Wednesday, November 01, 2006

Hvað á barnið að heita?

Stefán Geirvald.

Ég elska Gerrard, hann sagði eftir leikinn í gær: "Ég verð hjá Liverpool í mörg ár í viðbót og ég er að njóta hverrar einustu sekúndu." Takk fyrir það.

Það er búið að plana ferðina á Anfield. Ég, Óli og Helgi leigjum Ford Focus og brunum til Liverpool á laugardagsmorgun. Mér sýnist á öllu að ég verði driver, vinstri umferð sælar. Það versta sem getur þó gerst er að ég klessi bílaleigubíl, og mér hefur alltaf fundist það heillandi að skemma hluti sem ég á ekki. En við erum einnig búnir að bóka hótelherbergi við Merseyside og verðum við þar um nóttina, eftir að hafa prófað djammið í Liverpool, rock on. Ferry cross the Mersey og You'll never walk alone.

Og já, Rafa Benitez slakur, breytum byrjunarliðinu 99 leiki í röð, en alls ekki 100, því það yrði kjánalegt.

Meira seinna...

1 comment:

Anonymous said...

það er flott ef þu tekur stefan geirvald....eg er med stefan geirhard og oli tekur stefan geireitthvad