Thursday, November 30, 2006

Mausið - með Gumma E

Fyrir ári síðan skrifaði ég inn matreiðslupistil að hætti Bunny Girls þar sem ég fór vandlega, en jafnframt mjög fagmannlega útí einn af mínum uppáhalds dýrindisréttum. Skoðið pistilinn hérna ef ykkur vantar hugmyndir að góðum kvöldverði.

Ég ætla hinsvegar að koma með nýja framandi uppskrift að mjög gómsætum rétt, hið sígilda ítalska Spaghetti Carbonara.

Hráefni:

Spaghettílengjur (helst tagliatelle) - fæst í Tesco, stór poki á 95 pens

Tilbúin Carbonarasósa - fæst í Costcutter fyrir 1,35 pund

Byrjið á því að henda spahettíinu í pott og látið nóg vatn í þetta, getið hvort eð er alltaf hellt af því seinna ef það er of mikið. Það stendur í einhverri bók að það sé ekki hægt að klúðra því að elda spaghettí, þannig að við skulum ekki fara útí einhver smáatriði. Setjið bara vatn einsog ykkur líður vel með og spaghettíið oní. Smellið pottinum á hellu og setjið í botn, á mesta hitann því þá verður þetta tilbúið fyrr og meiri tími í að sinna áhugamálum eða vinnu. Þegar spaghettíið er allt orðið lint oní vatninu þá er mjög gott ráð að setja smá uppí sig reglulega og athuga hvort það sé nokkuð ennþá hart. Þegar þið getið bitið í gegnum það og það er mjúkt einsog twinky all the way through þá er mál til komið að losa sig við allt aukavatn í pottinum. Hellið því í nærliggjandi vask. Nú er mál til komið að hella Carbonaraskyndisósunni yfir spaghettíið og hræra í 30 sekúndur, samt varlega því maður vill ekki búta tagliatellað niður, þá er ekki jafn gaman að borða matinn. Þegar þetta er orðið sæmilega vel hrært saman er þessu skellt á disk og meðan þetta kólnar er upplagt að vaska upp áhöldin sem maður notaði, til að spara tíma seinna meir.
Ég mæli með því að fólk borði ekkert með þessu, því það flækir einfaldlega málin. Ef þetta er ekki nógur matur þá er það ykkar vandamál, hefðuð átt að hugsa útí það áður en þið byrjuðuð að elda. Vatn er besti drykkurinn með þessu, nema það sé föstudagur eða helgi, þá er upplagt að fá sér Cola Light eða Dr. Pepper.

Verði ykkur að góðu!!

14 comments:

Anonymous said...

Til hvers að vera með skyndisósu þegar þú getur gert fína og auðvelda gourmet sósu sjálfur.

Uppskrift Joðsins:

Tagliatelle pasta
Piparostur
Bacon
Sveppir
Pepperoni
Rjómi

1. Setur vatn í pott og pastað útí.
2. Steikir baconi, sveppina og pepperoníið á pönnu.
3. Lætur þetta malla í smástund.
4. Þegar pastað er tilbúið þá tekuru það úr pottinum og hellir útá pönnuna ásamt rjómanum.
5. Lætur það malla og kryddar með sterku kryddi. (Ég nota krydd sem heitir Broiled Steak, gefur ákveðið gott bragð).
6. Skerð niður piparostinn og hendir honum útí mallið.
7. Enn og aftur að láta gumsið malla í stutta stund.
8. Setur gumsið á disk og borðað.

Borið fram með hvítlauksbrauði og pepsi max.

Með fýlukveðju frá Íslandi, þinn vinur Elías Joð.

Anonymous said...

En ég tek það fram fyrir viðvaninga þá skal auðvitað losa vatnið fyrst úr pottinum áður en pastanu er hellt á pönnuna.

Bara svona til að hafa þetta á hreinu..

Gummi said...

Nett uppskrift samt!

Ég heimta hér með að þú eldir þetta fyrir mig í desember við tækifæri, ég skal mæta með pepsi max og hvítlauksbrauð og rómantíska gamanmynd.

Anonymous said...

ég geri ráð fyrir að mér verði boðið....gummsi???

Ég skal koma með lutoið,nyja Nylon diskin og Havana-club flösku!!

hver ætlar þá að koma með salsa sósuna?? Ívar? Raggi? Hjalti? Örvar?.....eða jafnvel TÆ ?
kv.Billsi

Anonymous said...

Ofnbakaðar tortillur með osti og geggjaðri hakksósu (Comfort food!!)

Material:
Einn bakki nautahakk
1 krukka salsa sósa (mild)
1 dós 18% sýrður rjómi
1 bréf taco krydd
6 tortilla kökur (heilveiti betri)
1 krukka Guacamole
3 tómatar saxaðir
1 púrrulaukur saxaður
1 pakki rifinn ostur

1. Steikið hakkið á pönnu og þegar það hefur brúnast setjið taco kryddið útá og blandið því vel saman við hakkið.

2. Hellið sirka hálfu vatnsglasi (2-3 dl) af vatni útá á látið vatnið aðeins sjóða niður
Bætið við u.þ.b hálfri salsa krukkunni útí og 2 msk af sýrða rjómanum og látið krauma

3.takið eina tortilla köku, smyjrið smá sýrðum rjóma yfir hana alla. Setjið svo hakksósuna,ost, tómata og lauk þannig að hægt sé að rúlla henni upp (Gott að líma endana saman með smá guacamole) Endurtakið svo þetta með allar pönnukökurnar og raðið þeim í eldfast mót.

4. Hrærið afganginn af sýrða rjómanum og ´´slettið´´ honum yfir og í kringum kökurnar og stráið því næst afgangsostinum yfir allt saman.

5. Hitist í ofni við 220. gráður í 20 mínutur eða þar til osturinn er orðinn gullinn.

Berist fram með Salsa og Guacamole og ef til vill söxuðum tómötum og gúrkum

Verði ykkur að góðu!

Anonymous said...

ef ykkur vantar brund í krukku þá hringið þið bara

hentar með öllu og sérstaklega niðursoðnum kúk í eyrnamergssósu

Gummi said...

Ertu rulluf?

Anonymous said...

Pent..þar sem matur er ekki mín sterka hlið þá er hérna smá desert la sólrún..eina sem þú þarft er hvítvínsflaska, fersk jarðaber, konsum súkkulaði og tilbúinn þeyttur jurtarjómi..ekkert endilega í þessari röð og það er freestyle aðferðin tekin á hvernig þú vilt bera þetta fram..enjoy!!

Anonymous said...

Eftirréttur:

1 pakki Royal búðingur
1/2 L mjólk

leiðbeiningar aftaná pakka

verði ykkur af góðu

Anonymous said...

Tek sko birgðir af royal með til dk eftir jólin..takk!!

Gummi said...

Það er líka hægt að kaupa tilbúinn búðing, hann er oft á tíðum mun betri en gamli Royal, en oft á tíðum er hann líka mun verri. Þetta er bara einsog að spila í Lottóinu.

Svo er Ben & Jerry´s líka góður í eftirrétt, eða bara aðalrétt.

Anonymous said...

Gummmi...ekki á morgun, heldur hinn!! SÉTT! ég sé krókinn koma svífandi...stórir hringir og hjartalaga!!

Billsi mc´donalds!

Gummi said...

Ég hræri extra glerbrotum útí kaffið, svo verður tekið í nefið þegar þið komið.

Ekkert bull og ekkert rugl - einsog Ellsi orðaði það um árið.

Anonymous said...

kokteil ársins(6ár í röð.)Valið af barþjónum Hagkaups..

byrjar á því að afskera kók-superdós
2 thule bjórflöskur brotnar í fín glerbrot.
þeyttur rjómi
3dl af hreinu basalti.
1dl klór.
svo er smekks atriði hvað þið viljið mikinn vodka...sjálfur vill ég engan voka!Kís að nota kvikasilfur í vökvaformi í staðinn.
svo er hægt að gera þetta meira kósy með því að strá nögglum yfir!

Þetta er svo allt hrært saman og drukkið úr superdósinni.

Billi Frost