That's how the Federline's roll...
Áður en ég segi nokkuð þá vil ég tileinka þetta blogg honum Brynjari Bergsteinssyni. Og gaman að geta þess að hann á það til að hringja í mig um miðjar nætur ásamt því að senda mér þýsk sms skilaboð í símann.
Það er alltaf nóg að gera í London og hefur þetta sumar algjörlega hlaupið frá manni. Það er þó langt frá því búið hérna í Bretlandi miðað við það að síðustu helgi fórum ég og Elín með lest niður til Brighton (sem tók sirka einn og hálfan) og lágum þar heilan dag á ströndinni í glampandi sól. Einn af hápunktunum í þeirri ferð var þegar ég fór að kaupa drykki handa okkur og þar var sveittur fimmtugur kall með blautan kúrekahatt (aha!) og froðu í munnvikunum að afgreiða. Hann var líka að afgreiða kúluís sem ég afþakkaði pent. Jáneitakk manni, „Bara seinna“.
Ég fór til Íslands helgina þar áður að ná í kjötbolluna sem hafði sloppið í góðar 3 vikur frá mér. Ég notaði ferðina líka til að heimsækja Ella Aarhus en hann hélt partý þar sem m.a. Ívar boðaði fagnaðarerindið. Brynjar var líka þar í góðu stuði og Örvar kom einungis til að fá sér í vörina. Brynjar og Örvar og Ívar. Og ís. Og auðvitað allir hinir strákarnir t.a.m. Hjalti sem að var í bleika „sorry girls I‘m gay“ bolnum bara til að teasa. Ef ég man rétt drakk Hillimirir sjö lítra af úrvalslandabollunni hans Ívars áður en hann fór að vinna á Kaffi Krús. Og Elli Aarhus fór í mig í Guitar Hero bara til að sjá það að vonir hans um að verða tónlistarmaður stóðust ekki frekar en bókhaldið hjá FC Árborg (whammy!). Þetta partý var mjög gott, en síðan fjaraði það útí nóttina þegar Albert Einstein og Stephen Hawking fóru í kappræður útí bílskúr hjá Ella.
Til að halda áfram í öfugri tímaröð þá var ég einn með sjálfum mér í rúmar 3 vikur í London og þann tíma var nú eitt og annað sem gekk á. Ég fór á Prince tónleika sem voru mjög skemmtilegir, ekki skemmdi fyrir að við sem fórum vorum í VIP boxi sem serveraði drykki einsog það væri í tísku, ég spilaði einn sunnudagsfóltboltaleik með einhverju bresku liði og tókst mér að skora einusinni, eðlilega segja sumir, en annars var þetta bara vinna og kósíheit mestan tímann.
Það sem við tekur er uppáhaldsmánuður allra, september sjálfur, en þá er stefnan tekin á að taka einsog 1 gott gítarpartý og svo er hellingur að gerast hjá henni Elínu minni, en kannski best að hún segji frá því sjálf við tækifæri. Er hún ólétt? Eða er Sólrún kannski ólétt? Hver kom með blinda gaurnum og albínóanum í partýið í Suðurbyggðinni síðustu páska??? Svör við þessu og fleiru má finna í næsta þætti.