já
Og lífið heldur áfram. Búið að vera nóg að gera síðustu daga og það róast ekki fyrr en á miðvikudaginn næsta, og það endist þá bara rólegt í 2-3 daga eða svo. En ég kvarta ekki því þá líður tíminn bara hraðar = styttra í jólafríið sem ég hef farið að hugsa aðeins um. Er að fara að taka próf núna á þriðjudaginn sem er svona "hermipróf" einsog skólinn kallar það. Þetta er með sama sniði og "alvöruprófið" sem ég tek í byrjun des. og er ætlað fyrir okkur að kynnast aðeins formi prófsins. Það er þannig að við fáum "case" uppá 30-50 bls 48 klst fyrir prófið sjálft og höfum við þann tíma til að lesa case-ið, undirbúa okkur og svo mætum við í prófið og sitjum í 6 klst og látum gamminn geysa. Núna fengum við 38 bls case um flugfélagið Sterling, sem íslenska eignarhaldsfélagið Fons keypti fyrir rúmu hálfu ári, og FL group svo fyrir 2 vikum síðan. Semsagt "íslenskt" flugfélag með rætur í Danmörku og Noregi. Þannig að núna er maður að undirbúa sig fyrir þetta helvíti.
Liverpool er að vinna á, tóku Aston Villa 2-0 í gær og þokast upp töfluna, enda lítið annað hægt? Peter Crouch er ennþá að stækka, kom inná fékk víti og átti svo smá þátt í seinna markinu líka. Samt er maðurinn framherji og hefur ekki skorað mark ennþá sem er fáránlegt. Freak of Nature. Bæði mörkin í gær komu frá miðjumönnum! Chelsea ætla svo að vinna Manchester United í dag, verður spennandi að sjá hversu stór sigurinn verður.
London calling, djöfull hlakka ég til!
---------------------------------------------------------------------------
Var að koma af enska og þar beið Chelsea lægri hlut fyrir Manchester. Ótrúlegt en satt. Þetta var mesta heppni sem ég hef séð í fótboltaleik, Chelsea voru á tímabili 81% með boltann og áttu meira en helmingi fleiri marktækifæri. Dómarinn var líka ömurlegur og hann kostaði Chelsea sigurinn sem þeir áttu skilið.
Ef ég lít á björtu hliðarnar þá minnkaði þarna bilið milli Chelsea og Liverpool, þannig að ég verð að þakka Rauðu shemale-unum fyrir það. Klapp fyrir þeim. Og Eiður var góður. Klapp fyrir honum.
11 comments:
Chelsea vann þetta nú bara ekki neitt. Leikurinn fór nú bara 1-0 fyrir ManU eftir stórkostlegt mark frá Darren Fletcher. Farðu bara í rassgat Gummi..
Var þetta ekki fyrsta markið hjá Fletcher í deildinni? Hann valdi allavega rétta tímann til að geta eitthvað....
Ég myndi aldrei ganga svo langt að segja að þetta hafi verið stórkostlegt mark. En kannski miðað við að þetta var Darren Fletcher og að hann skoraði mark þá var þetta meira en stórkostlegt, þetta var yfirnáttúrulegt!
Hvað gerist næst? Skorar Peter Crouch kannski? Nei ég ætla ekki að sleppa mér alveg í yfirlýsingunum.
Ef að Elli Joð væri í boltanum þá væri hann blanda af Peter Crouch og Robbie Savage.
...nei bara létt grín Elli minn. Rólegur stóri strákur...
hahhhhhahaha..
Gummi þýðir ekki að vera svona þver, þó þú sért Poolari, United átti kannski ekki seinustu 25-30 mín en voru alveg jafngóðir og Chelsea fram að því, Fletcher skoraði stórkostleg mark, þar sem hann ætlaði svo sannarlega ekki að hitta hann svona svakalega en að vera svona blatant VITLAUS og segja að dómarinn hafi kostað Chelsea sigurinn sem þeir áttu skilið segir mér bara það að þú hafir lesið yfir þig og ert hér með orðinn partur af probleminu en ekki lausninni ;) glasið er hálftómt eins og Ívar sagði.
En sigurinn var heppni. EN eins og Chelsea hefur oft sannað, það þarf ekki að vera betri aðilinn til að vinna, bara hitta hann með hnénu eða skora á 93 mín.
Það skal tekið fram af þetta blogg endurspeglar á engan hátt skoðanir mínar heldur er eingöngu gert til að skapa rifrildi, leiðindi og særa einstaklinga.
Ég sá leikinn og dómarinn var illa greiddur og alls ekki í takt við tímann, en þó átti hann lítinn þátt í að móta úrslitin.
dem féll ég í gildruna, enda auðveldlega æstur
ég vil sjá myndirnar sem þú lofaðir hér! ;)
bíddu ég man nú ekki betur en ég hafi fengið 10 ++ í stafsetningu og gæti gert það aftur blindandi..fokk the foosball dudes..
Myndir? Myndir? Ég er búinn að lofa svo mikið af myndum að það er lygilegt. Enda var ég að ljúga ef ég sagðist ætla að setja þær inn en gerði það ekki.
Ég skal þá lofa uppí ermina aftur og segjast ætla að setja inn nokkrar frá klakamótinu, nokkrar frá íslandi og nokkrar frá Selfosspartýinu. Þá eru allir góðir.
Post a Comment