Guðm. Eggerts.
Ég skrifaði nafnið mitt 12 sinnum áðan. Var að klára þessa prófatörn. Er frekar skrýtið að taka svona próf. Ég fékk 40 bls af texta með upplýsingum um fyrirtæki og ákveðinn markað og svo 48 klst síðar fæ ég að spreyta mig í 6 klst inní skólastofu vopnaður word og excel. Ég var svo creative í höfðinu mínu sem ég notaði til að hugsa upp svör við spurningunum á prófinu að ég þurfti að hamla mig síðustu 2 tímana, leið semi einsog feitri stelpu í hjólabuxum, plássið var bara búið! Það mátti mest skrifa 15 bls eða 36,000 characters, og mér finnst það frekar fyndið að ég skrifaði 35,949 characters. En því miður þá er gefinn einkunn fyrir gæði ekki magn, þannig að ég verð að vona að ég fokkaði ekki upp öllu prófinu einsog ég fokkaði upp Business Law spurningunni. Vil reyndar kenna því 50% á kennarann fyrir fáránlegar glósur sem hann lét okkur hafa og síðan 50% á mína dómgreind fyrir að hafa treyst á glósurnar hans.
En vegna þess hve mikið ég hef verið að læra undir þetta próf þá hef ég ekki verið að blogga mikið. Það kannski útskýrir komment einsog:
"Koma svo gamli, þetta er lengsta blogghlé síðan Ghandi var uppi!" - Brynjar
En núna, akkurat núna, ætla ég að liggja uppí rúmi og eyða eins miklum tíma og ég get í ekki neitt, bara afþví að ég get það. Þarf að byrja að hugsa um ritgerð strax á morgun. En ljósið í myrkrinu er án efa Ísland eftir 2 vikur, þá kem ég á klakann vopnaður ferðatösku og góða skapinu.
Sefur maður með höfðinu? Borðar maður með munninum eða með höndunum? Eða kannski tönnunum? Dansar maður með huganum eða með fótunum, eða kannski með upphandleggjunum einsog Elli vinur minn?
Háskólapælingar!
3 comments:
Konur dansa með mjöðmunum, karlmenn kunna ekki að dansa nema þeir séu Cocoa Puffs gaurar.
Nei maður sefur ekki með höfðinu því það er það eina sem er í gangi, líkaminn sefur.
Já maður borðar með munninum, tyggur svo með tönnunum sem stjórnast af kjálkunum, sem eru vöðvastýrðir, loks meltir maður með maganum, þar sem lifrin, nýrun og miltað hjálpast að og þarmarnir losa sig við allan óþarfa gegnum hringvöðva.---- Og ekki má gleyma Brisinu! Ég kasta því boltanum yfir til þín Gummi, hvað gerir brisið?
Ég ætla ekki að nýta mér yfirgripsmikla þekkingu mína á google til að finna hlutverk þess.
Ég ætla að skjóta á það. Ég segi að það sé þarna til að vekja upp spurningar hjá fólki einsog mér varðandi tilgang þess.
skv. doktor.is:
Briskirtillinn er inn-og útkirtlalíffæri og framleiðir hann ýmis hormón og meltingarhvata. Innkirtlahlutinn framleiðir m.a. insúlín sem seytrað er í blóðrásina til blóðsykursstjórnunar. Truflun á insúlínframleiðslunni leiðir til sykursýki. Útkirtlahlutinn seytrar meltingarsafa til skeifugarnarinnar og inniheldur safinn ýmsa efnahvata sem hjálpa til við að melta fæðuna, sérstaklega við niðurbrot próteina en einnig fitu og sykrunga. Einnig inniheldur safinn basísk sambönd sem hlutleysir súrt magainnihaldið sem berst til skeifugarnarinnar.
Athyglisvert? ;p
Post a Comment