Monday, July 31, 2006

Milf

Þá er maður búinn að fá staðfestingu frá London South Bank University um að maður sé velkominn um að ganga í söfnuðinn þeirra í september næstkomandi. Ég hugsa að ég slái til og verði þar eitthvað framá næsta sumar, svei mér þá. Ég sakna tvennunnar skelfilega mikið, þ.e.a.s. O'Neills á Wardour Street og smella sér svo beint á 13 Gerard Street, en það er einmitt á Gerard Street. Nett! Svo eru íbúðarmál að skýrast en ég er búinn að fá það staðfest að ég fái inná campusinn í skólanum, sem mér líst vel á. Hefur alltaf langað til að prófa að vera á campus, taka soldið þátt í félagslífinu o.s.frv. Svo skemmir það ekki fyrir að campusinn sem ég sótti um er á mjög flottum stað, ekki langt frá "Tate museum of modern arts" og "The Millenium Bridge".

Er sirka einn og hálfur mánuður ennþá í flutning svo að maður er rólegur ennþá. Á eftir að vinna sunnlensku deildina en ég held að mesta spennan sé núna hvor skori fleiri mörk, ég eða Einar Káti. Við höfum spilað skemmtilega saman frammi, næstum einsog í teiknimynd, og erum báðir búnir að skora sitthvor 11 mörkin í sumar. Þess má geta að 11 er prímtala og ég ætla að reyna að enda sumarið á prímtölu. Svo er Selfoss, heimabærinn, að snúast uppí eitthvað syndabæli (e. Sin City) en fréttir þaðan síðustu daga gefa til kynna að hér sé lítið annað gert en spólað í hringi, flúið lögguna og brotin höfuðin á aðkomumönnum sem lenda í því óláni að selja eiturlyf til grunnskólabarna. Ég segi að þetta hafi alltaf verið svona, það vildi bara enginn tala opinskátt um þetta fyrr en Eyþór Arnalds kom í bæinn, setti Árborg "in the spotlight" og opinberaði síðan sinn "kók og staur" vanda. Eftir það var allt annað smáræði. Eyþór lét okkur horfast í augu við vandann, Árborg er batnandi bær, og honum er bezt að lifa. Og meðan við erum á málefninu þá skulum við tala um hvað Eyþór er fínn náungi, og þá er ég að sjálfsögðu að tala um í tauinu.

Ég ætla að enda þetta á frábærum húmor, Jesúhúmor.
(Birt með góðfúslegu leyfi þjóðkirkjunnar og höfundi biblíunnar, Michael Moore)

Monday, July 17, 2006

First blog for a long time...

Ýmislegt búið að gerast síðan síðast, enda sumar á Íslandi og þá eiga hlutirnir að gerast. Ég er búinn að fara í partý, útilegur, innilegur, Atmosphere tónleika, spila fótbolta, beygja stangir, hætta í vinnu, byrja í nýrri vinnu, keyra í Reykjavík, keyra á Selfoss og svo er maður farinn að undirbúa næstu London dvöl, sem tekur við eftir einn og hálfan mánuð sirka.

Framundan er verslunarmannahelgin en ég hef ákveðið að taka ekki ákvörðun um hvert ég ætla, heldur bara vera rólegur og stökkva svo þangað sem stemningin er best og bjórinn kaldastur. Það plan, semsagt að hafa ekki plan, gefur mér ótakmarkað frelsi með lágmarksábyrgð.

Svo er bara að vona að krónan eigi eftir að styrkjast framað hausti, annars verður London-lífið ansi kostnaðarsamt og gæti rekið mann einsog mig útí einhverja atvinnustarfsemi... kaupa og selja bensín á campusnum.

Van Wilder.

Sjáumst á heiðinni....