Halló aftur
Langt síðan ég henti inn fréttum hingað, kannski afþví að það hefur lítið á daga mína drifið, eða þannig. Allavega segi ég að það merkilegasta sem ég hef gert undanfarið var að að ég keypti mér iPod nano, sem er svo mikil snilld að ég er ekki að komast yfir það. Þetta er instantly orðinn besti vinur minn og hann fer með mér hvert sem ég fer, svo einfalt er það. Það sem kom mér til að kaupa hann var það að ég hef ekkert nennt að hreyfa mig síðan ég kom til London, hef farið svona 6 sinnum í ræktina hérna á 5 mánuðum, plús það að ég hef farið að hlaupa sirka 5 sinnum, annars er það bara búið að vera skrifstofan eða skemmtistaðirnir. Málið er það að það hefur enginn tími gefist í hópíþróttaiðkun sem mér finnst svo skemmtileg og hefur haldið í mér lífinu síðustu 22 árin eða svo, og að hlaupa er það leiðinlegasta sem ég geri. En þegar maður er með tónlist í eyrunum er þetta eitthvað svo mikið auðveldara, tíminn líður hraðar og allir eru ánægðir, "jumping up and sharing candy and stuff". Í kvöld tók ég til að mynda góðan hlaupahring, sem er hægt að sjá hér http://www.serpentine.org.uk/routes/02/index.htm og er 4.3 mílur eða 7 km, reyndar hljóp ég alveg frá dyrunum heiman frá mér svo það er eitthvað aðeins lengra. Er að pæla í að fara á handboltaæfingu hjá einhverju bresku liði á fimmtudaginn, get ekki ýmindað mér að þeir séu neitt í líkingu jafn góðir og Kolding en samt, þetta er handbolti! (Vona að þeir noti harpix samt). Svo um helgina er stefnan sett á 7.3 mílna hlaupahring og á Sunnudaginn kemur Elín til London, og ég ætla að fylgja henni á Waterloo stöðina þar sem hún tekur lest til Frakklands og verður í sumar einsog allir vita. Skil ekki hvað fólk er að flýja land um leið og ég kem heim, reyndar hætti Örvar við enda sá hann fram á að sumarið yrði algjörlega ónýtt ef hann myndi ekki hitta mig neitt, og hafði hann mikið rétt fyrir sér strákurinn.
En jó farinn að horfa á rómantíska gamanmynd, og bíða eftir að geta downloadað 23 þætti af Prison Break, go Michael Scofield.... Sjáumst eftir 2 vikur og tökum hlaupahring saman!
Virðingarfyllst,
Wilson Kipketer.
6 comments:
duglegur kappi, hlakka til á sunday
-EML
Það var aldrei neinn 23 þáttur af Prison Break.... þetta endar í lausu lofti ANDSKOTINN HAFI ÞAÐ!
Þessi tilraun mín til að fylgja eftir sjónvarpsseríu var ekki þess virði, er hættur þessu.
Fox má eiga sig...
vissiru ekki að þættirnir hættu bara í miðjum leik! eða þú veist..
Jæja Gummi..
Aldrei varð neitt af þessum fjöruborðshittingum! maybe later..
En "skrítið" að ég hafi ekkert rekist á þig í London síðustu 3 mánuði ;) svo les maður bara að þú sért á heimleið.. en frétti samt að þú kæmir aftur til að klára skólann.
Ég er búin að vera hérna síðan í mars sem aupair. Er í suður London. Hvar býrð þú hérna úti?
Já ég er að fara heim eftir viku... en annars er ég í vestur-centralinu, rétt við Lancaster Gate.. mjög fínt. En þú?
Ég bý í Suður London.. Í South lambeth, milli undergroundanna Stockwell og Vauxhall. Alveg ágætt að vera hérna.. ekki alveg inni í bænum en enga stund að fara þangað ;)
Post a Comment