Wednesday, May 30, 2007

Saga númer 1

Það hefur ýmislegt gengið á síðan síðast, sem þýðir að ég sé mig knúinn til að skrifa sögu hingað inn svo ég þurfi ekki að svara spurningum einsog: "Hvað er að freta" á 5 mínútna fresti.

Já ég er vinsæll.

Jááá.



hcanyway, ég er búinn í 2 prófum af 3, síðasta fer fram þann 6. júní og ég vona að sjá sem flesta mæta og hvetja mig til dáða. Það er reyndar töluvert erfitt próf svo ég hef þegar byrjað að undirbúa það af kostgæfni og yfirvegun. Sem eru bæði mjög fáguð orð og gott að nota í sögum einsog þessari.

Elín kom í heimsókn síðasta fimmtudag og var alveg framá þriðjudag. Við nýttum þetta mjög vel, tókum hálfpartinn "frí" bæði frá öllu öðru og gerðum margt og mikið í Borg Óttans, tókum eitrað djamm, skoðuðum listasöfn, versluðum eitt og annað að því ógleymdu að við fórum á Pirates of the Caribbean 3. Elínu hafði lengi langað að sjá síðustu Pirates myndina og að sjálfsögðu var hún sofnuð þegar 40 mínútur voru eftir af myndinni.

Eðlilega.


Fötin hennar Elínar eru flest komin til mín


Arkitektúr er blanda af list, smáatriðum og nákvæmni. Elín var þó á því að "varaliturinn" væri "SVONA" stór.

Í gærmorgun fylgdi ég henni síðan niður á Liverpool street station þar sem hún fór niðrá flugvöll og til DK aftur. Stuttu síðar var ég mættur niðrá Stamford Bridge til að spila í smá fótboltamóti. Þá hefst nýr þáttur, Baugs-þáttur knattspyrnu.

Í fyrsta skipti í sögu heimsins var haldið fótbolta-charity á vegum Teens Unite, en þetta eru samtök sem hjálpa ungu fólki sem glímir við lífshættulega sjókdóma einsog krabbamein. Þau eru að safna peningum til að geta byggt hjúkrunarheimili handa mikið veiku ungu fólki svo þau geti haft það aðeins betra í veikindum sínum og jafnvel veitt hvort öðru smá styrk. Karen Millen er einn af stofnendum þessa charity og því ekki úr vegi að Baugur myndi senda lið til leiks.
Þetta var sett þannig upp að það voru 8 lið sem kepptu, spilað var á heilan völl (Stamford Bridge, heimavöllur Chelsea) í 2 x 15 mínútna leikjum. Það voru commentators, sérmerktir búningar og ansi skemmtileg stemning myndaðist þarna. Við í Baugi áttum ansi erfiðan fyrsta leik, sem við töpuðum eftir djarfa framgöngu okkar manna. Því var möguleiki okkar á sigri í mótinu strax úti, en í næsta leik snerum við blaðinu við og unnum stórsigur, með mörgum glæsilegum mörkum. Ekki tókst mér að skora, var reyndar einusinni kominn frammi fyrir opið mark en fannst rétt að gefa boltann frekar á samherja sem var í betra færi og skoraði hann. Ég hálf sé eftir því þar sem ég hafði ákveðið að fagna marki með því að taka "Fowler" á þetta, þ.e. sniffa endalínuna. Endilega kíkjið á vídjó, þetta er klassík:



Við enduðum því í 5-6 sæti, en vegna fyrirkomulaginu á mótinu vil ég meina að það sé klárlega vanmat. Við vorum sennilega með 3 besta liðið þarna (rólegur Gummi, þetta var nú bara góðgerðarmót (alveg sama)). Við vinnum á næsta ári.

Ég þekkti nú engar af stjörnunum þarna, þetta var e-ð breskt sjónvarpsfólk sem var örugglega mjög skemmtilegt, annars fannst mér bara feykinóg að fá að spila á þessum velli, þvílík og önnur eins snilld. Ég átti svona 40 tæklingar plús ég sparkaði einusinni upp stóra torfu rétt við miðjulínuna í gremju minni yfir því að hafa misst boltann útaf. Reynið að spotta glompuna á næsta seasoni!
Um kvöldið var síðan kvöldverður, uppboð og skemmtiatriði með öllum liðunum, allt í allt frábær dagur á Stamford Bridge og mjög vel heppnað charity.

Einsog staðan er núna þá er ég að gera dauðaleit að íbúð til að búa í með Elínu. Hún flytur hingað eftir 16 daga og ég byrja að vinna eftir 11, þannig að ég mun líklega/vonandi flytja einhverntímann fyrir þessa atburði.

Held að allt sé komið sem mig langaði að segja frá. Getið kíkt á nokkar ótrúlegar photoshoppaðar myndir sem ég var að dunda mér við hérna.

Kveðja, Rock-Steady Gummso.

Monday, May 21, 2007

Bright Eyes

"So if you're asked to fight a war that's over nothing/
it's best to join the side that's gonna win"

"She took a small silver wreath/
and pinned it on to me/
she said this one will bring you love/
I don't know if it's true, but I'll keep it for good luck"

"I'll fight like hell, to hide that I'm giving up"

"I'm not surprised, but I never feel quite prepared"

"And if you swear that there's no truth, and who cares/
how come you say it, like you're right?"

"And there’s kids playing guns in the street/
And ones pointing his tree branch at me/
So I put my hands up I say:/
'enough is enough, If you walk away, I’ll walk away'.../
... and he shot me dead"

"No one ever plans to sleep out in the gutter/
sometimes it's just the most comfortable place"

Ég er sífellt að uppgötva betur og betur hversu góður textahöfundur þessi maður er. Að mínu mati alveg jafn góður og Ryan Adams. Þeir eru svipaðir á margan hátt...

Ryan Adams - Necromancer
Hit Points: 194
Mana: 70
Dexterity: 59
Ljúfleiki: 98
Textagerð: 95

Bright Eyes - Hunter
Hit points: 191
Mana: 69
Dexterity: 64
Ljúfleiki: 95
Textagerð: 98

... þó ekki alveg eins.

Eitt fyrir krakkana (Óla Johnson og Elínu):

HAHAHAHAHHAHAHA

Prófa-Gummi, 3 dagar í algleymi.

Thursday, May 17, 2007

Monte Carlo, Monaco

Ég átti hreint ótrúlega síðustu 2 daga þar sem ég fór til Monte Carlo í stutta en heldur betur viðburðarríka ferð ásamt fyrrverandi og tilvonandi vinnufélögum. Það var ekkert til sparað og mun þessi ferð líka lifa í minningunni vel og lengi.

Ég ætla nú ekki að vera með greinargóða lýsingu á því hvað fór fram þarna, ég einfaldlega veit ekki hvar á að byrja, hvað þá enda! Ég bendi þó á þessa frétt sem er að stærstum hluta rétt.

Do it! Do it!



Kveðja frá Londres,

ge.

Wednesday, May 09, 2007

Desperate Husbands

Ég datt inní þessa sjónvarpssápu kennda við aðþrengdar eiginkonur, og mér finnst það bara fínt. Þær eru ekkert smá grófar samt, fara nánast alltaf vel yfir strikið, kveikja í hvor annarri, sofa framhjá í nokkra hringi og svívirða börnin sín. Ég treysti konum minna eftir að hafa séð þetta.

Svo fór ég til Danmerkur um nýliðna helgi. Mögnuð ferð. Sólin skein heldur betur á mig og Elínu allan tímann og ég náði að vinna upp baby-base-tan. Elín náði að vinna upp fullt af freknum (sem er auðvitað hraustleikamerki, og hún er rugl sterk líka). Ég náði að vinna aðeins á lofthræðslu minni í Tívolíinu í Köben, þar sem ég fór í 80 metra háa rólu sem snýst í hringi. Ég fraus allan tímann, ríghélt mér í keðjurnar sem halda þessu uppi og leit aldrei niður. Óskar reyndi að tala við mig og dreifa huganum, takk fyrir það, en ég var samt alveg off! Sólrún og Elín fóru í öll tækin 3svar og bættu Skarphéðinsmet, og þetta endaði í 7 tíma Tívolíferð!

Ótrúlegt en satt átti engin eitrun sér stað yfir helgina, e-ð annað en síðast þegar ég fór til Köben (sem endaði í Borat og 2 ANTM mongólítum). Ég setti inn alltof mikið af myndum, t.d. þessar:








Jesúbarnið á svona sleikjó!

Allr myndirnar eru í link hérna og síðan líka hægra megin á síðunni. Tæknilegt þetta HTML dót.

Eurovision er á morgun, fullt af verkefnum og prófum eru á döfinni hjá mér og þessvegna ætla ég að flytja á Perry Library, Baugsdagurinn er í næstu viku en þá flýg ég ??!?! einhvert, leikur við Norðmenn í Londonfótboltanum á sunnudaginn, Stamford Bridge boltinn er 29. maí... fullt af góðum hlutum að gerast í Borg óttans.

Takk Brynjar fyrir að senda mér Berlín-myndir. Flott myndin af skjaldbökukláminu.

Ein pæling, "If Jesus would have died in prison, all alone with no one witnessing, would we all have been saved?"

Önnur pæling, ef fáir hefðu mætt á krossfestinguna, hefði henni þá verði frestað?

"Sunset, sailboat set course for hell,
A cross and a hammer, but you'll have to get some nails"
- Hver á þennan texta?

Annar er ég mjög góður á því og ætla í tilefni þess að halda áfram að læra svo ég geti klárað að lesa Survivor í kvöld.

Spurning dagsins: Er eftirfarandi mynd photoshoppuð?



Og já ég eyddi 3 tímum í gær á Aarhus airport. Þessi staður er staddur í engu tímabelti, það gerist ekkert þarna! Flugstöðin var gjörsamlega mannlaus, fyrir utan hræðurnar sem vinna þarna. 4 af hverjum 5 heimsmeisturum í Minesweeper og Solitaire hafa unnið á þessum flugvelli.

Sjáumst í London, bið að heilsa!

Tuesday, May 01, 2007

"Hvernig er veðrið hjá þér?"


Bara fínt...

Eru veðurfræðingarnir hjá BBC latir?