Thursday, June 12, 2008

Blogg

Djók...






Eða kannski jú. Það var ofsalega gaman á Ítalíu, fullt af sól, sandi og bjór. Við skoðuðum líka alveg slatta af dóti, þar á meðal hina týndu borg Pompei, og síðan fórum við á topp eldfjallsins Vesúvíus og sáum ofaní gíginn, sem var mjög fróðlegt og skemmtilegt. Annars var þetta mest bara slökun og gaman að hitta Kolbrúnu og Kiko en það er alltaf sama sagan hjá þeim, alveg bannað að borga fyrir sjálfan sig þegar maður fer út að borða (s.s. þau borguðu alltaf reikninginn, mjög hentugt).

Ítalía er svo gott sem búið að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn í knattspyrnu eftir ótrúlega solid byrjun á mótinu.

Svo erum við ennþá að leita okkur að íbúð, en stefnum ótrauð á að flytja í lok mánaðarins, hvort sem Elín verður farin heim til Íslands eða ekki.

Svo erum við í svakalegu sjokki ennþá eftir skjálftana um daginn, og þökkum guði fyrir að enginn hafi slasast eða misst útlimi. Það hefði verið svakalegt.

Luca Toni