Thursday, February 28, 2008

OWNED

Hefur einhver einhverntímann tekið eitthvað massíft djók á ykkur, eitthvað svo slæmt að þið hafið þurft að leggjast undir feld í lengri tíma til að finna uppá einhverju nógu sniðugu til að hefna ykkar?

Jimmy Kimmel lenti í þessu um daginn, og útkoman er brilliant!



"I'm fucking Ben Affleck!"

Thursday, February 21, 2008

That's how the Federline's keep rolling...

Ég rakst á frétt á Vísi eða mbl í dag þar sem einhver þingmaður (sögðu þeir, einsog það skipti einhverju máli) var viðriðinn það að hafa spilað póker-kónger uppá peninga. Hneyksli. Einnig játaði hann það að hafa spilað Bridge uppá peninga - SAMA KVÖLD!

Hvað er að manninum, á hann eintóm spila-áhugamál? Er hann einhverfur? Er hann með geðbrest(?) ? Er hann.... HOMMI!

Nei segi svona, mér er nokk sama þó hann hafi spilað Lúdó uppá háskólasjóð barnanna sinna, en neðar í greininni var viðtal við einhvern gamlan spilafíkil sem átti ekki orð yfir háttsemi háttsetts þingmanns. Þar sem póker veðmál séu ólögleg á framúrstefnulega landinu okkar þá skyldi það vera ansi hart að þingmaður skyldi brjóta þau lögin (einsog ég kom inná áðan, þá finnst mér það ekki skipta neinu máli þar sem það hefur sýnt sig áður að þingmenn alveg jafn ólöghlýðnir og aðrir, ef ekki verri, en það er nú önnur saga).

En það skoplega við þetta er það að spila-fíkils-gaurinn sagði e-ð semsvo: "Að þessi maður skuli ætla að ganga fram fyrir skjöldu og upphefja fjárhættuspil sem hefur eyðilagt fjárhag fjölmargra fjölskyldna er fyrir neðan allar hellur. Hann ætti að taka sig saman í andlitinu og fara í naflaskoðun [Innskot höfundar: Sá er sem segir]."

Þá er þessi maður búinn að vera að berjast fyrir því að hafa póker ólöglegan í gegnum árin. Þá spyr Guðmundur: "Er einhver að snúa uppá höndina á honum? Hvað með spilakassana, 1X2 tippin, öll veðmálsatriðin í Rat Race (pepto bismol), bingóin og lottóin? Er ekki best að banna áfengi til að hjálpa alkóhólistum í baráttu sinni við áfengið? Banna Kenny svo að átsjúklingar geti lifað án stöðugs ótta?"

Með fullri virðingu fyrir spilafíklum (nema þessum manni auðvitað), þá er það gjörsamlega óviðunandi að agaleysi, heimska og stjórnleysi þessa manns á eigin fjárhag og gjörðum eigi að koma í veg fyrir það að aðrir geti tekið sjáfstæða ákvörðun um hvort þeir leggi pening undir eða ekki þegar þeir spili póker, án þess að hafa áhyggjur af því hvort þeir séu að brjóta lög eða ekki.

Ummæli hans og framkoma eru í raun ekkert annað en fordómar, þar sem hann er að áætla það að allir aðrir munu gjörsamlega missa stjórn á sér ef lögleiðing myndi líta dagsins ljós.

Það er ekki mikið meira, varð að koma þessu á framfæri þar sem ég varð reiður að lesa þessa frétt í dag.

Gummi og Póker - Fullt hús hjá Ella Joð um helgina!

Sunday, February 17, 2008

Liverpool - Chelsea og Smashing Pumpkins

Ég henti mér á ansi góða tónleika í gærkvöldi, og sá Smashing Pumpkins spila fyrir dansi í Millennium Dome. Þeir voru aldeilis góðir, sem kemur kannski ekki á óvart, og tóku flesta af slögurunum sínum einsog Bullet with a Butterfly Wings, Today, Tonight, Tonight, Everlasting Gaze en EKKI spiluðu þeir Disarm, sem ég hafði beðið eftir með mikilli eftirvæntingu. Þó náðu þeir að bæta mér það nokkurn veginn upp þegar Billy Corgan coveraði óvænt hið margfræga lag "Easy Living" sem Uria Heep sömdu og Mánar gerðu frægt.
Eftir tónleikana fórum við síðan uppá Old Street í legendary gítarpartý þar sem Höddi sló á létta strengi, reyndar ansi þétt sem endaði í blóðugum fingrum, og var ansi margt um manninn. Við slógum í gegn þegar við vorum að kaupa okkur vín fyrir partýið í einhverju sveittu off-license þar sem (að sjálfsögðu) einhver Indverji var að vinna. Við hlóðum guðaveigunum á borðið hjá honum ásamt kóki og lime og ég-veit-ekki-hverju og spurðum hvort við gætum ekki opnað reikning. Indverjinn tók reyndar vel í grínið og gaf okkur forláta sleikibrjóstsykra sem ég fann í jakkanum mínum í morgun og þá mundi ég eftir þessari sögu.

Einnig fann ég bolinn og skyrtuna sem ég var í í gær uppá snaga inní forstofu í dag, sem segir mér að ég hafi líklega klætt mig úr þar þegar ég kom rúllandi heim í nótt með Óla Johnson, sem gisti hjá okkur með Sigrúnu sinni. Hresst.

Á föstudaginn var partý hjá Óla Johnson þar sem hápunkturinn var líklega ferðin heim. Við tókum leigubíl saman, ég, Elín, Höddi og tveir félagar hans (úr ónefndri hljómsveit sem verður ekki nefnd hér útaf sögunni sem fylgir). Þar sem ég og Elín erum á leiðinni útí bíl, og Höddi og félagarnir voru þegar komnir í bílinn, opna ég farþegahurðina öðrum megin og þá heyrist "It's the Other Side, Nigga" frá einum félaganum sem sat þeim megin í bílnum (og var ansi útúrdjammaður á þessari stundu). Ég skelli hurðinni og hleyp inn hinumegin og átta mig þá á því að það er MJÖG þvinguð þögn inní bílnum. Ég teygi mig þá aðeins til hliðar og lít á bílstjórann, sem er svartari en vetrarnóttin í Gaulverjabæjarhreppnum.

Pínu vandræðalegt og fékk þessi sami félagi mikinn rasista-stimpil á sig sem fór ekki af þar sem hann var stöðugt minntur á þetta komment sitt.

Ég fór síðan á Chelsea-Liverpool síðustu helgi þar sem ég horfði á hrikalega leiðinlegan fótboltaleik, þar sem Torres var meiddur og Dirk Kuyt sýndi enn og aftur afhverju hann er svona ljótur. Nenni ekki einusinni að segja meira frá þessum leik

Ég vil enda á því að benda fólki á skemmtilegar myndir sem voru teknar víðsvegar á Íslandi yfir jólafríið mitt, allar teknar á BlackBerryinn þannig að gæðin eru ekkert sem ElliJoð myndi sætta sig við (þegar kemur að ljósmyndun er Elli með tærnar þar sem flestir trúðaskór hafa hælana).

Finnið myndirnar hérna.

Síðan er það Aarhus næstu helgi, Elli er orðinn svo spenntur að sjá mig að hann man ekki í hvora áttina með toppinn hann er myndarlegri.



Elli besti stúdent FSU frá upphafi.

Bless Gummi.

Saturday, February 02, 2008

Internet, LOL, internet

web zwei-to und online chat...


Ég held að þessi síða eigi ekkert svakalega mikið eftir. Í dag sér hún aðallega um að halda utanum linka inná myndasíður, og stendur sig bara nokkuð vel í því reyndar og það er að halda í henni lífinu.

Kannski gaman að segja frá því að ég fór að sjá myndina "Sweeney Todd" með Johnny Depp og Helenu Bonham Carter í gær, og hún var alls ekkert sérstök. Mæli því ekki með henni.

Dagskráin lítur svona út:

Nei í alvörunni:

22. Febrúar - Aarhus að hitta Ella stóra og Helgu (og alla hina sem búa í þessum bæ, miðstöð Jótlands) Elli er víst búinn að cock-a upp eitthvað misgott plan.

18. Mars - Ísland, páskafrí já takk!

23. Apríl - Örvar og Unnur hafa boðað komu sína til Lundúna. Ég lofaði að eiga bláan Powerade handa þeim.

Maí - Baugsdagurinn árlegi sem verður haldinn einhversstaðar, spennan magnast?!?

Maí/Júní - Ítalía að heimsækja Kolbrúnu og jafnvel sjá sólina örlítið!

Júlí - Berlín að sjá Radiohead...


Nokkuð mikið af ferðalögum næstu mánuðina, einnig býst ég fastlega við því að heimsækja Ísland seinni part sumars.

En búin að setja nýtt blogg hér inn loksins, og það var erfitt!

Bless Gummi.