á sunnudeginum. Þá er það Borg óttans sem tekur á móti mér með flugeldaverksmiðjurnar og Tyrkina.

En takk aftur allir fyrir partýið, gleymi þessu seint eða aldrei. Sjáumst á röltinu.

Thursday, October 13, 2005

1, 2, Selfoss

Er á leiðinni heim í dag. Tek lest klukkan 17:30 og fer í loftið rétt fyrir 23:00 í kvöld. Verð lentur um miðnætti í Keflavík og verður móttökunefnd skipuð Sólrúnu og Óskari, en til gamans birti ég mynd af þeim. (Úr myndasafni)

Svo verður væntanlega tekið á því á allan mögulegan og ómögulegan hátt meðan maður verður á landinu, sem verður ekki mikið af á næstunni, og því hvet ég sem flesta að skríða útúr skelinni næstu vikuna og heilsa uppá kallinn.





Hef heyrt því fleygt fram að Opna Thule mótið verði haldið á næstunni og er skráning hjá Ella Joð. Elli búinn að vera að æfa sig á fullu síðustu daga einsog hann gerir fyrir öll Thule mót bara svo hann sé 100% öruggur um að vinna, sem er svo ekki nema svona 12% öruggt ef bara ég mæti. Til gamans birti ég mynd af Ella Joð. (Úr myndasafni)

Svo verð ég með gamla símanúmerið mitt...

Góðir Hlutir. Sjáumst þar.

Tuesday, October 11, 2005

Þriðjudagur til mæðu

Djöfull eru þriðjudagar leiðinlegir. Mér finnst mánudagar vera föstudagar samanborið við þriðjudaga. Ef að þriðjudögum yrði sleppt úr og haft t.d. tveir laugardagar í staðinn held ég að miðvikudagar yrðu þá alveg skelfilegir í staðinn. Það er ekkert hægt að gera í þessu. Samt yrði ég sáttur við fyrrgreinda breytingu ef hún myndi þýða 2 umferðir af enska boltanum á tveimur dögum.

Ég var að horfa á eitt það fyndnasta sem ég hef séð síðan þriðjudaginn í síðustu viku. Þetta var Comedy Central "Roast" og var verið að steikja Pamelu Anderson í þetta skiptið. Þetta virkar þannig að góður slatti af grínurum og frægu fólki er samankomið frammi fyrir fullum sal af áhorfendum í afslappaðri stemmningu og svo stíga grínararnir og fræga fólkið upp til skiptis og koma með þá köldustu og illskeyttustu brandara á hvorn annan sem ég hef heyrt. Og auðvitað var Pamela Anderson aðalviðfangsefnið og var hún þarna líka og tók á móti öllu saman. Með stóru brjóstin auðvitað.

Annars er allt að gerast. Ég og Ívar höfum nýlokið við að setja saman níð á vini okkar sem sömdu níðinn "Mosi & Mörri" í byrjun sumars. Þetta hefur tekið langan tíma enda ekkert til sparað og gestasöngvarar á heimsmælikvarða, ótrúlega hæfileikaríkt tónlistarfólk sem kom að verkinu. Ég mun taka verkið með mér heim og spila fyrir áhugasama í völdum partýum núna um helgina. Hjartveikir og viðkvæmir eru sérstaklega velkomnir.

Elli aka Sprelli aka Örvhenti uppvaskarinn aka Appollo 13 (ekkert nema mistök) aka Smjörvi aka Herra Landbúnaður 1992 aka Dr. Martins aka Dressmanslysið aka ElliRapp aka John Paintball aka Helförin aka Séra Kriki aka Barnastjarna suður Selfoss '86-'87 og -90 er hetja vikunnar því hann er framhaldsskólameistari í Litabolta aka paintball aka þetta er orðið ágætt í bili. Hann er því á leiðinni til London að keppa, kæmi mér ekki á óvart þó hann yrði skotinn í subwayinu þegar hann væri að fíflast með litaboltabyssuna á lofti. Vona bara að hann fari varlega þessi elska. Skál fyrir Ella.

Svo langar mig að vita það ef fólk er að safna einhverju? Hreiðar vinur minn er t.d. að safna límmiðum og öllu sem hann kemst yfir með Ace of Base. Hann á mikið af körfuboltamyndum og forláta plakat af Herberti Guðmundssyni sem hann er til í að láta í skiptum. Það gengur enginn frá svoleiðis tilboði.

"Can't walk away, oh no no no..."

Sunday, October 09, 2005

"They call me Superman...

... leap tall hoes in a single bound, I'm single now. Got no ring on this finger now, I'd never let another chick bring me down in a relationship..." Yea right.

Þetta er búin að vera meiri helgin. Á fimmtudag var skóli og handbolti og svo heim að leiðast. Á föstudaginn fórum ég, Hreiðar og Ívar á Jensen í veislumat og röltum svo í Noma-partý (margmiðlunarskólinn í Kolding) en þar var mjög góð stemmning almennt og fólk vel í djammgírnum. Ég og Hreiðar vorum hinsvegar í einhverjum aulafílíng og í hvert skipti sem partýið æstist upp flúðum við inní eldhús, en það vildi aldrei betur til en svo að þá mynduðust alltaf eldhúspartý sem við þurftum svo að flýja líka. Klukkan 12 röltum við svo heim sáttir og létum Ívari það eftir að halda uppi heiðri Business-skólans í þessu partýi. Enda kandídat sem við máttum vera stoltir af.
Á laugardaginn vaknaði ég hress og ferskur og fór á lyftingaæfingu með honum eiturhressa Thomasi Munk-Andersen, leikmanni Skanderborg með meiru, og við félagarnir tókum aldeilis á því. Ég er ekki frá því að þetta sé eitt besta forvarnarmeðal sem ég veit um. Eftir 2 tíma af þreki og lyftingum skreið ég heim alveg orkulaus. Fann þó orku í að taka strætó á enska pöbbinn og horfa á England - Austurríki, fékk mér öl og lummu og svo heim aftur. Alveg útúrkeyrður bombaði ég mér uppí rúm, horfði á Freddy got Fingered sem er ein versta/besta mynd sem ég hef séð síðasta hálfa mánuðinn.
Í dag tók ég daginn snemma, um 10 leytið var ég rocksteady á fótum, fór útí búð að versla og svo bombaðist ég í hlaupagallann og tók sprettinn útí íþróttahús, lyfti þar í ca. klukkara og hljóp svo til baka. Ógeðslega gott plan hjá mér. Eftir þetta var ég góður og orkulaus og gerði ekki meira í dag nema hanga í tölvunni og horfa á handboltaleik í sjónvarpinu. Einhæfi gaurinn.

En annars er ég alveg að smella í Ísland. Hlakkar orðið mikið til enda er Danmörk að virka meira og meira einhæf á mig. Eða þá að ég sé að verða meira og meira einhæfur. Vona að þessi ferð verði góð, ætla að hitta alla vini og fjölskylduna, kíkja á Airwaves og halda mig utan við allt rugl takk fyrir. Er að verða nettgeðveikur stundum. Einhverskonar Patrick Bateman er að finna sér bólfestu í mér, djöfull verð ég góður þá.

Ætla að sökkva mér í lærdóminn og ruglaðar æfingar þangað til 14:00 á fimmtudaginn, þá fer ég heim úr skólanum, pakka og bombast útá Kastrup lufthavn. Úff ég er farinn að sjá Ísland í hyllingum...

Wednesday, October 05, 2005

Aldi ævintýrið

Lenti í ómannlegri reynslu í dag. Á leiðinni heim úr skólanum kom ég við í Aldi, sem er svona semi Bónus Danmerkur, og afþví að ég er sérstaklega viðkvæmur þessa dagana fyrir því að nenna ekki að elda, þá keypti ég mér svona örbylgjurétt. Hann var í flottum pakka svo ég lét reyna, eitthvað kjúklinga-hrísgrjóna combó sem lofaði virkilega góðu. Íí kvöld sveif á mig þessi tilfinning sem kemur nokkrum sinnum á dag, vanaði mat, og ég hugsaði: " Yess, ég á örbylgjumöns í ísskápnum, þarf því ekki að eyða nema 10 sekúndum í að henda þessu inní örbylgju og svo 3 mínútum seinna er matur." En fjandinn, þetta var eitthvað funky þegar ég smakkaði fyrsta bitann. Ef þetta tengdist kjúkling á einhvern hátt þá var þetta Colonel Sanders sjálfur sem ég var að éta. Smakkaðist einsog gamall maður. Þessi fyrsti biti varð líka síðasti bitinn og ég gerði Ívari þann óleik að leyfa honum að smakka líka, hann var á sama máli og ég hvað varðaði hugsanlegt innihald. Þegar betur var að gáð sá ég á pakkanum að það þurfti ekki einusinni að geyma þetta í kæli. Ég meina, hvaða ógeðskjúkling þarf ekki að geyma í kæli, en geymist samt í rúmt ár uppí hillu! ohhh, fæ ógeðshroll.
Allavega þá fer ég að hugsa minn gang núna hvað varðar mataræðið. Ég er farinn að borða úti einusinni á dag til að forðast eldhúsið, og meirasegja er ég kominn á það stig að það er of mikið maus að þurfa að hella morgunkorni í skál og mjólk yfir, ég einfaldlega hef ekki þolinmæðina í það. En ég sver það, eftir ævintýri kvöldsins ætla ég að taka mig til, yfirstíga allar hindranir og elda mér lasagna á morgun (það geymist líka í ísskáp svo ég get hent því í örbylgju seinna meir, enginn tími, hámarksánægja).

Annars er minnst að frétta, tognaði á maganum á handboltaæfingu, það hefur aldrei komið fyrir mig áður en er fjandi óþægilegt. Ég týndi lyklinum af hjólinu mínu svo það stendur læst fyrir utan skólann. Kolbrún systir er 25 í dag! Sú fyrsta af systkinunum til að ná þeim árangri. Ég komst að því að éger ekki búinn hérna fyrr en 15 des, upprunalega dagsetningin var alltaf 2 des, það er bömmer vikunnar. Ég er hinsvegar að koma heim eftir rúma viku og þá vil ég sjá sem flesta glaumgosa í sparidressinu. Búið!

Monday, October 03, 2005

...

Búinn að vera í partý og afmælisstandi síðustu daga, skólast smá, spila handbolta hvern einasta dag og lyfta og er maður sannarlega farinn að sjá árangur. Semsagt árangurinn er ekki að láta á sér standa. Það er gott.

Ætla að setja inn myndir frá Partýinu okkar sem var frábært í alla staði. Þema kvöldsins var "Selfoss" og voru menn brúnir á hörund, í rétta gallanum með hnakka og sólgleraugu. Skímó spilaði sín allra vinsælustu lög og Doddi fékk fallegt strap-on ásamt forláta leðurgrímu frá okkur félögunum. Núna á Doddi eitt sameiginlegt með Batman, og það er ekki það að báðir eiga leðurgrímu! Einhverjar ágiskanir?

Maður er farinn að leita sér að íbúð í London núna, reyna að finna einhverja semi-central á góðu verði, en það er nánast ómögulegt. Erum að tala um kannski 150-200 þúsundkall á mánuði fyrir góða íbúð á góðum stað fyrir mig og Hreiðar, en við ætlum að búa saman og njóta þess hvað við erum báðir skemmtilegir og frábærir náungar í alla staði.

En frábærar fréttir af henni Sally, hún var að eiga lítinn strák í dag og vil ég óska henni og Nirði innilega til hamingju! Fór létt með þetta stelpan. Gaman að segja frá því að hún er sú fyrsta úr gamla bekknum okkar til að eignast barn, endilega leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér, en ég held að það sé alveg solid. Ekki hefði mér dottið það í hug fyrir nokkrum árum síðan að Sally myndi hefja leikinn. Ég meina ekkert illa meint, myndarstelpa og allt það, en samt voru aðrar týpur líklegri. En stórglæsilegur árangur, og verður gaman að kíkja á fjölskylduna þegar tækifæri gefst. Svo er Margrét einnig langt komin, en svo skemmtilega vill til að ég og Þórir erum frændur svo þegar þau eiga mun það verða lítill frændi!! Snilld snilld snilld.

Vá maður, allt í litlum börnum núna. Hvenær ætli komi að manni sjálfum? Er kannski rétt að taka eitt skref í einu og redda sér konu fyrst, já ég held það svei mér þá!

Sjáumst þá...

Thursday, September 29, 2005

Mausið - Með Gumma E!

Einsog Jói Fel! Allavega ætla ég að fylgja fordæmi Bunny Girls og setja inn gómsætar uppskriftir af hinu og þessu matarkyns reglulega, því einsog flestir vita er ég algjör refur þegar kemur að eldamennsku.
Ég ætla að byrja á ítalskri matargerð einsog hún gerist best, og hvað er þá betra en búðarpizza.

Hráefni:

Búðarpizza
Dressing (fyrir atvinnumönnarana)

Leiðbeiningar:

Takið pizzuna útúr frystinum og tætið af henni umbúðirnar, en ekki henda þeim, þær koma að góðum notum seinna. Hendið pizzunni á disk (samt ekki of harkalega, pizzan er væntanlega glerhörð úr frystinum) og bombið henni í rúma mínútu inní örbylgjuna. Á þessari mínútu er gott að skrifa sms, athuga hvað er í sjónvarpinu eða spila vasabilljard. Pizzan er armakrikavolg loks þegar maður þvælir henni útúr örbylgjunni og þá er næsta verk að týna allt grænmeti af henni einsog sveppi og papriku, því ekki vill maður borða frá dýrunum! Þá koma tættu umbúðirnar sér vel því maður fleygir dýramatnum á þær og svo hendir maður öllu saman í ruslið, snyrtimennskan í fyrirrúmi. Ef þið eruð vön eldamennsku, sem ég er ekki, hafið þið örugglega forhitað ofninn, en það er algjörlega óþarfi. Pizzan tekur þá bara aðeins lengri tíma en það sagði líka enginn að þetta væri fljótlegt. Stillið ofninn á svona 100-250 gráður og hafi pizzuna í miðjum ofninum eða efst eða neðst í sirka hálftíma, og þá er ég að tala um svona plús mínus 15 mínútur allt eftir því hversu frosin pizzan var og hversu vel maður vill baka hana. Eftir allt þetta leiðindamaus er pizzan loksins tilbúin og þá er málið að úða dressingu yfir hana alla einsog það sé sjálfstæðisflokkslykt af henni og dressingin sé það eina í heiminum sem geti látið hana fara. Svo er besti tími dagsins kominn en það er mönstíminn en þá fær maður að njóta alls erfiðisins sem á undan gekk og ég segi bara gjöriði svo vel!

(Undantalin atriði voru framkvæmd af atvinnumönnara og er ekki mælt með að fólk reyni þetta heima)

Wednesday, September 28, 2005

Allir efasemdarmenn...

Lesið þetta og uppfræðist um stöðu mála á Íslandi í dag.

Sunday, September 25, 2005

Handboltinn rúllar

Í gær var íþróttadagur. Liverpool byrjaði á því að gera stórmeistarajafntefli við eitt færasta knattspyrnulið stjörnukerfisins, Birmingham, og eru þeir því 1 stigi nær titlinum. Við höfum ekki enn tapað leik á seasoninu, einsog t.d. Man Utd, en höfum þess í stað gert enn fleiri jafntefli. Erum því sennilega jafn góðir og mörg önnur lið.

Úr einu í annað. Eftir Liverpool-flugeldana var stefnan tekin á handboltaleik þar sem Kolding vann GOG örugglega og strax á eftir spiluðum við í 2. liðinu. Við áttum ágætis dag, töpuðum reyndar eftir spennandi lokamínútur en þetta var hörkuleikur og barist til síðasta blóðdropa. Kempan er orðin fyrirliði og ég reyndi að leiða mína menn áfram á íslensku hörkunni og heppnaðist það vel. Vörnin var að smella vel saman og við lömdum andstæðingana helv. vel ef þeir hættu sér of nærri. Mér tókst t.d. að senda einn útaf meiddan eftir að við lentum í samstuði og svo sló ég einn beint í andlitið og fékk fyrir það písmerki frá dómurunum. En það var afturámóti sóknarleikurinn sem var okkar akkilesarhæll, skoruðum ekki nema 23 mörk, þar af ég 3, og voru sóknaraðgerðirnar fremur einhæfar og oft á tíðum byggðar á einstaklingsframtaki. Ég ætla að skella því á Finnann í liðinu sem stjórnar spilinu, hann hefur átt betri daga kallinn.

Hef ekkert meira að segja, heyrumst, og sjáumst bráðlega!

Saturday, September 24, 2005

Póker-Kónger

Spilaði póker í gær við ýmsa merka menn og konur. Grunur hefur læðast að mér síðustu skipti sem ég hef spilað póker, grunur sem styrkist meir og meir með hverju spilinu og í gær held ég að hann hafi verið staðfestur. Ég er lélegur í póker. Ég fæ léleg spil, og spila þeim illa út. Ég fer illa með spilapeningana mína, ég fer útí gálaus veðmál sem stjórnast einungis af ofurtrú minni á sjálfri mér og tvistunum og fimmunum sem ég hef á hendi hverju sinni. Í gær tókst mér að verða sá fyrsti til að tylla mér í "the losers lounge," for the 4th consecutive time! Losers lounge er semsagt þegar þú hefur tapað öllu þínu og átt vinsamlegast að yfirgefa pókerborðið og setjast á stað þar sem þú getur ekki orðið öðru fólki til skammar. Og þetta er orðið þreytt því ég sit alltaf einn þar í dágóðan tíma áður en næsti spilari joinar. Í gær tapaði ég öllu mínu, sat svo í losers lounge, fékk svo undanþágu til að koma aftur inní spilið, en tapaði öllu mínu aftur og fór þá heim að sofa. Mínum tíma var betur varið í það.

Til að láta mér líða betur get ég auðvitað alltaf sagt að þetta sé nú bara spil og maður þurfi ákveðna heppni til að fá góð kort o.s.frv. En í rauninni held ég að það sé ekki málið. Tökum dæmi, Jói fitubolla tapar alltaf í fótbolta í frímínútum í skólanum. Sama hvort það séu stóru eða litlu frímínútur, þriðjudagur eða fimmtudagur, alltaf tapar Jói feiti. Hann gæti lifað í voninni um að þetta hafi verið tóm óheppni, dómarinn var óhliðhollur hans liði, slæmt dagsform, vont nesti og fleiri afsakanir sem Jói gætu fundið uppá. Myndi það samt ekki vera snyrtilegra ef hann myndi bara átta sig á því að hann er lélegur, þetta sport er ekki alveg að detta fyrir hann og hann ætti að eyða tíma sínum í eitthvað annað?

Þó að ég sé lélegur get ég samt aldrei viðurkennt það að einhver annar sé góður í póker. Allir þeir sem vinna mig vinna bara útaf því að þeir voru heppnir. Heppnir með spil, heppnir með sæti eða bara "Heldig Mogens" einsog daninn segir. Ég tapaði útaf því að ég er lélegur, en sá sem vann var heppinn. Þá er ég sáttur.

Og ef þið sjáið mig brosa eftir gjöfina er það ekki því ég er með góð kort. Þvert á móti.

Thursday, September 22, 2005

Rúst

Fór til Þýskalands í gær. Keypti mér birgðir af gosi, kassa af bjór og smá dooley's og toppaði svo allt með því að smella mér á 10 doritos. Furðulegt að það skuli ekki vera til í Danmörku? Þannig að núna er það bara möns og aftur möns nætu daga, "and I think I like it!"

Bombaði mér á nýja Sigurrós - Takk, og hann er trylltur. Þeir eru ekki að valda vonbrigðum á þeim bænum, eru að gera það mjög gott með þessari plötu, 8 sæti á Emmy var ég að heyra. Gott mál. Búinn að vera fan svo lengi sem ég man eftir mér. Hlusta ennþá á Ágætis byrjun meðan ég sofna á kvöldin, hann er sígildur.

En þá að kjarna málsins, ég nenni ekki að vera í einhverju small talk endalaust. Tilgangur þessa pistils var að rústa Eyþóri, byggðarendaslysinu einsog þeir kalla hann í rokkbransanum. Maðurinn er náttúrulega alveg útúr kortinu. Ég tala fyrir mína hönd, ásamt allra sem ég þekki, þegar ég segi að Eyþór lifi í blekkingu. Þið hafið kannski séð hann fullan, Tungnastrákinn, á pakkaranum veltandi um barstólana, ljúgandi að ljótu stelpunum að hann sé frá Nígeríu, og að reyna að telja sér trú um að hann sé sterkari en ég! Eitt sinn á Selfosskvöldi vorum við félagarnir staddir útí pylsuvagni og Eyþór byrjaði: "Ég er frá Nígeríu, splfifspf, Gummi, ég er mikið sterkari en þú auminginn þinn" og hvað haldiði að hafi gerst? Eftir rúmlega hálfrar sekúndu átök endaði Nígeríski rokkarinn inní blómabeði stoltinu minni. Eftir þessa flengingu hefur hann þó ekki hætt yfirlýsingunum og er nú svo komið að ég sé mér leik á borði með að skora hann á hólm. Og ekki láta ykkur bregða ef hann skorast undan.

Ég hef í samráði við ýmsa mestu kraftajötna landsins ákveðið nokkrar greinar sem við munum spreyta okkur í:
Hryggspenna
Bóndabeygja
Sjómann
Krókur
Krumla
Íslensk glíma

og fleiri þrautir munu bætast í hópinn með tímanum og endanlega skera úr um að ég sé betri maðurinn og muni vinna.

Hvað ætlarðu að gera Eyþór?

Tuesday, September 20, 2005

Ég var tekinn

Ég var klukkaður! Kom algjörlega í bakið á mér einsog samkynhneigður karlmaður. Þetta hefði aldrei gerst ef þetta hefði verið svona "klukk" einsog í eltingaleik, því allir vita að ég hleyp einsog vindurinn. En takk Anna Guðrún, ég á einn inni hjá þér, man þetta!
Skilgreiningin á "klukki":

"Klukk er internetfár sem tröllríður bloggheimum þessa klukkutímana og felur í sér að viðkomandi fórnarlamb klukks á að skrifa fimm handahófskennd persónuleg atriði (sem hinn sótsvarti almúgi vissi ekki fyrir væntanlega) og klukka svo nokkur stykki bloggara til viðbótar."

Hérna fáiði það.


1. Ég þoli ekki neitt sem viðkemur eldamennsku, ef ég myndi ekki þurfa að borða myndi ég sleppa því. Oftar en ekki panta ég mér mat því þegar ég kem heim af æfingum á kvöldin þá er það síðasta sem ég nenni að fara að mausa e-ð ógeðslegt í eldhúsinu. Það er alveg á hreinu að konan mín í framtíðinni VERÐUR að vera liðtæk í eldhúsinu! (Eða kunna á símann.)

2. Mér er svo heitt á næturna að vanalega endar sængin alltaf á gólfinu. Ég hef aldrei skilið þetta almennilega, ég bara get ómögulega sofið með sæng því þá get ég ekki sofnað útaf hita. Merkilega ómerkilegt!

3. Eins leiðinlegt og mér finnst að elda þá elska ég að mönsa. Ég mönsa nammi, kex, stundum snakk og bara allt það sem hægt er að hafa við höndina án nokkurrar fyrirhafnar. Ég er sennilega einn af 5 bestu mönsurum sem ég veit um ;)

4. Á yngri árum var ég algjört bully. Ég níddist á öllu sem dró andann og var bæði stríðnispúki og hrekkjusvín. Í 8.bekk fór ég til skólastjórans hvern einasta dag fyrstu 3 vikurnar, síðan bara ca. 1 sinni í viku. Ég veit ekki hvað kom yfir mig en í dag er ég sallarólegur og stríði ekki nokkrum manni (yeah right!)

5. Ég er fíkill í hreyfingu. Ef ég fer ekki á æfingu á hverjum degi verð ég hálf-ofvirkur, einsog ég sé með orm í rassinum. Ég iða allur og líður ekki vel fyrr en ég hef svitnað ágætlega og fengið mína útrás, öskrað og bölvað, sparkað í einhvern eða keyrt einhvern niður í handbolta. Ótrúlegt hvað maður fær mikla útrás í handbolta, maður getur virkilega verið fantur og djöflast í andstæðingnum, hrint, rifið, klipið, slegið, olnbogað létt í þindina og allt í góðu... Djöfull elska ég sportið!

Ég ætla hér með að nota tækifærið og klukka þá Cuntjuice bræður mína, Ella Joð, Sibba og Ívar Atlason, ásamt Brynjari Bergsteinssyni og gamalli skólasystur, Höllu Kareni. Til hamingju! Mikið verður þetta forvitnilegt!

Monday, September 19, 2005

Klakinn, Helgin og Kallinn.

Klakamótið var um helgina og kallinn var þar.Vá! Djöfulsins snilld. Ég get ekki reynt að lýsa því sem átti sér stað með orðum en ég skal reyna: Fótbolti, Álaborg, 200 Íslenskir karlmenn, ótæmandi áfengisbirgðir, borg óttans á staðnum, rugl, vitleysa, taxar, besta gleðigata Danmerkur, bjór á 10 kall, skot á 10 kall, dömur á 0 kall, dónadansar alla nóttina, sveitt stemmning, diskóljós, "vi er röde, vi er hvide", laugardagskvöld, hvanndalsbræður að skemmta, besta skemmiatriði sem ég hef séð, hló frá mér lífið, 3faldur dooley's, bjór,skot,bjór,skot, lumma, gottgrín, miðbærinn bombaður, sunnudagur, 2 tíma svefn, leikur í undanúrslitum (já við erum góðir), erum rassaðir af liði sem svaf í 13 tíma hjá mömmu, allir sáttir við helgina, náðum í markaskorarann sem var heppinn og svaf niðrí bæ, sveittur kebab, lestarferð þar sem sofið var í öllum ómögulegum stellingum, vaknað með hálsríg, taxi heim, sturta, Hreddasamloka, colalight, MSN, Diablo og svo draumaland.

Ef fólk vill nánari upplýsingar verður það að sætta sig við það að þetta er algjörlega tæmandi listi hjá mér, get ekki lýst þessu betur. Helgin fær 9 kebaba í einkunn og 3 skammta af fröllum, af 10 mögulegum. Það sem dró hana niður er það að það eru aðeins 2 taxar í allri Álaborg og að mannslíkaminn virkar þannig að ef maður níðist áhonum, drekkur, spilar 160 mínútur af fótbolta, borðar óhollan mat og sefur í 2 tíma situr það í manni. Ég get sagt það með góðri vissu að ég misbauð mínum algjörlega. Fór svo á handboltaæfingu í dag og lukkuhjólið er með mér í liði einsog alla aðra daga ársins, það var þrek sem Satan stjórnaði samviskusamlega. Mér til furðu stóð ég mig einsog sönn kempa og er ferskur einsog HalimAl í boltalandi IKEA núna eftir púlið. (myndskreytið)

Núna framundan er lítill skóli, mjög þunn stundataflan hjá mér, handbolti og stífar æfingar þar sem ég ætla mér að komastí sama form og Arnold Scwartzenegger var í þegar hann vann Herra Alheim 5 sinnum í röð. Til að gera það þarf ég að taka kálfaæfingar út vikuna. Svo er ég byrjaður að spila Diablo 2 sem er ekkert merkilegt nema fyrir þær sakir að hann er tímaþjófur og hef ég aldrei þorað að byrja útaf skólanum. En núna tek ég skólann og hef samt tíma fyrir hlut sem ég veit að mun skila mér engu í lífinu. Magnað, eitthvað annað en söngvarinn í Á móti sól.

Er hættur núna, bráðum koma myndir frá Álaborg, og ég vara fólk við að þær eru rosalegar!!!

Tuesday, September 13, 2005

Hugsun

Hafiði einhverntímann ákveðið að standa með einhverri persónu í gegnum hvað sem er? Þá er ég að tala um súrt og sætt, góðar stundir, erfiða tíma og allt það sem lífið hefur uppá að bjóða. Hafiði einhverntímann verið slegin niður af þessu sama fólki en staðið aftur upp og haldið í þá trú að þetta gerist aldrei aftur? Að þetta sé aðeins einstakur atburður sem hafi átt sér stað útaf sérstökum aðstæðum sem hafi gerst á sérstökum tíma og eftir allt saman sé þetta sérstök persóna sem maður vilji ekki missa. Lífið sé betra með persónunni en án hennar. Ýmislegt sem maður hugsar.
Þegar fólk veldur manni vonbrigðum, særir mann og kemur illa fram oftar en einu sinni og jafnvel oftar en tvisvar þá kemst maður ekki hjá því að hugsa með sér: “Hversu marga sénsa á ég að gefa?” Hvar dregur maður mörkin, hvar er þessi lína sem má ekki fara yfir? Og hver og einn hefur sín viðmið og gildi og það er mikilvægt að þau séu skýr. “Hérna dreg ég mörkin!”
Var það ekki Biblían sem sagði að maður ætti að bjóða hinn vangann, en á sama tíma að maður ætti að koma fram við náungann einsog maður vildi láta koma fram við sig. En hvað gerist þegar maður hefur boðið fram báða vangana og komið framvið náungann einsog konung (eða drottningu) en samt er komið framvið mann einsog hund. Einsog sjálfsagðan hlut sem skríði tilbaka í hvert skipti sem maður hendi honum frá sér. “Hurt me once, shame on you. Hurt me twice, shame on me.” Er þá ekki rétti tíminn til að standa upp, þakka fyrir sig og láta þetta fólk heyra fortíðinni til. Það er nóg af fólki og tækifærum í heiminum án þess að maður hengi sig á eitt sérstakt. Hver er sinnar eigin gæfu smiður og örlögin er eitthvað sem hver og einn skapar sér. Maður þarf ekki að “sætta” sig við neitt.

Endilega forðist allt óþarfa kjaftæði og rugl. Lífið er betra án þess.

Tuesday, September 06, 2005

Þá fer þetta að smella...

Ekki nema sólarhringur þar til maður verður staddur í London. Er orðinn frekar spenntur en um leið er ég ekki að nenna því að ferðast. Er kominn með meira en nóg í bili. En þetta er óhjákvæmilegur hluti af ferlinu. Ferðin leggst samt vel í mig, eru komnir með fínt plan og er allt að smella. Búumst við því að skoða e.t.v. einhver fyrirtæki á fimmtudag og föstudag, komast á góðan pub í Chelsea hverfinu á laugardag og horfa á Chelsea - Sunderland, skoða Kingston University og jafnvel einhverja campusa á sunnudaginn, og á mánudaginn er það fundur hjá Baugi Group og Kaupthing. Þá fer maður í spariskóna og gírar sig heldur betur upp. Stund sannleikans ef svo mætti að orði komast. Gaman að segja frá því að hagnaður þessara tveggja fyrirtækja á fyrstu 6 mánuðum ársins var ca. 36 milljarðar króna samanlagt. Þá er ég að tala um hagnað, klink í vasann. Þjóðarfamleiðla Íslands í fyrra var ca 860 milljarðar. Þá er ég að tala um þjóðarframleiðslu, sem er hálfgerð velta. Ekkert klink í vasann þar. Það er alveg fáránleg pæling hvað þessi fyrirtæki eru að vaxa, og eiga eftir að gera á næstu árum.

Það var pubcrawl í gær þar sem ég og Ívar fengum það verkefni að standa á Shakers allan daginn og á hálftíma fresti kom nýr ca. 10 manna hópur af blindfullum busum til að fara úr fötunum og drekka sig meir fulla. Okkar verkefni var að láta hvern hóp fara í leik sem heitir Tojkæden, eða fatakeðjan, og þá á hópurinn að búa til sem lengsta línu með fötunum sínum. Og ef það var ölvun+metnaður þá endaði fólk á evuklæðunum, sem sýndi sig nokkrum sinnum. Og ekki nóg með það heldur gátu hóparnir skorað fleiri stig (sem ég og Ívar gáfum) með því að vera góðir við okkur. Og við auðvitað hötuðum það ekkert, fengum m.a. nudd, það voru kysstir á okkur fæturnir og ein stelpan gekk svo langt að sýna hvað hún væri með myndarlegan geirvörtuhring. Allt fyrir stigin.
Í skólanum í dag sá ég svo þessa sömu busa labba um skólann hálfþunna og ég gat ekki annað en brosað útí annað. Sá kannski stelpu, já þessi var helvíti djörf, var bara á g-strengnum alveg blindfull, sá svo strák, já þessi var hlaupandi um á sprellanum og vissi minnst og svo mætti lengi telja. En allir skemmtu sér vel ( nema þeir 4 sem fóru uppá spítala útaf ofdrykkju) og fallega (nema 400 kílóa stelpan sem fór úr brjóstahaldaranum, damn!)

Bið að heilsa öllum sem ég þekki, skiliði kveðju frá mér, og heyrumst aftur þann 13!
London calling...

Thursday, September 01, 2005

The plot thickens

Þá eru línur að fara að skýrast með framhaldsnám. Var að koma af fundi með Ian Charles sem er mesti snilldarbreti sem fyrirfinnst. Hann mælti sterklega með Kingston University í London sem var einn af "the favorites" fyrir fundinn. En eftir að hafa útlistað það helsta um skólana sem eru í boði er maður nokkuð öruggur um hvert stefnir. Eina sem maður þarf að fara að skoða er fjármögnun á skólagjöldum því önnin kostar rúm 8000 pund. Ég hristi það auðvitað framúr erminni einsog úrið mitt. Svo er bara málið að kíkja á skólann, skoða aðstæður og það allt á fimmtudaginn næsta þegar maður verður í Londúnum. Hvet alla til að skoða heimasíðuna.

Það komu rúmlega 130 nýnemar í skólann í dag, þar af 11 íslendingar sem er gott mál. Mafían styrkist. Djöfull man ég þegar maður mætti í fyrra og vissi minnst, hálf villtur og málhaltur. En í dag er maður orðinn senior í skólanum og á mánudaginn næsta er Pubcrawl þar sem nýnemarnir verða leiddir um bæinn í litlum hópum og fylltir af áfengi á völdum pöbbum og skemmtistöðum. Ég og Ívar aka Gæsin aka Grænlandsmávurinn verðum á Shakers með einhvern sæmilega dónalegan drykkjuleik og batmangrímu?

Svekkelsi vikunnar (hingað til 7,9,13) er það hvað ég er góðhjartaður. Fór í háttinn á þriðjudagskvöldið og sá sæmilega góða flugu á veggnum hjá mér. Er vanur að henda ættinni hans Atla Fannars útum gluggann eða sturta þeim niðrí klósettið (hrossaflugur) ef þær láta sjá sig en þessi var bara svona snyrtileg og ekki með neinn skæting eða læti svo ég leyfði henni að dóla sér á veggnum og fór uppí rúm. Það er frekar heitt þessa dagana hérna svo ég var ekki með neina sæng og því algjörlega berskjaldaður gagnvart öllum árásum í skjóli næturinnar, og það varð mér að falli. Ég fór í skólann um morguninn og klæjaði hér og þar og var ekki að fíla það get ég sagt. Fór mig svo að gruna ýmislegt þegar ég fór að bólgna á olnboganum. Hafði þá ekki flugan nagað á mér olnbogann (ekki bitið), bitið mig í bakið, og fjandinn hafi það reynt að nauðga mér í leiðinni. Ég var með 4 bit á hægri rasskinninni! Þetta var ekki bara gangur náttúrunnar heldur persónulegt. Ég líka trylltist þegar ég kom heim, fann fluguna á sama stað á veggnum og hún var kvöldið áður og setti skósóla á milli augnanna á henni. Og grunur minn var staðfestur, það var hún sem hafði bitið mig og nagað nóttina áður því fagurrauður blettur kom á vegginn, semsagt blóðið úr hægri rasskinninni á mér.

Já það er fjör í DK og sá sem skrifar næstur í gestabókina fær fría Pizzu.

En Gummi er úti einsog Lalli Johns.... pleeee

Monday, August 29, 2005

Marketing Research

Er draumaáfangi sem ég er að ljúka hérna í IBA. Í lok síðustu annar, semsagt í byrjun júní, fengum við það verkefni að útbúa könnun sem við áttum að dreifa í skóla eða þvíumlíkt og gera síðan greinargóða ritgerð um niðurstöðurnar. Jæja, get ekki sagt að við Íslendingarnir höfum gert mikið í sumar, en tókum okkur til í kvöld og byrjuðum á þessu öllu saman. Sem er auðvitað ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að skiladagur er á morgun, fyrir klukkan 12 á hádegi.
Við hittumst um 8 leytið í kvöld, fengum okkur diet coke í kribinu hans Hreiðars, og núna rúmum 6 tímum síðar er þessi fínasta ritgerð uppá 25 bls. tilbúin. Ég er svo mikið viss um að hún hafi verið fín líka.
En það fyndnasta við þetta allt saman er það að ég er nokkuð viss um að hann Peter, kennarinn í áfanganum, eigi ekki eftir að skoða ritgerðina, heldur líta á kannski fyrstu 3-4 bls. og sjá að þetta líti ágætlega út og svo bara henda einkunn á þetta. Þetta er fjarkennsluáfangi með aðeins 2 tímum hjá kennara en samt gleymdi hann öðrum þeirra! Svo mætti hann í seinni tímann, í bleikum pólóbol með þá fáránlegustu ljósabekkjabrúnku sem ég hef séð (busastelpur í F.Su. hefðu blygðast sín) og sagði okkur að vera sem flest saman í hóp í ritgerðinni, þá væru færri verkefni fyrir hann að fara yfir.
Ég hef nú yfirleitt lagt mig fram í náminu, en þegar svona trúður er kennari fer maður ósjálfrátt á sama level og hann. Ekki stoltur af því að segja það en svona er þetta bara. Einsog Valli Reynis sagði: "Það geta ekki allir komið í afmæli!"

Thursday, August 25, 2005

Ítalía, London, Danmörk - Nýjar Myndir!!

Og hér er ég mættur aftur. Sumarið liðið, fríið búið, og skólinn byrjaður. Ég átti alveg fáránlega góða ferð til Ítalíu þar sem ég slakaði á í rúmar 2 vikur með systrum mínum, drakk bjór, tók sól, skoðaði mig um einsog alvöru túristi og tók fullt af myndum sem nú eru komnar inná síðuna.
Þessi ferð var alveg frábær verð ég að segja og er stefnan að fara aftur á eyjuna næst þegar tækifæri gefst. Ég kom tilbaka til Danmerkur alveg sauðslakur, ekki búinn að hreyfa vöðva allan tímann og nú þarf maður að fara að massa skólann, æfa handbolta daglega, og svo er ferð til London á döfinni. Ekki það að maður sé búinn að ferðast nóg undanfarið, kominn með nóg af ferðalögum. Fannst það soldið fyndið þegar ég var á flugvellinum í Napoli, að vera Íslendingur búsettur í Danmörku, staddur á Ítalíu, á leiðinni með flugi til London. En já ég er semsagt að fara þann 7. -12. sept til London með Hreiðari skólapilt og félaga til að redda okkur almennilegri placement í Janúar á næsta ári. Ætlum við að fara á fund hjá Kaupthing og jafnvel fleiri fyrirtækjum í borginni, og svo er ætlunin að skoða skóla uppá framtíðina líka. Við munum gista á hóteli í central London og læðist að mér sá grunur að við eigum eftir að kíkja e-ð á lífið föstudags eða laugardagskvöld? Hver veit? Annars verðum við í jakkafötunum á Bond street, þið finnið mig þar ;)

En endilega skoðið myndirnar, ekki nema 110 stykki sem er þó aðeins þriðjungur af þeim myndum sem ég tók. Svo bráðlega kem ég með ferðasögu úr Ítalíu ferðinni.

Lifið heil, bið að heilsa.

Sunday, July 03, 2005

Update

Þá er maður búinn að vera heima í 3 vikur eða svo og smíða og hitta allt liðið sem saknaði manns og öfugt. En ég fékk þær fréttir nú fyrir helgi að ég hefði náð prófinu mínu fyrir fyrstu önnina með 10 í einkunn sem er frábært og ég er alveg í skýjunum með það. Þá fer maður bara út eftir sumarið fullur sjálfstrausts og klárar dæmið framað jólum og svo er það vinna bara eftir áramót en ég er að vinna í því núna að finna fyrirtæki. Svo er þetta DK ævintýri bara úti og kallinnn væntanlega kominn heim eftir það reynslunni og diplómunni ríkari!

En ég nenni ekki að skrifa meira, maður á ekki aðvera í tölvunni á sumrin, hundrað aðrir hlutir sem hægt er að gera.

Heyrumst...

Sunday, June 05, 2005

120 klst. and counting

Ótrúlega stutt þangað til ég tek flugvélina heim á Ísland. Nú fer hver að verða síðastur að læra helstu módel og kenningar fyrir prófið en þó er stressið í algjöru lágmarki finnst mér. Það eru flestir sem ég þekki hérna alveg sallarólegir og hafa litlar sem engar áhyggjur af þessu, en ég sjálfur er með svona pínu kvíða, eitthvað sem er alveg eðlilegt. Sama þó að mér myndi ganga alveg fjandi vel þá er ég þannig að ég fer að hugsa að mér hefði nú getað gengið aðeins betur, en það rekur mann bara í að læra meira sem er jákvætt.

Ég "rakst" á Dabba frænda a.k.a. Bananavélmennið á MSN í gær og vorum við að spjalla þegar hann sagði mér frá því að hann væri staddur á Benidorm með bjór í annarri á netkaffihúsi, alveg rólegur. Helvítis pungurinn, ég hafði ekki minnstu hugmynd um að hann hefði flúið land. Góður á því hann Dabbi.

Var að lesa það að gullkálfurinn sjálfur Raul væri orðaður við Liverpool þessa dagana, sem yrði algjör snilld. Hann er ekki nema 27 ára gamall, markahæsti leikmaður meistaradeildarinnar frá upphafi með 3 evróputitla á bakinu og nokkra spænska bikara líka. Ég verð að segja að ef Rafa fær hann á Anfield er hann að gera góða hluti, kominn tími á að kaupa toppklassaleikmenn til félagsins en ekki einhverja meðalmenn endalaust, þó að nokkur góð kaup hefðu verið gerð á seinustu leiktíð. En næsta season verður spennandi, gaman að þessum leikmannamálum núna. Verður samt erfitt fyrir mína menn að toppa nýafstaðið tímabil, þá sérstaklega á alþjóðavettvangi.

Á föstudagskvöldið hélt einmannafélgið Pulsan sinn síðasta hitting áður en allir fara heim í sumarfrí. Þetta félag var stofnað á síðustu önn þegar við vorum 4 saman peyjar allir með dömurnar okkar víðsfjarri og vorum við ansi einmanna þá. Og svo er Ívar líka félagi þó það megi dæma um það hversu einmanna hann sé? En allavega við elduðum þessa dýrindismáltíð og spiluðum svo "Hold'em Poker" villt og galið. Siggi Páls var heiðursgestur og endaði hann sem chipleader. Við tveir héngum lengst inni og þar sem allir hinir voru dottnir út fannst okkur ekki rétt halda endalaust áfram. Enda var nóg annað fyrir stafni einsog Giftingaveisla hjá honum Jenna sem við Ívar bjuggum hjá hérna fyrstu vikuna okkar, einhverjir myndu þekkja hann sem pabba hennar Jennýjar. En við fórum þangað í hörkuveislu og var ansi gaman þar og fólk í góðum gír. Ég og Doddi vorum helvíti góðir að ljúga að Dönunum að við værum frá Bornholm, sem er eyja fyrir utan Danmörku og fólk þaðan talar oft á tíðum bjagaða dönsku (einsog við) og var það hin mesta skemmtun að lofa Bornholm bak og fyrir, þó við hefðum aldrei komið þangað. Held samt að einn kall hafi grunað eitthvað, tók hann okkur á eintal og hótaði að lemja okkur og taygaði síðan fullt glas af whiskyi og vildi að við myndum leika það eftir. Við hlógum bara og létum hann eiga sig. Sögðum að þetta væri ekki siðurinn í Bornholm.

En ég þarf að fara í þvottahúsið, það er alltaf fílíngur og partý þar á sunnudögum. Hej Hej.

Monday, May 23, 2005

Góður á því eða?

Þá er þriðja síðasta helgin mín hérna í bili yfirstaðin og nú eru rúmar 2 vikur í próf og allt að verða brjálað. Var boðið í mat til Írisar og Dodda á laugardaginn og var þar í góðum félagsskap að horfa á Eurovision og bara almennt chill. Ég, Óli og Hreiðar sýndum lit á laugardaginn og fórum á enska pubbinn að horfa á Man utd. tapa fyrir Arsenal í enska bikarúrslitaleiknum. Þar var hörkufjör og fullt af enskum æstum bullum sem blótuðu hálf tannlausir oní Guinnessinn. Maður fékk sér einn ölara þar, hvað er annað gera þegar maður getur valir úr 283 tegundum? Svo var gærdagurinn helvíti fínn þar sem ég fór í ræktina og hitti fyrir þar Óla sem var stutt en Doddinn tók heldur betur á því með mér og við útúrpumpuðum okkur með allskonar helmössuðum æfingum sem Doddi lumaði á. Svo tókum við gufuna og pottinn og eftir það laumaði maður sér heim og fór að lesa og dúlla sér, einn í kotinu þar sem Ívar skrapp í fermingu á Ísland. Ekkert nema bara gott mál.

En dagurinn í dag er búinn að vera góður líka. Var bara í skólanum frá 10-12 og svo hjólaði ég niðrí bæ, settist við ána sem rennur í gegnum bæinn í sólinni og las tvo góða kafla í Logistics. Algjör snilld, þarf að gera meira af þessu. Svo er spáð 25 stiga hita og steikjandi Sahara sólarstemmningu á föstudag og laugardag, ég eiginlega er sáttur með ástandið einsog það er núna, en jæja, maður skreppur þá bara á ströndina sem er hérna rétt hjá og sleppir sér ;)
En ég er farinn að gera eitthvað, öll komment vel þegin. Annars trúi ég því að það séu fáir sem noti internetið mikið núna þar sem allir heima eru komnir í sumarfrí og eru vinnandi glaðir. En ég er hérna ennþá, og verð í rúmar 2 vikur, svo bara "take one for the team" og supportið mig.
X Gummi - fyrir framtíðina.

Sunday, March 06, 2005

Guð blessi ykkur..

Hef lítið að segja og langar lítið að segja.. nema guð blessi ykkur og alla þá sem eiga um sárt að binda. Langar mest að vera heima núna.. ég vil sjá bestu vini mina eins og þeir voru þegar að ég fór. Ég bið til ykkar elskurnar minar.. um góðan bata! elska ykkur:(

† Megi elsku drengurinn hvíla í friði†

Sunday, February 06, 2005

Slúðurpakkinn

Settum inn myndir sem við tókum á röltinu um bæinn. Það var svo gott veðrið að við urðum bara að drífa okkur út að labba og gripum vélina auðvitað með. Allt á netið.
Annars er það helst að frétta að ég (Gummi) er núna í 2 vikna fríi í skólanum og veit hreinlega ekki hvað ég á að gera af mér! Mér finnst þetta frí alveg too much sko, það var nú ekki einsog stundataflan mín hafi verið það þétt hingað til. En svona vilja þeir hafa þetta Danirnir. Maður reynir bara að læra þá og vera í góðum málum þegar skólinn byrjar aftur.
Á föstudaginn var borðað saman með bekknum mínum á skólabarnum og síðan var diskó og djamm eftir matinn. Það var fín mæting og betri stemmning. Ég og Óli fórum í DJ-inn og þeyttum skífum einsog óðir menn við misjafnar undirtektir. Einnig spiluðum við mikinn billiard og komumst við að því að við erum skelfilega seinheppnir í því sporti, jæja, maður er þá bara góður í einhverju öðru. Sigrún var í laid-back stílnum allt kvöldið og skellti í sig einsog einum þriðja af bjór. Við vorum voða slök eitthvað bæði. Vorum komin heim milli 12 og 1. En daginn eftir eða í gær fórum við í þessa líka snilldarferð til Flensborgar í Þýskalandi með Óla og Maríu. Við fórum í risaverlsunarmiðstöð sem heitir Citti og svo var það bara röltið í miðbæ Flensburg. Sigrún lét kortið sitt heldur betur finna fyrir því, en ég held það sé best að leyfa henni að segja frá því sjálfri. (Intersport - góðan daginn!)
En myndir frá helginni koma inn í kvöld þannig að ekki fara langt.

Friday, January 28, 2005

Kvöldið...

Nýkominn af handboltaæfingu þar sem viðfangsefnið var að hlaupa frá sér lífið. Ég held að ég hafi hlaupið svo mikið að eftir æfinguna þá var ég kominn í nýtt tímabelti og þessvegna stillti ég úrið mitt á +2 tíma. Nóg um það. Fékk þær fréttir að Ísland hefði tapað fyrir Rússum með 7 mörkum en mín vísindalega spá á Cuntjuice hafði gert ráð fyrir 18 mörkum svo ég segi að það sé ljósið í myrkrinu. Svo eiga fleiri um sárt að binda þegar kemur að íþróttaúrslitum. Skulum ekki gleyma að Man. Utd tapaði í vikunni (yesss) og Danir voru rétt í þessu að tapa fyrir Túnis!! Hvað er það samt? Þetta Heimsmeistaramót er að koma manni sífellt á óvart.

Í kvöld er stefnan að kíkja niðrí bæ á Republikken, eða Repparann einsog reynsluboltarnir segja. Það er svona kaffi-bjór-drykkjubar sem er oftar en ekki alsetinn Íslendingum og Dönum. Góð blanda segi ég. Um að gera að sýna Sigrúnu bæinn aðeins þar sem hún var veik alla síðustu helgi. Svo á Laugardaginn eða á morgun þá er nóg að gera í næturlífinu. Partý hjá 6 frökkum sem eru nýkomnir í bekkinn og vilja endilega blanda geði og svo verður maður að hoppa úr því í innflutningspartý hjá Handboltafélaganum Christian en þar verður öl við hönd og eflaust nóg af partý og rugli. Drop it like it's hot!

Heyri í ykkur. Reyni kannski að smella af nokkrum myndum um helgina til að henda inná síðuna, nú þegar eru nokkrar komnar, svona samt bara til að prufa þetta allt saman. Eg þurfti að fara í tölvunördið til að koma þessu inná, en það hafðist dömur og peyjar. Lifiði heil.

Kveðja G. Olsbo

Friday, January 14, 2005

Talandi um handbolta..

.... Þá er ég að fara að horfa á strákana mína í síðasta sinn keppa áður en að ég fer.. þeir eru að fara að rústa íbv í kvöld, bra gaman og ég er í fríi í kvöld á Hróa og það er allt honum Örvari mínum að þakka því að hann er nýji pizzasendillinn okkar, hann atlar að taka þessa vakt í kvöld, svo endilega pantið pizzu og fáið hana senda því hann elskar sendingar! og ja ja Örvar er líka hvað á ég að segja staðgengill minn í kjánaskap á Hróa:)
En ég er að fara að pakka og reyna að koma þessum fötum i tösku og minnka eikvað þingdina á töskunni því að ég er komin með 30 og eikað kg og það er 10 kg of mikið, hvert aukakg kostar 1000kr! sem er allt of mikið..!
En bless í bili.. IBV- Selfoss!

Thursday, January 13, 2005

Fimmtudagskvöld, byrjar vel.

Spiluðum í gærkvöldi við Esbjerg á útivelli. Þetta var hörkuleikur og spilaðist alveg ótrúlega hratt. Þrátt fyrir marga feila í sókninni hjá okkur tókst okkur að skora 37 mörk og vinna gegn 31 marki frá Esbjerg. Einnig var vörnin og markvarslan ekkert sérstök hjá okkur, svo í raun hefði sigurinn mátt vera stærri. Þeir tóku 2 úr umferð hjá okkur allan seinni hálfleikinn og náðu aðeins að stríða okkur eftir að við höfðum verið 8 mörkum yfir í hálfleik. Ég skoraði 3 og spilaði alveg fínan leik, átti nokkrar stoðsendingar og fiskaði víti og mann útaf, sem er alltaf jafn gaman.

Í gærkvöldi þegar ég kom heim smellti Ívar sér svo á djammið. Hann kom við niðrí bæ og kíkti á Sigga Páls fyrst svo ég lánaði honum hjólið mitt. Þegar ég vaknaði í morgun og ætlaði að hefja mína dagsrútínu hafði ég hinsvegar fengið SMS klukkan 5:15 í nótt sem í stóð orðrétt: "EKKERT HJOLTAD ER HEIMA HJA SIGGA. STRÆTOINN FER 28 I 8 DRIFA SIG" - og fleiri voru þau orð ekki. Spennandi að sjá hvernig þetta alltsaman endar!