Diskópartý, myndir
Hérna: Diskó
Gummi.
Gummi í London
Hérna: Diskó
Gummi.
Hent inn af
Gummi
Klukkan sirka
5:04 AM
3
vafasamar athugasemdir
Hent inn af
Gummi
Klukkan sirka
9:53 AM
2
vafasamar athugasemdir
Titill bloggsins gefur til kynna allt sem hefur gengið á síðasta mánuðinn eða svo. Ég er byrjaður að vinna á fullu, Elín er komin til London, við erum flutt í massakósý íbúðina okkar og erum búin að vera að gera þetta huggulegt hjá okkur, sem ég verð að viðurkenna að er ansi gaman. Okkur líður allavega mjög svo vel og höfum t.d. verið að þróa eitt og annað í eldamennskunni hjá okkur (ég lofa að setja inn myndir af súkkulaðipizzukvöldinu ef að Elín gefur leyfi).
Við héldum síðan innflutnings-afmælis-Elínarkomin-diskópartý þar sem að venjuleg föt ógildu miðann. Allir mættu nokkuð velklikkað dressaðir, einnig lofa ég myndum af því bráðlega, eða allavega um leið og við fáum internet heima. Það sem bar hæst í þessu teiti var að Höddi söng svo svakalega með Muse að á tímabili gelti hann með "Blackholes & Revelations", sem mig minnir að sé ekki í original laginu. Flott cover, tók lagið og gerði það að sínu!!
London er búin að vera ansi skrýtin veðurlega séð síðustu 2 vikur eða svo. Júnímánuður var mesti regnmánuður í UK síðan 1860, takk fyrir mig. Í dag var hinsvegar sól, og því tilvalið að sofa til 2 og eyða svo restinni af deginum inná hársnyrtistofu þar sem ég og Elín fengum dekurdag (klippingu, litun og frappó).
En það er komið í ljós að Elín verður í London allavega næsta árið, við erum að skoða skóla fyrir hana og líka athuga með einhverja góða vinnu, þar sem að hún verður hérna svona lengi þá er ekki úr vegi að finna e-ð meira spennandi heldur en fataverslun þar sem hún fékk víst meira en nóg af því á Íslandi. Svo er Örvar líka svo hommalegur þegar hann reynir að apa eftir Dressmann auglýsingunum, syngjandi lagið og að pósa. Set inn myndir af því líka.
En ef einhver vill koma til London í heimsókn þá er hann/hún/þau/þeir/þær meira en velkomin að gista hjá okkur (gegn "vægu" gjaldi). Öll fjölskyldan mín er að koma eftir 3 vikur til að vera viðstödd útskriftina mína, það verður gaman hæ. Elín er svo jafnvel að fara á Ísland í smá tíma í ágúst, og þá getur vel verið að ég komi yfir helgi eða svo, plús að mér er boðið í laxveiði í lok júlí/byrjun ágúst í Langá, þannig að hver veit nema við verðum á klakanum á næstunni?
Þetta er gott í bili, hafið það gott allir og bjóðum Torres velkominn til Liverpool, sérstaklega Elli Joð sem óskar honum góðs gengis og vonar að hann eigi eftir að skora mörg falleg mörg á móti Man Utd og fagna vel og lengi með Gerrard frænda, þeir tveir e-ð að faðmast og gefa fæv við hornfánann :)
Sumarkveðjuhiti,
Gummi og Elín (sem er í litun)
Hent inn af
Gummi
Klukkan sirka
11:23 AM
7
vafasamar athugasemdir