...
Búinn að vera í partý og afmælisstandi síðustu daga, skólast smá, spila handbolta hvern einasta dag og lyfta og er maður sannarlega farinn að sjá árangur. Semsagt árangurinn er ekki að láta á sér standa. Það er gott.
Ætla að setja inn myndir frá Partýinu okkar sem var frábært í alla staði. Þema kvöldsins var "Selfoss" og voru menn brúnir á hörund, í rétta gallanum með hnakka og sólgleraugu. Skímó spilaði sín allra vinsælustu lög og Doddi fékk fallegt strap-on ásamt forláta leðurgrímu frá okkur félögunum. Núna á Doddi eitt sameiginlegt með Batman, og það er ekki það að báðir eiga leðurgrímu! Einhverjar ágiskanir?
Maður er farinn að leita sér að íbúð í London núna, reyna að finna einhverja semi-central á góðu verði, en það er nánast ómögulegt. Erum að tala um kannski 150-200 þúsundkall á mánuði fyrir góða íbúð á góðum stað fyrir mig og Hreiðar, en við ætlum að búa saman og njóta þess hvað við erum báðir skemmtilegir og frábærir náungar í alla staði.
En frábærar fréttir af henni Sally, hún var að eiga lítinn strák í dag og vil ég óska henni og Nirði innilega til hamingju! Fór létt með þetta stelpan. Gaman að segja frá því að hún er sú fyrsta úr gamla bekknum okkar til að eignast barn, endilega leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér, en ég held að það sé alveg solid. Ekki hefði mér dottið það í hug fyrir nokkrum árum síðan að Sally myndi hefja leikinn. Ég meina ekkert illa meint, myndarstelpa og allt það, en samt voru aðrar týpur líklegri. En stórglæsilegur árangur, og verður gaman að kíkja á fjölskylduna þegar tækifæri gefst. Svo er Margrét einnig langt komin, en svo skemmtilega vill til að ég og Þórir erum frændur svo þegar þau eiga mun það verða lítill frændi!! Snilld snilld snilld.
Vá maður, allt í litlum börnum núna. Hvenær ætli komi að manni sjálfum? Er kannski rétt að taka eitt skref í einu og redda sér konu fyrst, já ég held það svei mér þá!
Sjáumst þá...
6 comments:
já djöfull er ég sammála þér hvað ég er frábær og skemtilegur gaur.
"þú ert svo mikill fokker Hreiðar, að þú ert semi farinn að minna á Hillaran" Gummi á laugardaginn.
Ok ég læt það vaða:
1. Hann á það sameiginlegt með þér að hafa verið tekinn að aftan með strap-on.
2. Maður segir "Nirði" ekki "Njerði".
3. Svo minnir mig að Jenný hafi verið með þér í bekk, hún eignaðist litla dóttur fyrir löngu félagi.
Blesssaður.....
Já verð að taka undir lið 2 og 3 hjá Brynjari en iúú segið mér að liður eitt sé grín en okey ég giska á að hann eigi það sameiginlegt með batman að leika sér við stórar kisur..eða leðurblökur eða fokk it hef ekki hugmynd..!!
Jenný flutti til Danmerkur í 5. bekk krakkar mínir. Annars er það alveg satt hún á litla dóttur.
Ég tek málfræðina á mig, ég pældi mikið þessu áður en ég skrifaði þetta, en það verður að viðurkennast að ég er að missa touchið í íslenskunni, hef fundið fyrir því í auknum mæli upá síðkastið.
Og þetta með strap-onið er ekkert nema persónuleg árás. Skamm Brynjar.
Já Hreiðar vertu samt ekkert að nefna það við neinn ;)
Þarf kannski ekki að taka það fram að anus-anonymous er tyrkneskur félagi minn í skólanum.
Frábært að hann skyldi hafa tekið tíma í að kommenta hjá mér.
Post a Comment