Monday, September 25, 2006

ein-tómt-fjör...

Helgin fór í það að horfa á fótbolta, kíkja aðeins niður á Old Street í smá glens og síðan var lesið um "credit contracts" og "option contracts". Hreint alveg ágætis helgi, fékk sex tvisvar og kærastinn minn er yndisleg manneskja. Grín, smá blogghermir í gangi þarna.

Kennsla hófst í dag, byrjaði samt frekar rólega, var ekki nema 2 og hálfs tíma fyrirlestur í Technical Analysis og var David Clemson (nánari upplýsingar í fyrra bloggi) að koma með nokkra góða brandara, ekki það að það hafi verið hlegið að þeim öllum. En það er líka ekki alltaf málið, lélegir brandarar geta verið mjög góðir líka, sérstaklega eftir á. Svona in the "long-run".
"Long-run brandarar".

Ég, Ólafur Johnson og Helgi (mágur Hreiðars) höfum ákveðið að fara á Anfield fyrir áramót, dagsetningin verður ákveðin seinna í vikunni en allavega, það er orðið ljóst að "You'll never walk alone" verður sungið reglulega þangað til. Og Steve Gerrard lagið líka. Og "We've won it five times, we've won it five times, in ISTANBUUUL... o.s.v."

Keypti mér 3 bækur í dag (enn bætist í safnið), Technical analysis of the financial markets, Hedge Funds - The courtesans of capital markets og síðan Liar's Poker. Ég skal setja inn review um þær um leið og ég er búinn að lesa þær, sem verður örugglega spennandi (fyrir mig).

Ætla að fara að drífa mig í gimið (gimið), ég þarf að rétta við stangirnar sem ég beygði síðasta föstudag.

Ætla að enda þetta á commenti.

"djös"

-Ari Geit (1984-present)

Thursday, September 21, 2006

Þá hefst gamanið!

Mánudaginn næsta hefst formlega kennsla hjá mér í LSBU eða "London South Bank University". Ég er búinn að velja mér pathway, en það er kannski ekki ósvipað hugtak og "braut" eða "lína" í íslensku námi. Ég var fyrir löngu búinn að ákveða að taka "Finance" sem pathway og það þýðir að fögin sem ég verð í á þessari önn verða: "Management of Company Finance" og "Strategic Management" ásamt valfaginu mínu sem ég valdi vandlega. Það komu nokkur ansi athyglisverð til greina og langaði mann á tímabili að taka helst 2 eða 3 fög, en því miður hefði það verið alltof mikið nám er ég hræddur um. En á endanum valdi ég "Technical Analysis and Market Psychology" og er ég nánast að missa mig úr spenningi með það fag. Þar fáum við m.a. að stjórna 10 milljón dollara Hedge Fund (Vogunarsjóður er gott íslenskt heiti) yfir önnina, að sjálfsögðu "ýminduðum" ef svo má segja, en þessir sjóðir fjárfesta í verðbréfum ýmisskonar eða gjaldmiðlum með ýmisskonar fjárfestingaraðferðum sem ég ætla ekki að fara nánar útí, en þetta er klárlega spennandi. Ekki skemmir fyrir að kennarinn í þessu fagi er strax orðinn uppáhaldskennarinn minn í skólanum þar sem hann á mikið safn ljótra stuttermabola, og er alltaf með góðan slatta af bringuhárum uppúr hálsmálinu, þó það sé ekki einusinni V-hálsmál. Toppið það! Einnig er hann mjög líklega ofviti og veit af því þar sem honum finnst afar gaman að láta visku sína í ljós, t.d. þuldi hann upp slatta af Fibonacci-rununni fyrsta skiptið sem við hittum hann, glotti svo geðveikt þegar þeir sem göptu af undrun (og höfðu sennilega aldrei heyrt um þetta) klóruðu sér í hausnum. Geðveikt góður.
Síðan er ég búinn að beygja allar stangirnar í lyftingasalnum í skólanum og skrá mig í fótboltaliðið, er ansi hræddur um að þessir tjallar eigi ekki eftir að verða lengi að brjóta á mér lappirnar. Schevchenko er ekki einusinni að höndla enska boltann!
Helgin verður í rólegra lagi, þar sem kennsla hefst ekki strax þá ákvað ég að taka smá forskot á sæluna og keypti mér góða bók sem á eftir að koma sér vel, "All about Derivatives" heitir hún og veitir mér gott innsæi í það sem ég fer í eftir áramót, "Financial Risk Management".

En þetta er gott í bili, þá ætti ég ekki að þurfa að útlista það oftar hvað ég er að læra hérna úti. Annars grunar mig að fæstir lesi e-ð á þessari síðu enda hefur hún meira eða minna legið niðri í lengri tíma.

Sjáumst á röltinu... Gummi.

Tuesday, September 19, 2006

Maður dagsins...





























... er Ron Burgundy!

Friday, September 15, 2006

Kominn til London...

... og allt að gerast.

GSM númer: 0044 796 296 7099 (ef þið eruð að hringja úr breskum síma er það "0" í staðinn fyrir "0044")

Heimanúmer: 0044 870 036 5031 (sama regla og síðast, hæ!)

Allt gott að frétta af mér, líst vel á þetta og meiri fréttir koma síðar.

Thursday, September 07, 2006

Þetta er Johnny Logan.
Ekki nóg með það þá er þetta líka mjög samkynhneigð mynd af honum, ég efa samt ekki að hann sé fínn gaur, sjáiði bara fötin hæ!

Þýðir lítið að dæma fólk af útlitinu einu saman, en samt, þannig er það bara. Maður á líka ekki að tala í símann undir stýri og heldur ekki skola munninn þegar maður er búinn að bursta tennurnar. Jább, þessu komst ég að um daginn, ekki skola! Ég er búinn að skola síðan ég fór að tannbursta mig sjálfur, og þegar mamma sá um þetta fyrir mig var það mandatory (like taking hoes money, but that's another story) að skola eftir burstun. Mér líður semi einsog ég hafi verið að vinna svaaaakalega stórt verkefni sem hafi tekið 22 ár og ég ahafi gert það vitlaust allan tímann.

Elli er kominn.

Bæ.