Thursday, September 21, 2006

Þá hefst gamanið!

Mánudaginn næsta hefst formlega kennsla hjá mér í LSBU eða "London South Bank University". Ég er búinn að velja mér pathway, en það er kannski ekki ósvipað hugtak og "braut" eða "lína" í íslensku námi. Ég var fyrir löngu búinn að ákveða að taka "Finance" sem pathway og það þýðir að fögin sem ég verð í á þessari önn verða: "Management of Company Finance" og "Strategic Management" ásamt valfaginu mínu sem ég valdi vandlega. Það komu nokkur ansi athyglisverð til greina og langaði mann á tímabili að taka helst 2 eða 3 fög, en því miður hefði það verið alltof mikið nám er ég hræddur um. En á endanum valdi ég "Technical Analysis and Market Psychology" og er ég nánast að missa mig úr spenningi með það fag. Þar fáum við m.a. að stjórna 10 milljón dollara Hedge Fund (Vogunarsjóður er gott íslenskt heiti) yfir önnina, að sjálfsögðu "ýminduðum" ef svo má segja, en þessir sjóðir fjárfesta í verðbréfum ýmisskonar eða gjaldmiðlum með ýmisskonar fjárfestingaraðferðum sem ég ætla ekki að fara nánar útí, en þetta er klárlega spennandi. Ekki skemmir fyrir að kennarinn í þessu fagi er strax orðinn uppáhaldskennarinn minn í skólanum þar sem hann á mikið safn ljótra stuttermabola, og er alltaf með góðan slatta af bringuhárum uppúr hálsmálinu, þó það sé ekki einusinni V-hálsmál. Toppið það! Einnig er hann mjög líklega ofviti og veit af því þar sem honum finnst afar gaman að láta visku sína í ljós, t.d. þuldi hann upp slatta af Fibonacci-rununni fyrsta skiptið sem við hittum hann, glotti svo geðveikt þegar þeir sem göptu af undrun (og höfðu sennilega aldrei heyrt um þetta) klóruðu sér í hausnum. Geðveikt góður.
Síðan er ég búinn að beygja allar stangirnar í lyftingasalnum í skólanum og skrá mig í fótboltaliðið, er ansi hræddur um að þessir tjallar eigi ekki eftir að verða lengi að brjóta á mér lappirnar. Schevchenko er ekki einusinni að höndla enska boltann!
Helgin verður í rólegra lagi, þar sem kennsla hefst ekki strax þá ákvað ég að taka smá forskot á sæluna og keypti mér góða bók sem á eftir að koma sér vel, "All about Derivatives" heitir hún og veitir mér gott innsæi í það sem ég fer í eftir áramót, "Financial Risk Management".

En þetta er gott í bili, þá ætti ég ekki að þurfa að útlista það oftar hvað ég er að læra hérna úti. Annars grunar mig að fæstir lesi e-ð á þessari síðu enda hefur hún meira eða minna legið niðri í lengri tíma.

Sjáumst á röltinu... Gummi.

1 comment:

Anonymous said...

Gummsi, þú ert nú meira nördið!! Jæja, kemur kannski úr hörðustu átt... en það er gott að þú getur skemmt þér! :-)

Vona bara að þú endir ekki eins og Jón rusl hérna í Garðabænum (hann er svona álíka frægur eins og Böddi á Selfossi) sem las yfir sig og vinnur nú við að tína upp rusl..

Take care ;)