Thursday, December 28, 2006

Jól, Áramót, mjög heit!

Enda var hitastigið um 10 gráður yfir jólin, heitustu jól sem ég man eftir. Ef það heldur fram sem horfir þá verða jól á Íslandi eftir 15 ár haldin í Nauthólsvíkinni, Mojito í staðinn fyrir jólaöl og Speedo í staðinn fyrir bindi. Ég þangað pant!

Það helsta sem hefur gerst síðan síðast er sennilega það að ég kom á Ísland, Ölfusá flæddi yfir bakka sína með þeim afleiðingum að bærinn fór á kaf (ef bærinn er skilgreindur sem Árvegur fyrir neðan Kaupfélagið), Ég fór á Evrópudjamm nokkrum sinnum og eitraði fyrir mér, Billi bætti metið sitt í eitrun og síðan komu jólin! Ég fór aldrei í jólaskap svo ég viti til þess, þetta kom bara og fór og núna eru áramótin framundan. Þau eru með öllu stefnulaus þetta árið. Maður hefur alltaf getað treyst á gott heimapartý sem síðan þróast útí heimabæjar-ball í Hótelinu eða HvítaHúsinu, en þetta árið er ekkert í boði fyrir djammþyrsta Selfyssinga. Þar sem mig langar til að vera á Selfossi þá er líklegast að maður ryðjist með yfirgangi inní heimahús valið af handahófi og verði dónalegur þar. Allar ábendingar um gamlárspartý, gamlárspartý, gamlárspartý vel þegnar.

Á morgun er síðan Hjalla-glaðningur þar sem ég vonast til að sjá sem flesta félaga, þessi partý enda oftar en ekki í tómri vitleysu (VallaPalla íkveikjan, VallaKrakk heimreiðar-innreiðin o.fl.) þannig að ég ætla að búa mig undir e-ð mjög sérstakt. Mæti með skriffæri og sundföt, ásamt formúlublaði.

Talandi um formúlublað, þessi taktík hjá Bretunum, að hafa próf í byrjun janúar er ekki vinsæl, það síðasta sem ég vil eyða jóla"fríinu" mínu í er að sitja yfir bókum, því það er e-ð sem ég get gert í London takk fyrir.

Svo vil ég nota tækifærið og mæla með "Heroes" þáttunum. Ég held að SkjárEinn sé að fara að byrja að sýna þetta núna. Ég allavega fékk nokkra illa fengna þætti hjá Joðmanninum og hef ég haft það að sið undanfarið að eyða tíma mínum milli 2 og 4 á næturna í að horfa á þetta. Virkar mjög vel sem dægrastytting, en snýr hinsvegar sólarhringnum við í leiðinni sem er hvimleitt.

En núna hef ég toppað sjálfan mig í blogginu svo að ég ætla að fara að gera e-ð uppbyggilegt, t.d. fara á Pakkhúsið með Billa!

Sjáumst þar!

Tuesday, December 12, 2006

Á ég að segja þér hvað er geeeeðveikt?

Nei, kannski ekki rétti húmorinn hérna, þeir taka þetta til sín sem skilja. En strákarnir eru komnir og farnir, þetta var snilldarhelgi með þeim og gerðum við ýmislegt sniðugt saman. Ég verð samt að játa það að þeir eru mis-heilbrigðir og þroskaðir þessir drengir.

Myndir frá helginni koma aldrei inná netið svo það sé á hreinu, what happens in London stays in London.

Ég vil vekja athygli á því að matreiðslupistillinn minn sem ég setti inn um daginn var að sjálfsögðu grín. Elli Joð spurði mig hérna úti hvern fjandann ég hefði verið að nota skyndisósu e-ð á pastað og fannst þetta ekki alveg nógu nett uppskrift! Hvað get ég eiginlega sagt við því? ha? ha?

Ekki?

En ég kem heim á fimmtudaginn, eða "heim", hvað er það eiginlega? Ég held það sé réttara að segja að ég sé að fara til Íslands á fimmtudaginn, en þangað til þarf ég að læra dálítið og losa mig við þennan slappleika sem fylgdi helginni. Þetta fær maður fyrir að misbjóða líkama sínum nokkur kvöld í röð. Síðan fer næsta helgi bara í pakkhúsið.is (eða ekki jafnvel) og svo er Gummsi kominn í jólafílinginn. Það verður að segjast einsog er að það er álíka mikil jólastemning í mér einsog í tvíburabróður hans Billa. Og þeir sem vita ekki hvað tvíburabróðir er þá bendi ég öllum á þennan link.
Ef það eyðilagði jólinn fyrir einhverjum að lesa þetta þá þykir mér það leitt.

Einnig bendi ég fólki á að Google er geeeeeeðveik leitarvél.

En núna er ég búinn að tala illa um alla vini mína og því er best að fara að gera e-ð annað.

Sjáumst.