Bílar, dónar og allt þar á milli
Maður kemst ekki hjá því þegar maður er í London að sjá töluvert hærra hlutfall af eigulegum bílum. Maður er kannski í öllu sínu ríkidæmi að rölta í vinnuna eða ennþá betra, í lestina, og þá brunar einsog einn Lambó framhjá manni, einhver Gordon Gekko-týpa við stýrið með hárið sleikt aftur (þýskar hárvörur) að hlusta á Ibiza mix á hljóðstyrk sem ætti að vera töluvert meiri en ætti að vera þægilegt eða heilsusamlegt. Svo eru auðvitað líka Limmarnir sem ætla aldrei að enda, og svo forstjórabílarnir, Rolls Royce eða Bentley. Ég er klárlega búinn að sigta út þá bíla sem ég myndi ekki hata að eiga akkurat núna, spurning um að henda inn einsog kannski myndum?
Mercedes Benz SLK 55 AMG er ekki sjaldséður hérna, mjög góður þessi, fínn í Langholtinu, Miklubrautinni eða bara inní skúr ;)
Það var einn svona fyrir utan skrifstofuna um daginn, SLR týpan af Benz sem að ég geri mér ekki alveg grein fyrir hver átti samt? Getur vel verið að Valli Reynis hafi verið í London samt...
Rolls Royce Phantom, hann er vinsæll á Bond stræti, en það versta samt er óneitanlega að hann kostar peninga.
Ferrari Enzo, segi nú ekki meira.
En núna er maður farinn að hugsa einsog smástrákur, um bíla og eitthvað, held maður ætti bara að ná sér niðrá jörðina...
Þessi Dodge Aires er á heilsársdekkjum og með fáránlega stórt farangursrými, ég er viss um að með smá bóni og kannski lyktarspjaldi í spegilinn væri maður geðveikt sáttur á honum.
Sjáumst á rúntinum.
7 comments:
pant fá þennan rauða þegar þú ert orðinn rich and unfamous.. ;)
6 dagar..geeza!
Við erum nátturlega bara lang flottust eða allavena annað okkar, segi ekki hvort því það kemur ekki alveg nógu vel út fyrir mig ;) kvöldið var nátturlega snilldin ein og gott að það var hægt að hrista aðeins upp í ykkur. London er sko alveg swinging baby þannig hún er sko alveg inn í myndinni aftur en þá þýðir ekkert að fara humm....heim fyrir allar aldir. Er nú samt nokkuð glöð yfir því að mér tóks ekki að draga fleiri í þetta “party” því mig langaði ekkert að fá ykkur með...hahaha
Skil ekki alveg....
En allavegana einn Panthom fyrir mig, ef thad skildi nu koma rigning.
shit son hver kannast ekki við aires með 4wd og slitnum börðum, annars átti hug minn allan rúgbrauð sem ég sá í Köben á dögunum með álfelgum (koppum) og ný lökkuð og með feitu hampmerki á toppnum spurningin hvaðan hún kom *hóst* *kristjaníu* *hóst*
Ég segi Kristjaníu
B-I-N-G-O vinningstalan er komin
World Of Warcraft gold for cheap
wow power leveling,
wow gold,
wow gold,
wow power leveling,
wow power leveling,
world of warcraft power leveling,
world of warcraft power leveling
wow power leveling,
cheap wow gold,
cheap wow gold,
buy wow gold,
wow gold,
Cheap WoW Gold,
wow gold,
Cheap WoW Gold,
world of warcraft gold,
wow gold,
world of warcraft gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold,
wow gold
buy cheap World Of Warcraft gold b3a6y7ex
Post a Comment