Thursday, June 07, 2007

01/09/04 - 06/06/07

Ég mæli með www.aicon.is/elli fyrir sögu. Ég setti hana ekki hingað inn því að síðan er búin að vera að stríða mér undanfarna daga. Tekur mig 5 mínútur bara að opna hana, plús að ég kemst ekki í kommentin!

Þangað til næst...


... G

Sunday, June 03, 2007

*Update*

s.
endurnýja; endurskoða; uppfæra; gera nútímalegan
n.

Það er einmitt það sem ég ætla að gera núna með þessari færslu. Það hefur ýmislegt gerst síðan síðast, þó það sé stuttur tími liðinn.

Aðalmálið er það að ég er búinn að finna íbúð í London. Ég hafði staðið í mikilli og strangri leit að íbúð, sem ég framkvæmdi þannig að ég rölti í gegnum nokkur hverfi í London þar sem ég gat hugsað mér að búa í. Það sem ég var helst að leita að var:
- Auðvelt commute inní central London, til að komast til vinnu
- Verslanir í næsta nágrenni, og e.t.v. nokkrir veitingastaðir eða barir
- Tiltölulega rólegt og gróið hverfi

Og ég endaði á því að ákveða að Norður-London væri málið, nánar tiltekið meðfram Jubilee tube línunni sem fer beint niðrá Bond Street þar sem vinnan er. Eftir að hafa komist að því að í Kilburn og Willesden Green væri hægt að fá decent 1 herbergja íbúð á viðráðanlegu verði þá hófst leitin þar. Ég straujaði í gegnum rúmlega 10 fasteignasölur, internetið, og þegar mér leist á eitthvað þá varð maður að koma því í kring að fá að skoða íbúðina.
Eftir að hafa skoðað 4-5 íbúðir á þessu svæði þá fékk ég smá kvíðakast verður að viðurkennast. Allar íbúðirnar höfðu verið eldgamlar, með gömlum skítugum teppum og ógeðslegum húsgögnum (í London tíðkast það að leigja út íbúðir með húsgögnum). Ég beið eftir að fá að heyra það stundum að þetta væri falin myndavél, Hemmi Gunn myndi stökkva útúr fataskápnum með svona þyrluhúfu: "Hey Gummi ertu með Calzone í vasanum eða ertu bara svona ánægður að sjá mig" (einkahúmor, mjög fyndinn einkahúmor).
Þriðja daginn sem ég fór í íbúðar-veiði-gallann og tók lestina norður til að skoða íbúðir fékk ég símtal frá einum af mörgum fasteignasölunum sem ég hafði heimsótt. Öll nafnspjöldin sem ég var með í vasanum voru einsog spilastokkur, og ég þurfti að stokka nokkrum sinnum til að finna við hvern ég væri að tala við. NYWHO, hann sagði mér að það hefði verið að koma inná borð til hans íbúðir sem væri verið að gera upp, s.s. standardinn var mönnum bjóðandi og vel það. Ég ákvað að kíkja á þetta betur.
Ég fór með honum að skoða og þá er þetta hús á 3 hæðm með 9 íbúðum í, og er verið að gera allt saman upp. Ný gólfefni (parket og flísar), ný eldhús, allt nýmálað, ný heimilistæki og splunkuný designer húsgögn. By far það langflottasta sem ég hafði séð. Ég var ekki lengi að slá til, og þar sem ég var svona snemma á ferðinni gat ég valið mér þá íbúð sem mér leist best á og festi ég hana. Núna bíð ég bara eftir að þetta verði allt saman fullklárað (á eftir að raða húsgögnunum inn og koma gasi og vatni á), og síðan get ég flutt inn með Elínu minni, sem verður vonandi í kringum 15. júní!

Tónleikadagskráin er eftirfarandi:
- 7. júní: Andrew Bird
- 16. júní: Daft Punk, CSS og Klaxons í Hyde Park
- 17. júní: Richard Lobb (sama dag er líka eitthvert íslendingagrill og eintóm gleði)
- 19. júní: Smashing Pumpkins (efa það samt stórlega, en hver veit?)
- 4. júlí: Bright Eyes
- 7. ágúst: Prince

Allt þetta er neglt niður nema Smashing reyndar.

Annars er ég duglega sólbrunninn eftir daginn, 11-17 í Regent's Park að spila fótbolta, lesa og hafa það gott.

Svo vona ég til þess að sjá sem flesta í London í sumar, núna verður minnsta málið að hýsa gestina, þó ég efa að ég og Elín séum góðir gestgjafar (erum bæði mjög montin). Það kemur samt í ljós.

Og ef þið eigið í erfiðleikum með að skoða eða setja inn komment einsog ég þá gæti það verið útaf Firefox, ég get bara skoðað þetta í Explorer þessa dagana :/

Hafið það gott,
ge