Tuesday, February 27, 2007

Ofmat?

Ég var að pæla í því að ljúga að sjálfum mér að ég nennti að blogga og vísa síðan bara í þetta blogg hjá Johnson, eða meira samt kommentin sem eru algjör snilld, skyldulesning ef fólk er hrifið af djúpum pælingum og Feng Shui.

En þar sem ég laug ekki að neinum í þetta skiptið þá er ekki úr vegi að henda inn smá fréttum. Ég fór í DK trip um daginn, tók London-Esbjerg-Randers-Köben-London rúntinn sívinsæla (eða ekki). Þannig vildi nú til að ég átti pantað flug til Aarhus sem er rúman hálftíma frá Randers (áfangastaður minn), s.s. mjög hentugt í alla staði. Vegna snjókomu í Danmörku var hinsvegar Aarhus Airport lokað og ég sat eftir í þunglyndis+þreytu áfalli á flugvellinum í London þar sem ég sá fyrir mér ekkert annað í stöðunni en að fara bara heim aftur og gleyma því að hitta Elínu, Sólrúnu og Óskar þessa helgina. En annað kom á daginn. Ég púslaði saman eitruðu plani og flaug 5 tímum á eftir áætlun til austur-Ljótlands (Sólrún), nánar tiltekið á hjara veraldar, nánar tiltekið Esbjerg þar sem ég tók lest til Randers. Allt í allt seinkaði mér um svona 8 tíma, en ég komst á leiðarenda með smá púsli.

Ég skoðaði aðeins skólann hjá Elínu, sá hvernig hún fór að því að framkalla myndir sem var mjög áhugavert, og síðan fórum við til Köben daginn eftir í mesta lestarævintýri lífs míns. Ekki nóg með það að við skyldum hafa tekið vitlausa lest í byrjun, heldur var rétta lestin að berjast gegnum snjóinn alla leiðina til Köben svo að henni seinkaði duglega. Við vorum allan daginn að komast 4 tíma leið, tókum samt gott böndí í lestinni þar sem ég plöggaði bara tölvunni og harða disknum í samband og við drukkum Carlsberg og borðuðum Snickers. Kósíheit par exelans!

Helgin hjá Sólrúnu og Óskari var síðan snilldin ein. Þau eru svo magnaðir gestgjafar að ég er að pæla að gera þetta að reglulegu ferðalagi hjá mér. Óskar eldaði þetta líka svakalega lamb með signature sósunni sinni og síðan var opinn bar framá nótt þar sem "My Name a Borat" skegg gaf þér Happy Hour á barnum. Ég var með þannig.
Á laugardeginum var sofið frameftir, kíkt svo aðeins á strikið, farið út að borða um kvöldið (ég borðaði pabba króka á áströlskum stað) og síðast en ekki síst drukkið meira bensín. Það var ekkert til sparað þessa helgina og var hún líka algjör snilld! Sólrún og Óskar eiga inni hjá mér voucher fyrir gestrisni í London í sumar, ég vil líka endilega sjá þau koma þá! Elín á inni hjá mér rifbein (ég held ég hafi brákað hennar)?

Annars er ég hress, lifi á Xedra Cut, Gluta-Cell og bláum Powerade þessa dagana, misbýð hlaupabrettinu og lóðunum í ræktinni og reyni að læra inná milli.

Ein spurning til fjöldans. Hver ætlar að taka að sér að vera í nefnd fyrir Páskapartei 2007? Einhverntímann heyrði ég að Brynjar væri með sérleyfið og tæki þetta því aftur í ár, hann vill hafa þetta árlega byrði á sínum öxlum, enda tókst honum merkilega vel til síðast ;)

Allavega mæti ég í bingógallanum, því að það verður spilað standandi páskabingó, 5000 kall inn og spilað til síðasta standandi manns (enda gengur standandi bingó útá það).

Pabbi Króki.

Monday, February 19, 2007

Ársins 2006

Mér finnst gaman að útnefna "ársins 2006" verðlaun. Ég ætla að gera það núna fyrir allskonar hluti sem mér dettur í hug. Það getur vel verið að ég særi einhvern með þessu, en þá segi ég bara einsog Jónína Ben, "það er skoðanafrelsi á blogginu mínu" eða þá einsog Guðmundur í Byrginu, "taktu hann út, það er loft á milli". Hvað sem ég segi þá meikar það ekki sense.

Hokay!

Magnús ársins: Brynjólfur Hjöll, a.k.a. Billsi Bleis!

Almannafæri ársins: Ólafur Johnson og "public" bloggið hans

Atburður ársins: Ég held það toppi fátt rokkið í Danmörku, Baugsdaginn og helgina sem fylgdi í kjölfarið

Smit ársins: Brynjólfur Hjöll, a.k.a. Billsi Bleis! (Hann á tvíburabróður, samt ekki)

Partei ársins: Furugrundin 23. júní. Grill, eitur, brotnar tennur og dans

Keyrsla ársins: London vinnan, jan-jún

Slumm ársins: Jólin 2006 í heild sinni

Eitrun ársins: Jólin 2006 í heild sinni

Mest spilaða lag ársins: Blue Sky Blues með Ryan Adams

Bók ársins: Choke! eftir Chuck Palahniuk

Frí ársins: Ítalía (kemur mikið til greina?)

Afneitun ársins: Stefán Hilmir að horfa á video um páskana, "Þetta eru tæknibrellur!"

Kebab ársins: Ekki hugmynd!

Dans ársins: "The Höddi Experience" (eftir harða keppni við "innkaupakerruna")

Comeback ársins: Robbie Fowler

Vonbrigði ársins: Robbie Fowler

Íþróttaklúbbur ársins: FC Flói taka þetta hands down, þvílíkt rúst sumar!

Sport-Quote ársins: "Tvöööööföld Fimma!!!!" (kostaði liðið mark á endanum þar sem dómarinn nennti ekki að heyra okkur fagna oftar, hann flautaði leikinn af þegar ég var einn á móti markmanni)

Ofmat ársins: Þegar ég keypti mér smóking og hélt ég myndi nota hann reglulega

"Símaskrá" ársins: Lokaritgerð mín við IBA, en hún skilaði mér líka næsta flokki,

Gráða ársins: Diploma of higher education frá IBA

Sóðar ársins: Dónabræðurnir Brynjar og Hilmir sem syndguðu London eftirminnilega í marsmánuði

Endurfundir ársins: Ívar Atlason "flaug" heim til Íslands

Þrenna ársins: Café Pacifico, O'neills og 13 Gerrard Street. Eitur? Einhver?

Pílgrímaför ársins: Ég, OJ og Helgi til Liverpool í nóvember

Hatur ársins: Ég á sjálfan mig þegar ég týndi veskinu mínu í Liverpool!

Bloggari ársins: Dr. Jensi a.k.a. "DJ hvað-ertu-með-á-bakinu?"

Sjóræningjar ársins: Elli Joð, Sibbi, Óli og Hrelli sem hafa samviskusamlega séð mér fyrir illa fengnu efni. Gracias amigos.

easy experience ársins: Flugið heim frá Ítalíu

Vakning ársins: Sólrún á afmælinu mínu

Geðveiki ársins: "að þjappa kjeeeellingar"

Fréttamynd ársins: Brokeback Mountain

Setning ársins: "Taktu hann út, það er loft á milli" (varúð, fyndið video)

Gott að geta komið þessu frá sér. Ef ég gleymdi einhverju þá set ég það inn á næstunni.

-------- UPDATE---------
Rulluf ársins: Pabbi Króki
---------------------------

Sjáumst þá, kveðja Gummi!

Tuesday, February 13, 2007

2 hlutir

Ég var vakinn í morgun, það er 2. hluturinn sem ég ætla að tala um.

1. hluturinn sem ég ætla að tala um kom í kjölfarið á 2. hlutnum. Ég sá frétt sem sagði eftirfarandi:

"Ný könnun undirfataframleiðandans Triumph leiðir í ljós að breskar konur eru með stærstu brjóstin, en frá þessu greinir The Sun. Ríflega helmingur breskra kvenna notar samkvæmt könnunni skálastærðina D og segir götublaðið að Kelly Brook sé dágóð sönnun þess að breskar konur séu brjóstgóðar."

Ég get ekki setið á mér þegar ég sé svona. Ég bara verð að segja e-ð.

Getur þetta stafað af því að þær þjáist af offitu? Kannski einhver hluti, en ég sver að ef það er e-ð vald í þessum heimi sem við lifum í sem ákveður það að kvenfólk sem fæðist í Bretlandi sé með stærri brjóst en kvenfólk annarsstaðar í heiminum þá er það einungis, já EINUNGIS til að draga athyglina frá andlitinu á þeim. Því ef við viðurkennum að slíkt vald sé til þá er nokkuð ljóst að það gerði kvenfólk í Bretlandi ákaflega óaðlaðandi á svæðinu sem nær frá háls og uppað hvirfli.

En það er bara mín skoðun.

Þetta var 1. hluturinn sem ég ætla að tala um. Núna kemur 2. hluturinn.

Brunaæfingar eru e-ð sem er mjög svo nauðsynlegt og algjörlega af hinu góða. Eldsvoðar geta verið mannskæðir og því nauðsynlegt að það sé hægt að tæma stór húsnæði á tiltölulega fljótum tíma ef eldur kæmi upp. Einsog með margt annað; sælgæti, áfengi, einelti, ljósabekkjanotkun og breskt kvenfólk, þá eru brunaæfingar góðar í hófi. Í húsnæðinu sem ég bý í núna er það ekki alveg málið.

Á haustönninni voru sirka 3 slíkar æfingar, allar á jafn óheppilegum tímum, annaðhvort eldsnemma á morgnana eða eftir 12 á kvöldin. Þá þarf maður að henda sér í föt á "núlleinni" og hoppa út til að geta beðið þar í kuldanum meðan slökkviliðið kemur með sírenurnar, leggur fyrir utan og slökkviliðsmennirnir geta komið inn og fengið sér kaffi og slökkt á brunabjöllunni. Allir pottþétt nýbúnir að taka bísinn svo þetta líti betur út.

Þessa önnina hefur þó annað verið uppá teningnum. Ég hreinlega held ekki tölu yfir allar þær brunaæfingar sem hafa verið haldnar. Núna er veðrið öllu kaldara en á síðasta ári, svo að þetta er orðið helvíti þreytt, vægt til orða tekið. Sömu "óþæginlegu" tímarnir eru notaðir og allaf glymur jafn sjúklega hátt í sírenunni sem sker sig lengst inní heilann á manni og skilur ekkert eftir sig nema höfuðverk.

Í morgun vaknaði ég klukkan 7 við einmitt þetta væl, það nísti alveg lengst inní höfuðið á mér. Ég var að vona að það væri bara verið að testa bjölluna, einsog er gert suma morgna, og þá hringir hún bara í 15 sek eða svo. Ég lá rólegur og hélt fyrir eyrun. En allt kom fyrir ekki og skömmu síðar heyrði ég að fólk var farið að streyma út í kuldann. Ég ákvað að í þetta skiptið skyldi ég ekki gefa mig, og lá því í rúminu mínu með haldið fyrir eyrun í örugglega 5-10 mínútur þangað til að það var slökkt á helvítis vælinu.

Ég vann...... eða?

20 mínútum síðar er bankað á dyrnar hjá mér. Þar stendur stelpa í skærgulu vesti með möppu með sér og segir að ég hafi ekki verið merktur inná listann hjá henni, s.s. yfir þá sem fóru út í æfingunni. Ég notaði öll trickin sem Siggi Sól kenndi mér um að ljúga og sannfæra fólk um ósannindi, en allt kom fyrir ekki. Hún meira segja spurði mig: "Are you lying?" Ég notaði allan minn sannfæringarkraft, klæddur einungis í nærbuxur starði ég í augun á henni og sagði "no".

Allt kom fyrir ekki, hún klagaði mig og Managerinn yfir húsinu tók mig á teppið. Ég laug að henni líka reyndar, og slapp því einungis með áminningu. Næst verður mér hent út.

Þess má geta að báðar konurnar sem komu við sögu í hlut 2 komu einnig óbeint við sögu í hlut 1.

Ég þakka kærlega fyrir mig, ég elska ykkur.

ge.

Sunday, February 11, 2007

Eiturlaus helgi #1

Þið lásuð rétt. Það var fyrirfram ákveðið að halda þessari helgi algjörlega vímuefnalausri. Það tókst svona líka vel, það er langt síðan maður hefur verið jafn ferskur. Reyndar hefur verið frekar afslappað djamm-andrúmsloftið í London eftir að maður kom heim frá Íslandi í byrjun janúar, held það sé rétt hjá mér að það séu aðeins búnar að vera 2 eitranir síðasta mánuðinn. Síðustu 2 mánuði slaga þær uppí 2 tugi, þannig að það er gott mál að balance-a þetta örlítið.

Það er búið að stofna "The London Brunch Club", ég og Johnson störtuðum þessu á laugardagsmorgninum þegar við fórum á "The Slug and Lettuce" í Borough og tókum power brunch til að starta helginni. Það var svo nice. Beint eftir það fórum við á Borough Market, sem er besti matarmarkaður í London, og þar fengum við okkur heimsins bestu brownie ásamt besta Cappuccino sem ég hef smakkað fyrr eða síðar.
Til að toppa menninguna fórum við á British Museum eftir það og kynntum okkur Grikki, Rómverja, Alexander mikla, Egypta, Mesópótamíu, Asíu til forna og fórum svo á kynningu um "History of Money" sem var mjög áhugavert. Magnað hvað er mikið af fornminjum á þessu safni, oft sem maður stóð stjarfur fyrir framan e-ð sem var nokkur þúsunda ára gamalt og hafði mikið sögulegt gildi og var bara "blown-away". Mæli með þessu safni fyrir alla sem koma til London, tók mig heilt ár að drífa mig þangað og ég á pottþétt eftir að fara aftur, þetta er svo stórt að ég komst ekki í gegnum allt.
Eftir safnið fórum við niðrí Soho og komumst að því að húsið sem Mozart bjó í er sama hús og fyrsta sjónvarpið var notað í. Samt erum við að tala um lítið og ómerkilegt hús sem í dag er notað undir samlokustað og litlar íbúðir.
Svo tókum við Óli og Höddi rómantískt videokvöld að hætti hússins, tvær myndir lágu í valnum eftir að við höfðum eldað okkur dýrindis kvöldverð. Við erum svo heitir.

Eiturlaus helgi #2 er síðan framundan, ásamt meiri skóla og gyminu. DK eftir innan við 2 vikur!

iTunes vikunnar:
Snow Patrol - Set the fire to the third bar
Arcade Fire - Neon Bible platan í heild sinni

Og já, prófið að Googla "Pabbi Króki" og sjáið 2 fyrstu niðurstöðurnar.

ge.

Tuesday, February 06, 2007

Smá leikur

Rétt upp hend sem jackaði Hermann Hreiðarsson um helgina!

(Mér finnst allt rangt við þessa setningu, en svona sagði maður þetta alltaf samt, "rétt upp hend"?)

"Have i failed to impress you/
Cause one and wine and one and four made two/
But it's five!/
IT, IS FIVE!/"

Djöfull er ég ógeðslega hress.