Halló aftur
Langt síðan ég henti inn fréttum hingað, kannski afþví að það hefur lítið á daga mína drifið, eða þannig. Allavega segi ég að það merkilegasta sem ég hef gert undanfarið var að að ég keypti mér iPod nano, sem er svo mikil snilld að ég er ekki að komast yfir það. Þetta er instantly orðinn besti vinur minn og hann fer með mér hvert sem ég fer, svo einfalt er það. Það sem kom mér til að kaupa hann var það að ég hef ekkert nennt að hreyfa mig síðan ég kom til London, hef farið svona 6 sinnum í ræktina hérna á 5 mánuðum, plús það að ég hef farið að hlaupa sirka 5 sinnum, annars er það bara búið að vera skrifstofan eða skemmtistaðirnir. Málið er það að það hefur enginn tími gefist í hópíþróttaiðkun sem mér finnst svo skemmtileg og hefur haldið í mér lífinu síðustu 22 árin eða svo, og að hlaupa er það leiðinlegasta sem ég geri. En þegar maður er með tónlist í eyrunum er þetta eitthvað svo mikið auðveldara, tíminn líður hraðar og allir eru ánægðir, "jumping up and sharing candy and stuff". Í kvöld tók ég til að mynda góðan hlaupahring, sem er hægt að sjá hér http://www.serpentine.org.uk/routes/02/index.htm og er 4.3 mílur eða 7 km, reyndar hljóp ég alveg frá dyrunum heiman frá mér svo það er eitthvað aðeins lengra. Er að pæla í að fara á handboltaæfingu hjá einhverju bresku liði á fimmtudaginn, get ekki ýmindað mér að þeir séu neitt í líkingu jafn góðir og Kolding en samt, þetta er handbolti! (Vona að þeir noti harpix samt). Svo um helgina er stefnan sett á 7.3 mílna hlaupahring og á Sunnudaginn kemur Elín til London, og ég ætla að fylgja henni á Waterloo stöðina þar sem hún tekur lest til Frakklands og verður í sumar einsog allir vita. Skil ekki hvað fólk er að flýja land um leið og ég kem heim, reyndar hætti Örvar við enda sá hann fram á að sumarið yrði algjörlega ónýtt ef hann myndi ekki hitta mig neitt, og hafði hann mikið rétt fyrir sér strákurinn.
En jó farinn að horfa á rómantíska gamanmynd, og bíða eftir að geta downloadað 23 þætti af Prison Break, go Michael Scofield.... Sjáumst eftir 2 vikur og tökum hlaupahring saman!
Virðingarfyllst,
Wilson Kipketer.