Tuesday, December 12, 2006

Á ég að segja þér hvað er geeeeðveikt?

Nei, kannski ekki rétti húmorinn hérna, þeir taka þetta til sín sem skilja. En strákarnir eru komnir og farnir, þetta var snilldarhelgi með þeim og gerðum við ýmislegt sniðugt saman. Ég verð samt að játa það að þeir eru mis-heilbrigðir og þroskaðir þessir drengir.

Myndir frá helginni koma aldrei inná netið svo það sé á hreinu, what happens in London stays in London.

Ég vil vekja athygli á því að matreiðslupistillinn minn sem ég setti inn um daginn var að sjálfsögðu grín. Elli Joð spurði mig hérna úti hvern fjandann ég hefði verið að nota skyndisósu e-ð á pastað og fannst þetta ekki alveg nógu nett uppskrift! Hvað get ég eiginlega sagt við því? ha? ha?

Ekki?

En ég kem heim á fimmtudaginn, eða "heim", hvað er það eiginlega? Ég held það sé réttara að segja að ég sé að fara til Íslands á fimmtudaginn, en þangað til þarf ég að læra dálítið og losa mig við þennan slappleika sem fylgdi helginni. Þetta fær maður fyrir að misbjóða líkama sínum nokkur kvöld í röð. Síðan fer næsta helgi bara í pakkhúsið.is (eða ekki jafnvel) og svo er Gummsi kominn í jólafílinginn. Það verður að segjast einsog er að það er álíka mikil jólastemning í mér einsog í tvíburabróður hans Billa. Og þeir sem vita ekki hvað tvíburabróðir er þá bendi ég öllum á þennan link.
Ef það eyðilagði jólinn fyrir einhverjum að lesa þetta þá þykir mér það leitt.

Einnig bendi ég fólki á að Google er geeeeeeðveik leitarvél.

En núna er ég búinn að tala illa um alla vini mína og því er best að fara að gera e-ð annað.

Sjáumst.

2 comments:

Anonymous said...

hahahahaha

"Veistu hvað er geeeeeðveikt?"

En yndisleg mynd af gaurnum (e. Ella/Tomma Homma) og við hlógum líka eins og fokkin svín en það gæti líka verið útaf því að við vorum í svo mikilli vímu af lyktinni sem var inní herberginu. Hæ!

En enn og aftur takk fyrir frábæra helgi. Hún var snilld og verður endurtekin á nýju ári.

Anonymous said...

hehe...að þjappa kjellingar!!

Hey eg tók þessu með óþroskann ekki inn á mig, ég veit að þú áttir við ella litla...hagaði sér oft á tíðum eins og litið barn...sííí!!

Skildu síðan skítalygtina þína eftir í UK, hun fer engum nema þér og herberginu þínu vel!!!
þroskaði ofurhuginn kveður að sinni kv. Billsi W.