Wednesday, January 31, 2007

Þjóðarsálin...

... með Þorgeiri Ástvaldssyni er leiðinlegasti útvarpsþáttur landsins, og með yfirburðum. Ég er ekki að segja þetta til að vera með persónulegar árásir, reyndar jú smá, en er samt ekki eðli manna að forðast leiðindi? Þessi þáttur snýst allavega alltaf uppí það að fólk fer að tala um hin ýmsu vandamál, kvartandi og hundfúlt útí allt og alla. Ég verð mjög þunglyndur af því að hlusta á þennan þátt, það gerðist nokkuð oft þegar maður var að keyra heim úr vinnunni undanfarin sumur. Stundum langaði mig að keyra inní hóp af fólki, eða niður e-ð verðmætt, sýna svona þögul mótmæli. Kannski gæti einhver hringt í Þorgeir og kvartað undan mér. Og pælið í því, hvaða fólk hringir inní útvarpið til að tala um leiðindi?

Leiðinlegt fólk með athyglisbrest, e-ð sem maður vill helst sleppa við að lenda við hliðiná í flugvél, hvað þá hafa það í útvarpinu sínu þegar maður keyrir framhjá hóp af fólki eða einhverju verðmætu.

Þetta sama fólk er búið að vera duglegt að setja inn pistla á Vísi.is og Mbl.is. Þessir pistlar koma á hverju ári á þessum tíma, þ.e.a.s. þegar bankarnir skila inn uppgjörum sínum fyrir árið. Fólk er að kvarta undan því að "bankarnir séu að okra á fólkinu í landinu" og að hagnaður þeirra renni beint úr vösum íslenskra fjölskyldna. Er þetta fólk ekki alveg í lakið?

Svo margt sem mig langar að segja, en ég held að ég væri þá bara að finna svolítið upp hjólið aftur, svona pistlar minna mig á rímu, sem á vel við:

".... það er bara ekki svaravert/
það er einsog Steini Njáls, einfaldlega barnalegt/"

Komum með tvær staðreyndir.
1. Ef ég er með yfirdrátt, þá borga ég vexti.

2. Vextir á Íslandi í augnablikinu eru háir.

Þetta vita allir. Hinsvegar vill fólk frekar eyða pening sem það á ekki, og þarf því að borga vexti. Málið er að þetta gengur líka á hinn veginn. Ef þú leggur pening inná bankann, þá borgar hann þér vexti, sem eru þó lægri en vextirnir sem þú borgar honum fyrir sömu viðskipti (lán á peningnum). Það er eðlilegt enda er þetta fyrirtæki sem þarf að standa staum af kostnaði við sína starfsemi, alveg einsog fyrirtækið sem þú vinnur hjá. Eftirspurn eftir lánsfé innanlands er búin að vera gríðarleg undanfarin ár. Neyslufylleríið á Íslandi er hvatinn af þessu öllu saman.

Eitthvað segir mér að fólkið sem skrifar pistlana um "misskiptingu auðs" og "okur bankanna" sé að skíta á sig með 100% bílalánið og 90% húsnæðislánið, sem það endurfjármagnaði fyrir 2 árum og keypti sér heitan pott fyrir mismuninn.

Það er nefnilega dýrt að eyða pening sem maður á ekki. En kannski óþarfi að kalla út vælubílinn líka.

Gummsi - ef þið lásuð þetta þá veit ég ekki hvað þið voruð að pæla. Þið eruð öll ógeðslega tekin!

Sunday, January 28, 2007

Test!

Reynið að horfa á fyrstu mínútuna af þessu atriði án þess að brosa. Og ég tek það fram að það er ekkert fyndið við þetta atriði! (s.s. frá byrjun og þangað til hann tekur heyrnartólin af sér)



Mesta dúlla í heiminum eða? (næst mesta tæknilega)

En einhver fyndinn ákvað að búa til sína eigin rómantísku útgáfu af þessu atriði úr Garden State, mér finnst hún ekki alveg jafn góð samt, en dæmi hver fyrir sig!



Fréttir? Fór á Emirates Stadium í dag, hann er mjög flottur vægast sagt! Önn 2 hefst á morgun með nýjum áföngum, Skímóball næstu helgi í South-Kensington.

Þið eruð æðisleg, ég elska ykkur!

Bjartsýnn, jákvæður, drífandi - Nýr Gummi.

Tuesday, January 23, 2007

Æði (blogg)

Ég var spurður að því hvort að ég sé búinn að vera að blogga svona mikið útaf töflunum sem ég er að éta. Svarið er já!

Það er forsaga að þessu máli sem ég ætla að segja frá núna.

Eftir alla jóla-eitrunina þá fannst mér rétt að fá mér nýjan lífsstíl. Ég fékk e-ð helköttað æfingaprógramm frá Heiðari og fylgdi því eftir með því að kaupa mér ýmis fæðubótarefni. Mín sýn var einfaldlega sú að ef ég er að fara að hamast 6x í viku þá er tilvalið að éta e-ð með því til að fá enn betri árangur. Ég keypti mér s.s:

Próteinshake til að mixa eftir æfingar - hollt og ferlega gott.

Kreatín - hraðar allri vöðvauppbyggingu, undraefni!

HMB - Heiðar kom mér á lagið með þetta í sumar, hjálpar líkamanum að brenna en vinnur jafnframt að vöðvauppbyggingu. Mikið notað af fitnessfólki í dag þar sem það er erfitt að byggja upp og brenna bæði í einu, þetta vill soldið bitna á hvoru öðru.

XedraCut - Brennslutöflur, innihalda koffein, guarana og égveitekkihvað. Allavega veldur þetta tímabundinni ofvirkni hjá mér, sem hefur komið sér mjög vel í prófalestrinum og æfingum síðustu viku.

Síðasta vika fór ekki í neitt annað en að lesa undir próf, éta efni og æfa. Ég held að mér sé búið að takast að afeitra mig eftir jóla-ævintýrið og það er vel. Mér líður allavega mun betur á sál og líkama. Og þessar töflur gera mann helvíti aktívan líka verður að segjast! Allavega finnst mér það líklegasta orsökin fyrir því hvað ég hef verið duglegur við að skrifa hérna inn síðustu vikuna eða svo, plús það að þegar maður er í prófum finnur maður sér alltaf e-ð annað gera! Ég held t.d. að gaurinn sem fann upp þennan hatt hafi verið í prófum:



Úr einu í annað. Ég er búinn í prófum. Fyrsta önnin er á enda og á næsta mánudag hefst ný önn með nýjum áföngum, nýjum áherslum og nýjum, ferskari Gumma. Djók... samt ekki. Einnig er gaman að geta þess að þetta verður síðasta önnin mín við skólann, og bara skóla almennt einsog staðan er núna. Ekkert ákveðið með frekara nám, en allavega er það ekki á dagskránni hjá mér á næstunni.

Svo ætla ég að enda þetta á reynslusögu. Ég var á MSN í kvöld að spjalla við nágranna minn hann Hreiðar, a.k.a. Hrella Hemm Hemm. Við vorum að tala um Guðmund í Byrginu og innsetninguna sem hann fékk á videóinu sínu. Það samtal er feidað út og ég er með e-ð íslenskt hiphop lag í eyrunum, sem er að spilast af einhverjum endalausum playlist á iTunes, sem er einnig á shuffle. Ég ákveð að senda Hrella eina línu, eitthvað sem ég heyrði í laginu bara:

"Guðmundur says: Bent já, ennþá, Bent er búinn að yrkja fullt"

Um leið og ég ýti á enter þá sé ég að Hrelli hefur akkurat smellt inn texta til mín líka. Hann var svona:
"H.M. Rockafeller says: Bent já, ennþá, Bent er búnað yrkja fullt"

Tók mig góðar 10 sekúndur að átta mig á því að ég hafði ekki póstað þessu inná MSN-ið tvisvar.

Við tókum sama quotið, úr sama laginu, á NÁKVÆMLEGA sama tíma, og það var algjörlega óviðkomandi samræðunum sem við höfðum verið í.

HVERJAR ERU LÍKURNAR?

Ég ætla allavega að búast við því að fá gervitungl í höfuðið áður en ég lendi í svona aftur.

Sunday, January 21, 2007

Dexter

Eru þættirnir um Dexter e-ð góðir!

"I can kill a man, dismember his body, and be home for Letterman. But knowing what to say when my girlfriend is insecure.... I'm totally lost."

Hljómar óneitanlega einsog karakter úr bók frá Chuck Palahniuk.

Þetta fer á listann með Prison Break og Heroes!

Og síðasta prófið á morgun (22. jan) klukkan 14:00.

Wish me luck!

Saturday, January 20, 2007

Atvinna!

Maður hefur verið að velta fyrir sér hvað manni langar að gera þegar maður lýkur skólagöngunni í vor. Það eru ótal tækifæri í boði, en það eru enn fleiri leiðir til að leita þeirra. Oftast veit maður varla hvar á að byrja! En svo um leið og maður kemst á einhvern byrjunarreit þá hefst vinnan fyrir alvöru, að leita uppi áhugaverð fyrirtæki innan þess sviðs sem maður vill vinna við, og hafa samband við þau með mögulega vinnu í huga. Það er nauðsynlegt að vera snemma á ferðinni líka, að fá starf í þessum geira er ekki e-ð sem gerist á einni nóttu. Ekki þremur heldur.

Flest fyrirtæki eru með ALLT á hreinu, mission og vision statement og sérstaka stefnu gagnvart nýjum starfsmönnum og útbúa doðranta til að lokka að áhugasama framtíðarstarfsmenn. Á pappírunum lítur allt slétt og fellt út, en þegar maður les yfir þetta oftar og oftar frá fleiri fyrirtækjum fer maður að lesa á milli línanna, hvað þetta þýðir í rauninni allt saman. Ég ætla að taka dæmi (enskukunnátta er kostur til að lesa áfram). Ég mun setja inn texta beint frá fyrirtækinu og síðan segja hvað það þýðir í raun og veru:

"... is not hierarchical - you will find yourself being given a lot of responsibility very early on." (Allskonar fólk á eftir að hlaða á þig allskonar verkefnum alveg frá fyrsta degi). But there is also a great deal of research and analysis to do, writing papers which provide the senior bankers with the information on which to base their advice. (Sum þessara verkefna eru mjög langdregin og óspennandi og krefjast þess að þú liggir yfir tölum og biblíum til lengri tíma til þess að skila af þér þinni vinnu. Þegar upp er staðið er ekkert víst að þetta komi hærra settum starfsmanni að gagni, þ.e.a.s. þitt framlag skiptir okkur ekkert endilega máli). You will also be called upon to do lots of financial modelling: valuing companies and businesses, and investigating the likely effect on a company of an acquisition or disposal. This will require long hours and flexibility, as you are required to produce detailed analyses at short notice; (þeir áskilja sér rétt til að trufla þig hvenær sem er í vikunni og hvenær sem er sólarhringsins til þess að setja á þig óraunhæfar kröfur varðandi vinnuálag, vinnutíma, skilafrest og allt þar á milli) and strong team-working skills. (Í þessu samhengi þýða "team-working skills" hæfni þína til að vera undirgefinn og taka á móti áðurnefndum atriðum án þess að brotna niður yfir því).

Djöfull hlakkar mig til að fara út á vinnumarkaðinn!

Friday, January 19, 2007

Hugh Hefner ástfanginn (LOL ?)

Það fyrsta (annað ef ég segi alveg satt) sem vakti athygli mína á mbl.is rúntinum í morgun var það að hórumangarinn, Kiwanismeðlimurinn og klámkóngurinn Hugh Hefner væri ástfanginn. Ég hef aldrei beint skilið hvað er eiginlega að þessum graðholda snyrtifræðingum sem deita hann, því vanalega er hann með einsog 3 kærustur í einu, og þá er ég ekki endilega að meina að hann sé að "sms-a" þær allar í einu, heldur bara allan pakkann! "Ikke stanna nu" ef þið skiljið.

Hann er semsagt dottinn í lukkupottinn og fær lítil fiðrildi í magann þegar olnbogarnir snertast, tár í augun þegar þau elskast og þetta er allt einsog í ævintýri hjá þeim. Ég held samt að það búi meira að baki. Mér finnst það meirasegja bara nokkuð augljóst hvað gengur á.

Stúlkan sem hann er fallin fyrir er ein af söguhetjunum í Heroes, og getur stjórnað huganum á þeim sem hún vill. Djók.

Stúlkan sem hann er fallin fyrir er kapítalisti einsog þeir gerast verstir. "She ain't in it for the candy" einsog maðurinn sagði. Kanye West sagði það samt best:

"I ain't sayin' she's a golddigger, but she ain't fuckin' with no broke ni**a."

Og ef hún heldur pókerfeisinu í 1-5 ár í viðbót, spilar rétt úr spilunum sínum, fer ekki útí nein stór bet og er safe á þessu þá gæti hún bara tekið pottinn!

Wednesday, January 17, 2007

Krókóbíll (bannað börnum)

Þetta blogg heitir Krókóbíll.

Ég er búinn í fyrsta prófinu mínu í þessum skóla. Þá eru 5 eftir (2 fljótlega, 3 í sumar).

Brunabjallan í skólanum fór í gang áðan 30 mínútum fyrir prófið og það þurfti að rýma skólann. Einhver blökkumaður (pottþétt) hefur verið illa lesinn og sett kerfið í gang til að fá frest. Prófið frestaðist um 21. mínútu.

Á 21. mínútu er hægt að læra eitt módel illa. Ég býst við því að greyið blökkumaðurinn (pottþétt) sé fallinn.

Við þurfum að handskrifa öll próf, soldið einsog í F.Su. í gamla daga. Ég fékk verk í puttana því ég hélt svo fast um blýpennann minn.

Þegar ég skrifaði sum orð sem ég var ekki 100% viss með stafsetninguna (einsog bureaucracy) þá beið ég eftir að það kæmi rautt strik fyrir neðan orðið sem myndi mæla með réttri stafsetningu.

Það kom aldrei.

Ég er að fara á Fulham - Tottenham á laugardaginn. Þá sé ég Vincenzo Montella, hetjuna mína síðan í 4. bekk, loksins spila.

FL Group er búið að græða milljarð á dag það sem af er árinu. Ef það kallar ekki á grillveislu þá veit ég ekki hvað!

"Afhverju get ég ekki verið meira einsog Hannes Smárason?" - Hann er pottþétt ógó montinn eftir skaupið.

Ég sá frétt áðan á Vísi.is þar sem Guðmundur nafni minn í Byrginu hélt því fram að honum hafi verið nauðgað, einmitt af konu sem hefur kært hann fyrir nauðgun.

Hann heldur greinilega að "sá er sem segir" reglan sé ennþá í gildi.

Ég fékk sendan link áðan sem sýndi myndir af Guðmundi nafna mínum í Byrginu í hlutverki "Iron Master", í djörfum ástarsenum.

Lítur út fyrir að hann hafi haft rétt fyrir sér með nauðgunina! (það er búið að fjarlægja myndina sem var hérna, en hún sýndi explicitly hvernig Guðmundur í Byrginu fékk það óþvegið)

Þetta blogg er bannað börnum.

Kveðja, Pabbi Króki.

Monday, January 15, 2007

Skóli, Garden State og skóli

Eftir viku verð ég búinn í prófum, og nánast búinn á því líka. Í dag héldum við í Mímir Equity Management fyrirlestur fyrir bekkinn okkar um verðbréfasjóðinn sem við höfum stjórnað síðustu mánuði. Þetta gat varla farið mikið betur, gekk mjög vel og græddum við mesta peninginn, og fengum hæstu einkunn líka, svo að það er í góðum málum. Ég þakka Ella Joð fyrir hjálpina við að hanna logoið fyrir sjóðinn, þetta leit mjög pro út!

Fyrsta prófið á miðvikudaginn, næsta á föstudag, og síðan síðasta á mánudaginn eftir viku. Ég kom heim eftir skóla í dag, settist niður til að læra, en ég hélt nákvæmlega engri einbeitingu, ég var búinn með kvótann á það að læra í bili! Ég hef nú vanalega töluvert mikið þol í svona prófum, en þarna var ég alveg búinn. Svo ég gerði það sem allir námsmenn (og reyndar verkamenn, eða kvenmenn ef útí það er farið) hefðu gert. Ég tók mér frí! Setti á mig headphone, lagðist uppí rúm og fann mér bíómynd til að horfa á í mjöööög yfirveguðum rólegheitum. Og myndin!

Garden State er bíómynd sem ég á eftir að horfa á aftur, og síðan aftur, og jafnvel enn aftur. Það er búið að mæla með þessari mynd við mig, en mig grunaði aldrei að hún væri svona góð! Ég brosti allan tímann sem ég horfði á hana, og hló upphátt nokkrum sinnum! Og fyrir utan góða sögu þá á Natalie Portman heiðurinn af þessu. Hún er svo mikil dúlla! Það er alveg á hreinu að ef maður er einhverntímann "blue sky blues" þá á Garden State eftir að gleðja mann.

En núna er ég endurnærður og tilbúinn í að gera massífa greiningu á Sony, ég ætla að rústa þessu.

Í spilun:
Such Great Heights - Iron & Wine (Garden State ;) )
Pass This On - The Knife
Art Bitch - CSS
Shanty for the Arethusa - The Decemberists
Under the Influence - James Morrisson
Hunting for Witches - Block Party
+ Architecture in Helsinki

L8er.

Saturday, January 13, 2007

Benny's í Kastljósinu

Sá að þau hefðu verið að spila í Kastljósinu síðastliðinn fimmtudag, og auðvitað varð ég að kíkja á það. Linkur til að sjá það er u.þ.b. hérna. Ég nota hvert tækifæri til að sjá Bassa spenna upphandleggina, enda var það daglegur viðburður á menntaskólaárunum (sem er orðið alltof langt síðan). Við fórum í Styrk ásamt Brynjari oftar en er heilsusamlegt, og klufum atómið.

Síðastliðinn fimmtudag fór ég hinsvegar á skemmtilegan stað í Islington í Norður-London, sem ber heitið Hope and Anchor. Hann er helst frægur fyrir það að U2 spilaði sitt fyrsta gigg í London þar. Semsé sögulegur staður. En þetta kvöld var íslenska stuð-rokk-ballöðu sveitin Dikta að troða upp fyrir dansi. Þeir áttu mjög góða tónleika, og vorum við þarna í góðum hópi Íslendinga aðallega sem skemmtum okkur konunglega. Spurning hvort að Dikta eigi eftir að fylgja U2 eftir og spila útitónleika við Sloane Castle seinna meir? Allavega myndi ég mæta og syngja með Breaking The Waves, fremst við sviðið.

Meira af tónlist. Ég er að fara á tónleika 15. mars næstkomandi, sem mig hlakkar mjög svo til að fara á. Hljómsveitin er ekki af verri endanum, The Arcade Fire dömur og herrar. Var svo heppinn að fá miða í gegnum Helga vin minn hérna í London, sem stalkaði miðasölurnar um leið og þær opnuðu, því það seldist upp á nokkrum mínútum á tónleikana. Ég hef óstaðfestar fregnir af því að Elías nokkur Joð sé að reyna eftir fremsta megni að finna sér miða á þessa tónleika, sem þýðir auðvitað, heimsókn til London! Sem er mjööög heitt!

Gott í bili, meira seinna, bæjó!

Friday, January 12, 2007

Heppni?

Heppni getur tekið á sig margar myndir. Til dæmis er sumt fólk heppið í spilum, einsog Hjalti Magg. Sumir eru heppnir í ástum, einsog t.d. .........? Já.

Svo eru aðrir sem eru orðheppnir. Mér finnst það sérstaklega skemmtilegur eiginleiki, og veit ég fátt skemmtilegra en að hlusta á orðheppið fólk segja hetjusögur.

Vísir.is er stundum orðheppinn miðill, allavega VefTV-ið þeirra í dag. Þar sá ég skemmtilega fyrirsögn:

"Hádegisviðtalið: Kynferðisbrot gegn heyrnarlausum hafa verið þögguð [niður]."

Hvort er þetta fyndið eða kalt?

Thursday, January 11, 2007

Nú er það búið!

Afhverju hætti Valgeir Guðjónsson að að syngja "Popplag í G-dúr" ef það var engin leið?


Hvað breyttist skyndilega, gat hann hætt allan tímann?

Monday, January 08, 2007

London - Selfoss - London

Þá er fríið á enda, og lífið hafið að nýju. Þessar 3 vikur sem ég var á Íslandi náði ég að hitta flesta félagana e-ð, suma meira en aðra, suma minna en aðra, en þó fór þetta allt saman mjög vel fram. Það sem er minnisstæðast er sennilega það hvað ég man lítið eftir fríinu, þar sem ég var leiddur útí mikla eitrun, en ég vil kenna Billa alfarið um það. Þegar ég hugsa tilbaka og pæli í hverri helgi fyrir sig þá rennur þetta voðalega mikið saman í eitt, að minnsta kosti það sem átti sér stað fyrir jólin.

Nokkrir punktar sem ég man eftir:

- Við fórum í Rvk til Heiðars og svo niður í bæ, þar sem ég og Billi vorum þeir síðustu í Hlöllaröðinni og síðustu í taxaröðinni. Þegar við komum inní taxann uppgötvuðum við það að við vorum ekki með gistingu, þannig að taxinn fór í biðflug meðan við hringdum í Elínu og fengum að gista hjá henni, þrátt fyrir að hafa verið nýbúnir að rífast heiftarlega við hana inná Sólon. Billi reyndi síðan að misþyrma kettinum sem systir Elínar á, og ég vaknaði daginn eftir klæddur einungis í nærbuxur og með bindi?

- Eitt kvöldið svaf ég í rúminu hjá foreldrum hans Ívars, og enn aðra nótt kúraði ég í rúminu hans Ívars. Mjög kósý!

- Billi og Elli rifust.

- Ég og Edda systir hans Brynjars tókum eitt ljótasta símaat sem hefur verið gert, þegar við hringdum í sitthvoru lagi í Brynjar um miðja nótt og lugum því að við hefðum farið heim saman. Ég man hvað viðbrögðin í Brynjari voru mikil, hann skellti á mig þegar hann áttaði sig á útá hvað hrekkurinn gekk, og ég fékk svo mikið samviskubit að ég sendi honum SMS og lét hann vita að þetta væri grín. Hann sendi mér skilaboð tilbaka: "Ég er bara nokkrum ELO stigum of edrú!"

- Ég og Billi réðumst inní ónefnda stúdentaveislu niðrí Gaulverjabæjarhrepp, á kvöldi þar sem við drukkum til að gleyma. Hátt í 2 lítrar af sterku hurfu, plús bjórarnir sem við töldum ekki. Undir lok veislunnar vorum við með vodka blandaðann í appelsín (ekkert annað var til) í stórri djúskönnu sem við drukkum saman úr, og fengum okkur íslenskt í nefið.

- Sama kvöld gisti Billi í rúminu mínu. Hann vaknaði ekki við símann sinn daginn eftir, þó að ég myndi lemja hann og slá meðan síminn hringdi út. Þetta var á Þorláksmessu, og við rúntuðum í 3 tíma á forláta hvítum sendiferðabíl sem er dagsdaglega notaður undir flutning á humri, og drukkum bláan Powerade.

- Á annan í jólum var herbergispartei hjá Brynjari, þar sem það var slegið met í að hella niður og hlusta á Bítlana. Seinna var farið á ball í hótelinu og síðar meir súrasta partý ársins í Hlíðskjálf. Þar sást glitta í Ívar í Fagform tala mann í kaf.

- Talandi um að fara í kaf, Ölfusá flæddi yfir bakka sína. Mesta flóð síðan 1968 f.kr. og ég átti ekki orð þegar vatnið náði að Kaupfélagskjallaranum, e-ð sem ég bjóst aldrei við að sjá!

- Ég og Heiðar fengum ókunnugan mann til að skutla okkur í nærliggjandi sjoppu í Rvk, en komumst að því að hún var lokuð. Við fengum því ókunnuga manninn til að skutla okkur örlítið lengra í næstu sjoppu, en hún var lokuð líka. Ókunnugi maðurinn féllst á það að skutla okkur á Select við Miklubraut (sem var vel útúr leið fyrir alla) gegn greiðslu. Þegar ókunnugi maðurinn var búinn að rúnta með okkur um Rvk og við búnir að redda partýinu með bland og tóbak undir hendinni og komnir heim til Heiðars, komumst við að því að við ættum ekkert í lausu til að borga honum með. Heiðar tók gullnu setninguna: "Heyrðu félagi, gefurðu okkur þetta ekki bara í þetta skiptið?" Ókunnugi maðurinn brosti einsog hann meinti það ekki og hélt áfram leið sinni.

- Það var mega partý í Hjallanum! Ég mun aldrei gleyma því hvernig ég vaknaði. Ég og Elli sváfum í mestu óþægindum (ég sitjandi í sófa og Elli liggjandi á gólfinu, hann er svo stór) þegar Atli Fannar labbaði mega hress inn, búinn að fara í sturtu og ferskur, og vakti okkur með því að drippla bolta og vera hress, e-ð sem við vorum ekki. Þegar hann labbaði út passaði hann sig á því að botna Tímarnir okkar með Sprengjuhöllinni, nokkrum sinnum, alveg þangað til að við fórum á fætur.

- Þetta lag vakti síðar mikla lukku og var mikið spilað um áramótin.

- Ég og Elli lékum Tröll uppí sveit hjá Billa. Þar er hefð að vera með brennu um áramótin og vanalega koma tröll og hræða aðeins krakkana. Við tókum þetta að okkur þetta árið, sem var mjög gaman, sérstaklega þar sem 2 litlar stelpur fóru að hágráta þegar við birtumst, klæddir í sauðagæru og kartöflupoka, með grímur og heykvísl að vopni. Elli öskraði líka ógó flott tröllaöskur! "Waaaóóoówwww!"

- Áramótin fóru vel fram, hittumst allmargir félagar heima hjá mér í partýi sem síðar um nóttina færðist heim til Lalla frænda.

- Snilldarpóker var tekinn heima hjá Örvari, þar sem eitrunarstigið var orðið hátt undir lokin. Hjalti kom, sá og hirti peninginn. Ella var haldið og Örvar sleikti hann allan í andlitinu, með þeim afleiðingum að Elli fór og smúlaði á sér munninn í baðinu.

- Ég byrjaði að horfa á Heroes þættina, og lenti í smá uppákomu þegar mig fór að dreyma fullmikið að ég væri með superpowers! Hvað er það?

- Ég borðaði endalaust af góðum mat, drakk Jólaöl og Appelsín blandað saman meira en ég hafði lyst á, og spilaði með fjölskyldunni.

Ég þakka öllum þeim sem ég hitti og var með í fríinu, þetta var frábært frí!
Núna er 2007 gengið í garð, og efast ég ekki um að það verði viðburðarríkt og fengsælt með eindæmum. Hlakka til að hitta alla sem fyrst, ef þið komið ekki til London þá bara í páskafríinu!

Tchenqui!