Skóli, Garden State og skóli
Eftir viku verð ég búinn í prófum, og nánast búinn á því líka. Í dag héldum við í Mímir Equity Management fyrirlestur fyrir bekkinn okkar um verðbréfasjóðinn sem við höfum stjórnað síðustu mánuði. Þetta gat varla farið mikið betur, gekk mjög vel og græddum við mesta peninginn, og fengum hæstu einkunn líka, svo að það er í góðum málum. Ég þakka Ella Joð fyrir hjálpina við að hanna logoið fyrir sjóðinn, þetta leit mjög pro út!
Fyrsta prófið á miðvikudaginn, næsta á föstudag, og síðan síðasta á mánudaginn eftir viku. Ég kom heim eftir skóla í dag, settist niður til að læra, en ég hélt nákvæmlega engri einbeitingu, ég var búinn með kvótann á það að læra í bili! Ég hef nú vanalega töluvert mikið þol í svona prófum, en þarna var ég alveg búinn. Svo ég gerði það sem allir námsmenn (og reyndar verkamenn, eða kvenmenn ef útí það er farið) hefðu gert. Ég tók mér frí! Setti á mig headphone, lagðist uppí rúm og fann mér bíómynd til að horfa á í mjöööög yfirveguðum rólegheitum. Og myndin!
Garden State er bíómynd sem ég á eftir að horfa á aftur, og síðan aftur, og jafnvel enn aftur. Það er búið að mæla með þessari mynd við mig, en mig grunaði aldrei að hún væri svona góð! Ég brosti allan tímann sem ég horfði á hana, og hló upphátt nokkrum sinnum! Og fyrir utan góða sögu þá á Natalie Portman heiðurinn af þessu. Hún er svo mikil dúlla! Það er alveg á hreinu að ef maður er einhverntímann "blue sky blues" þá á Garden State eftir að gleðja mann.
En núna er ég endurnærður og tilbúinn í að gera massífa greiningu á Sony, ég ætla að rústa þessu.
Í spilun:
Such Great Heights - Iron & Wine (Garden State ;) )
Pass This On - The Knife
Art Bitch - CSS
Shanty for the Arethusa - The Decemberists
Under the Influence - James Morrisson
Hunting for Witches - Block Party
+ Architecture in Helsinki
L8er.
3 comments:
Til hamingju!! Þú ert svo heitur í þessu, er það ekki rétta orðið?
Þarf að skoða þessa mynd, reyndar þoli ekki natalie portman, strákur, stelpa, kíwíhead? ruglar mig pínu en okey hún hefur átt sín moment og V er snilldarmynd!
Anyways..skjóttu á mig og vertu skotinn..setning sem ég heyrði fyrir löngu síðan..Good times :)
Tjékkaðu svo á Damien nýja 9!
Hlakka til í feb..búin að bóka þig.. Kiss kiss og stay white!
CSS jeeee! ég fann stelpu í skólanum sem er ALVEG eins og söngkonan í CSS.. ég er geðveikt að reynað vera vinikona hennar! pffhahaha
djók, hún er að reynað vera vinkona mín. hún sast hliðiná mér í dag í mötó og fór að spurja fullt um ísland, en hún er samt geðveikt töff! hún er frá noregi og er smá svona kínversk eins og CSS
sólrún! þoliru ekki natalie portman... what´s wrong with you
váá ég á svo þessa hljómsveit skuldlaust! (þ.e.a.s CSS)
En Sólrún er klárlega ekki að fylgjast með litla bróður sínum þar sem hún er að segja honum að "tékka" á nýja disknum með Damien. Ef Gummi hefur ekki hlustað á hann (sem ég veit að hann hefur gert) þá hefur enginn hlustað á hann. Klárlega Rice aðdáandi númer 1.
Post a Comment